Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Side 24
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
Alþýðubandalagsmenn eru
stundum flóknir.
Þrennt í sama
allaballanum
„Alþýðubandalagsmenn grein-
ast í krata, framsóknarmenn og
austantjaldskomma og eru þetta
jafnstórir hópar. Þetta þrennt
rúmast stundum 1 einum og
sama manninum."
Atli Heimir Sveinsson í Alþýðublaöinu.
Endurunninn kommi
„Útgefandinn kom aftur í sím-
ann, hrósaði líka fyrrum Kana-
leppi, og bað í leiðinni um
spennusögur. Þá hugsaði ég:
Þetta hlýtur að vera endurunn-
inn kommi.
Guðbergur Bergsson í DV.
Ummæli
Ókeypis ráðgjöf
„Ef ráðgjöf óskast varðandi
aðskilnað línu og handfæra þá
fæst hún hjá öllum alvöru
skakkörlum fyrirvaralaust og er
ókeypis."
Eðvald Eðvaldsson skakkarl f Morgun-
blaðinu.
Er hægt að bakka inn í
nútímann?
„Það eru nýmæli fyrir mér að
menn bakki inn í nútímann, ég
hélt að menn bökkuðu frekar
inn í fortíðina."
Kristinn H. Gunnarsson í Alþýðublað-
inu.
Kjarnorkuver urðu að raunsæj-
um möguleika þegar tókst að
framkvæma kjarnahvörf.
Fyrsti
kiarnakljúfurinn
Allt frá 1920, þegar þýski verk-
fræðingurinn Willy von Unruth
taldi sig hafa uppgötvað kjarn-
orkuna, voru vísindamenn í
langan tíma að uppgötva leynd-
ardóminn en það kom í ljós að
kenningar Unruths stóðust ekki
hugmyndir manna um kjarn-
orku og það var ekki fyrr en árið
1942 að ítalska prófessornum
Ebrico Fermi tókst að fram-
kvæma fyrstu kjarnahvörfin
sem hægt var að stjórna. Þetta
gerðist í Chicago, eldsneytið var
50 tonn af úrani en 500 tonn af
grafiti voru notuð sem hægir.
Við kjarnaklofnun losnar mikill
varmi úr læðingi, hann er beisl-
aður og gufuhverflar breyta hon-
um í raforku.
Blessuð veröldin
Kjarnorkuver
Úran er eitt af hinum geisla-
virku frumefnum í náttúrunni.
Kjarnar úranatóma klofna, við
það losna nifteindir, sem geta
við tilteknar aðstæður þrengt
sér inn í kjarna annarra úr-
anatóma, er klofna síðan, þannig
myndast keðjuhvörf. í stjórn-
lausum keðjuhvörfum verður
niðurstaðan kjarnorkuspreng-
ing. Úr keðjuhvörfum, sem
stjórnað er til hlítar, er unninn
varmi. Það er einmitt það sem
gerist í kjarnorkuveri.
DV
Snjókoma eða éljagangur fyrir norðan
Um landið norðanvert verður
austan- og norðaustanátt í dag, ali-
hvasst eða hvasst norðvestan til en
hægari norðaustan til og snjókoma
eða éljagangur. Suðaustanlands
verður suðlæg átt, stinningskaldi
eða allhvasst og súld eða rigning.
Suðvestanlands verður austankaldi
Veðrið í dag
eða stinningskaldi og rigning fram
eftir degi en síðan suðvestan stinn-
ingskaldi með allhvössum slydduélj-
um. Um landið norðanvert verður
frost á bilinu 0 til 5 stig. Sunnan til
verður hiti 1 til 5 stig. í nótt snýst
vindur í norðan stinningskalda eða
allhvasst með éljagangi norðan til
en um landið sunnanvert verður úr-
komulítið. Á höfuðborgarsvæðinu
verður austankaldi og rigning fram
eftir degi en síðan suðvestan stinn-
ingskaldi með allhvössum slydduélj-
um. Gengur í norðankalda með
smáéljum í nótt. Hiti 1 til 4 stig í
dag en í nótt frystir.
Sólarlag í Reykjavík: 18.00.
Sólarupprás á morgun: 9.22.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.28.
Árdegisflóð á morgun: 4.08.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjóél -5
Akurnes slydda 1
Bergsstaöir úrk. í gr. -6
Bolungarvík snjóél -6
Egilsstaöir snjóél -3
Keflavíkurflugv. súld 2
Kirkjubkl. rigning 2
Raufarhöfn alskýjaó -7
Reykjavík rigning 3
Stórhöfði .súld 7
Helsinki snjókoma -6
Ósló alskýjaö -1
Stokkhólmur skýjaö -5
Þórshöfn súld 8
Amsterdam þokumóáa -3
Barcelona heióskírt 4
Chicago heiösklrt -5
Frankfurt snjókoma 0
Glasgow alskýjaó 6
Hamborg þokumóða -4
London þokumóöa -2
Los Angeles þokumóða 14
Lúxemborg þokumóöa -4
París skýjað 0
Róm leiftur 5
Mallorca alskýjaó 8
New York alskýjaö 0
Nice léttskýjaó 5
Nuuk snjókoma -2
Orlando skýjaö 15
Vín snjókoma -2
Washington alskýjaó 2
Winnipeg heiöskírt -13
Það verður hart barist undir körf-
unni í kvöld.
Heil umferð í
úrvalsdeildinni
Spennan er mikil bæði á
toppnum og á botninum í úrvals-
deildinni í körfubolta og er
nokkuð ljóst hvaða lið berjast
um efstu sætin og hvaða lið berj-
ast um að halda sér uppi í deild-
inni.
Iþróttir
1 kvöld verður leikin heil um-
ferð og fara leikirnir fram að
mestu á suðvesturhornmu, einn
leikur er fyrir norðan. í Grinda-
vík leika heimamenn gegn
Skallagrími frá Borgarnesi, Kefl-
víkingar leika á heimavelli gegn
ÍR, á Sauðárkróki leika Tinda-
stóll og Njarðvík, á Seltjarnar-
nesi leika KR og ÍA, Haukar
leika á heimavelli gegn Breiða-
bliki' og Valur leikur á Hlíðar-
enda gegn Þór. Allir leikirnir
hefjast kl. 20.00.
Einn leikur er í 1. deild
kvenna í handboltanum. Fram
og Valur mætast í Framhúsi kl.
20.00.
Bridge
í þessu spili valt allt á frammi-
stöðu varnarinnar. Spilið kom fyrir
í 1. deildar keppninni í Danmörku á
dögunum í leik sveita Thomasar
Kampmanns og Frederiks Mörks. Á
öðru borðinu endaði suður í þremur
spöðum í suður sem stóðu slétt.
Ljóst var hins vegar að vörnin gat
gert betur. Ef hún tekur 3 fyrstu
slagina á lauflitinn og síðan er
fjórða laufinu spilað þá tryggir það
vörninni 2 slagi á tromp til viðbót-
ar. Sagnir gengu þannig á hinu
boröinu, vestur gjafari og enginn á
hættu:
4 7-
V ADG4
♦ D108643
4 542
♦ G109
♦ K9872
♦ K
4 ÁD103
* ÁK86542
* 3
♦ ÁG
4 976
Vestur Norður Austur Suður
Stetkær Larsen Mörk Krasiln.
pass pass 1» 1*
pass 1G pass 44
p/h
Sagnhafi var Sören Krasilnikoff
og hann ákvað að stökkva alla leið í
4 spaða á spilin sín eftir grandsögn
félaga síns í norður sem lofaði
punktastyrkleika. Ekki virtist það
vera gæfulegur samningur miðað
við áður gefnar forsendur og byrj-
unin lofaði ekki góðu. Torben Stet-
kær spilaði út hjartafimmunni í
upphafi (1.-3. eða 5. hæsta spil).
Krasilnikoff svínaði strax hjartagos-
anum, Mörk drap á kónginn og
fannst líklegast að félagi sinn í vest-
ur væri að sppa út frá einspili.
Hann spilaði því hjarta áfram og
allt í einu var sagnhafi kominn með
staðið spil. Austur hefði átt að gera
betur. Ef sagnhafi átti 3 lítil hjörtu
hefði hann sennilega hvorki sagt
svona á spilin sín né hagað spila-
mennskunni á þennan máta.
ísak Örn Sigurðsson
m ■ s i f'L
-3
V* ;;
3 o - wm #07 • iJf ■= 4 •--- //(/ y
Veöriö kl. 6 í morgun
Þórður B. Þórðarson, slökkviliðsmaður og methafi í blóðgjöf:
Hef hlaupið í og úr vinnu í sextán ár
DV, Suðurnesjum:
„Eg er búinn að vera síðustu
áratugina að hvetja fólk til að gefa
blóð. Mér líður alltaf vel á eftir,
bæði líkamlega og andlega, og get
því ekki ímyndaö mér neitt annað
en það að gefa blóð hafl góð áhrif
á líkamann. Ég er þannig mann-
gerð að ef ég tek eitthvað í mig vil
ég halda því áfram og þess vegna
hef ég gefið blóð svona lengi og
mun halda því áfram meðan ég hef
heilsu,“ segir Þórður B. Þórðar-
son, íbúi i Njarðvík og slökkvOiðs-
maður á Keflavikurflugvelli, en
hann er sá blóðgjafl sem oftast hef-
ur gefið blóð, alls 115 sinnum.
Maður dagsins
Þórður byrjaði að gefa blóð árið
1961 þegar hann var í Stýrimanna-
skólanum. Hann var farmaður til
ársins 1972 og reyndi þá aö fara í
Blóðbankann þegar hann kom í
land. Frá því hann byrjaði í
slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli
1972 hefur hann geflð blóð fjórum
sinnum á ári. Þegar hann gaf blóð
í hundraðasta sinn fékk hann
glæsilegt vasaúr úr gulli að gjöf.
Þórður B. Þórðarson.
Þórði líkar vel að starfa í
slökkvUiöinu þar sem hann er
flokksstjóri: „Þetta er virkilega
gott starf og uppbyggjandi og er
maður endalaust að læra eitthvað
og kynnist mörgu fólki.“ Þórður
verður 55 ára í þessum mánuði og
heldur sig í góðu formi: „Það er
góð titfinning að vera léttur á sér
á þessum aldri. Trimmið er hluti
af mínu lífi. Ég hætti að reykja
fyrir 29 árum og þá byijaði ég að
trimma á sjónum, sippaði á þilfar-
inu og gerði æflngar niðri í lest.
Þegar ég svo kom í hafnir úti á
landi fór ég á fjöll. Síðan 1976 hef
ég verið að lyfta og hlaupa og er
búinn að hlaupa í og úr vinnunni
í sextán ár. Þetta þótti í fyrstu
skrítið og margir töldu mig rugl-
aðan sérvitring, en í dag er þetta
litið allt öðrum augum og nú þyk-
ir sjálfsagt að hlaupa og hreyfa
sig. Á hverjum morgni þegar ég er
ekki á vakt fer ég í sund og svo má
ekki gleyma þjálfuninni á stöð-
inni, sem er skylda.
Skemmtilegast þykir Þórði að
fara í fjallaferðir og ganga um há-
lendið með félögum sínum. Þá er
íjölskyldan og heimilið alltaf ofar-
lega í huga hans. Eiginkona hans
er Helga Magnúsdóttir, kennari í
Gnmnskóla Njarðvíkur. Þau eiga
saman tvíburana Olgu Björt og
Kristján Inga, 23 ára, og Ingi-
björgu, 16 ára. Þórður átti fyrir
einn son, Ásmund Bergmann, 32
ára.
4 D73
M 1065
4 9752
* KG8