Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Qupperneq 20
32
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
Smáauglýsingar Fréttir
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Trúnaðarmenn
kjósa milli tveggja
formannsframbjóðenda
Jg Bilartilsölu
Renault Twingo Easy, árg. ‘95, ekinn
5000 km, rafdr. rúður, speglar og
samlæsingar. Staðgrtilboð óskast.
Uppl. í síma 565 2973 og 892 1919.
Jeppar
Chevrolet Blazer S10, árg. ‘86, skipti á
ódýrari koma til greina. Verð 800.000.
Upplýsingar í símum 565 6839 og
896 6137.
Uppstillingarnefnd Starfsmanna-
félags ríkisstofnana klofnaði við
uppstillingu lista til stjórnar í gær-
morgun. Meirihluti uppstilling-
arnefndar stakk upp á Jens Andrés-
syni, starfsmanni Vinnueftirlitsins,
til formanns en Guðrún Sigurgeirs-
dóttir, starfsmaður hjá Tollstjóra-
embættinu, lagði fram lista með
Braga Michaelssyni, starfsmanni
Framkvæmdasýslunnar, i fyrsta
sæti. Að öðru leyti er lítill munur á
listunum.
„Það er stór hópur sem stendur
að þessum lista en ég legg hann
fram sem minnihluti því að ég er
samþykk listanum og er í þessu
ráði. Megnið í hópnum er skrifstofu-
fólk á Tollstjóraskrifstofunni, hjá
sýslumannsembættum, á skattstof-
um og í héraðsdómi um allt land.
Okkur finnst að það þurfi að stokka
upp í félaginu," segir Guðrún.
Kosið verður milli listanna
tveggja á trúnaðarmannaráðsfundi í
dag og þá skýrist hvor listinn verð-
ur framboðslisti stjórnar og trúnað-
armannaráðs. Allar líkur eru á því
að mótframboð komi fram ef listi
minnihlutans bíður lægri hlut og að
almennar kosningar verði í félaginu
í lok apríl. Þá verða sendir út kjör-
seðlar og skal kjörinu lokið sólar-
hring fyrir aðalfundinn 28. apríl.
„Mér finnst trúlegt að sá sem tap-
ar fari í mótframboð,“ segir Guð-
rún. Yfir 50 ríkisstarfsmenn hafa
þegar lýst yfir stuðningi við Braga.
Sigríður Kristinsdóttir hefur
gegnt formennsku í félaginu í sex ár
en hættir á aðalfundinum í aprU þar
sem formaður getur aðeins setið í
þrjú kjörtímabil.
-GHS
íslensku tónlistarverölaunin afhent í kvöld:
Uppskeruhátíð tónlistarmanna
- verðlaun afhent í sextán flokkum
*
A nœsta
sölustað eða í
áskrift
í síma 550 5000
Baráttunni fyrir Islensku tónlist-
arverðlaununum 1995 fer senn að
ljúka. í kvöld verða þau afhent í
Borgarkjallaranum við mikla við-
höfn. Þetta er í þriðja sinn sem verð-
launin eru afhent en það eru rokk-
deild FÍH, DV og Samband hljóm-
plötuframleiðenda sem standa fyrir
valinu.
TUnefnt hefur verið í sextán
flokka og tilkynnt verður í kvöld
hver sé besti tónlistarmaðurinn í
hverjum flokki. Fimm tónlistar-
menn eru tUnefndir i hvern fiokk og
í kvöld fæst úr því skorið hverjir
hljóta hina ýmsu titla. Eitt hundrað
manna dómnefnd hefur verið að
cfnrfnm nnHanfarnar vikur ásamt
Islensku
tónlistarverðlauniii
íslensku tónlistarverðlaunin 1995
verða afhent í Borgarkjallaranum
fimmtudaginn 15. febrúar .
Einnig verða afhentar gullplötur fyrir sölu 1995
Fram koma hljómsveitirnar Súkkat og Botnleðja
og söngvararnir Emilíana Torrini, Páll Oskar
Hjálmtýsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Matthías Matthíasson og Ragnar
Bjarnason ásamt fleiri.
Kynnir kvöldsins verður Helgi Pétursson
og hefst verðlaunaafhendingin kl. 21.00.
Húsið verður opnað kl. 19.00
fyrir matargesti.
Boðið verður upp á þriggja rétta máltíð
og hægt er að velja á milli þriggja
matseðla.
Verð með kvöldverðinum er
kr. 2.700 á mann.
Verð eftir kvöldverð kr. 500.
Borðapantanir fyrir mat og á
verðlaunaafhendinguna eru í síma
568-9686.
Reggae on ice leikur fyrir dansi.
Húsið opið til kl. 2 ,
Samband
hljómplötuframleiðenda
Rokkdeild FIH
Allt um Islensku tónlistarverölaunin í DV föstudaginn
_______16. febrúar og laugardaginn 17. febrúar.
nokkur hundruö lesendum DV. í
kvöld verður mikið um dýrðir og
óvænt skemmtiatriði í Borgarkjali-
aranum auk verðlaunaafhendingar-
innar.
Gullplötur verða afhentar þegar
líður á kvöldið og fiöldi skemmti-
krafta, auk væntanlegra verðlauna-
hafa, stíga á stokk og má þar nefna
Hljómsveitina Reggae on Ice sem
leikur fyrir dansi.
Fimm toppsöngkonur berjast um
titilinn söngkona ársins en það eru
þær Björk Guðmundsdóttir, Andrea
Gylfadóttir, Emilíana Torrini, Ellen
Kristjánsdóttir og Guðrún Gunnars-
dóttir. Tilnefndir til söngvara ársins
eru þeir Egill Ólafsson, Kristján
Kristjánsson, Páll Óskar Hjálmtýs-
son, Páll Rósinkrans og Stefán HOm-
arsson.
-em
Útgáfa Morgunritarans í Hlíðaskóla:
Sækir markvisst
fram á markaðnum
„Ég ætla að bæta tveimur eintök-
um við upplagið með hverju tölu-
blaði. Næst verður Morgunritarinn
því gefinn út í 12 eintökum," segir
Oddur Eysteinn Friðriksson, rit-
stjóri og ábyrgðarmaður vikublað-
ins Morgunritarans, í samtali við
DV.
Blaðið gefur Oddur Eysteinn út í
Hlíðaskóla. Hann er tólf ára gamall
og hóf feril sinn við ritstjóm og út-
gáfu nú eftir áramótin. Blaðið selur
hann bekkjarfélögum sínum og með
markvissri sókn á markaðnum von-
ast hann til að ná til skólans alls.
Efnið er einkum myndskreyttir
brandarar og auglýsingar sem rit-
stjórinn hannar sjálfur. Þá er ætlun-
in að fréttum fiölgi en til þessa hef-
ur aðeins ein frétt birst í blaðinu.
Það er æsifrétt af rakspirastríði sem
braust út í bekk Odds Eysteins.
Hvert eintak er selt á 75 krónur
og auglýsingin kostar 400 krónur
með hönnun en annars 300 krónur.
Prentað er í ljósritunarvél Friðriks.
föður Odds Eysteins, og kostar 50
krónur á eintakið. Nokkur hagnað-
ur er því af útgáfunni, jafnvel svo
skiptir hundruðum króna á hverju
tölublaði. Laun ritstjóra eru hins
vegar ógreidd enn. -GK
Oddur Eysteinn Friðriksson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Morgunritarans,
stoltur með tvö fyrstu tölublöðin af vikublaði sínu. DV-mynd Rasi