Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Síða 24
32 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996 Sviðsljós Charlie Sheen í skilnaði Leikarinn Charlie Sheen er nú fjarri hlýju hjónasængurinn- ar því hann og eiginkona hans til fimm mánaða eru skilin. „Hjónabandinu er lokið. Það fór ekki eins og ég ráðgerði,“ sagði Charlie karlinn sem fannst hann vera aö því kominn að kafna í ástríkum faðmlögum Donnu Peele. Kærustupar á Breiðvangi Þegar leikarinn Matthew Broderick snýr aftur á Breið- vang í New York í næsta mán- uði til að leika í leikritinu Hvemig maður gerir það gott í viðskiptum án þess að hafa fyrir því, mun hann kannast við stúlkuna sem leikur kærustu hans í stykkinu. Það verður eng- in önnur en Sarah Jessica Park- er, kærastan hans í alvörunni. Matthew var í fríi frá leikritinu við upptökur á mynd með Jim Carrey. Það var heitt í Ríó þegar sambaskólarnir fóru fylktu liði um götur borgarinnar í vikunni, með tilheyrandi mjaðmahnykkjum og eggjandi atferli, en þær göngur eru hátindur kjötkveðjuhátíðarinnar sem er engu lík. Símamynd Reuter Aukablað um ULJOMTÆKI Mibvihudaginn 28. fehrúar mun aukablað um hljómtæki fylgja DV. Hákon Noregsprins er hættur með Cathrine Þungu fargi er nú létt af þeim konungshjónum í Noregi, Haraldi og Sonju. Þau þurfa ekki lengur að glíma við að svara hinni áleitnu spurningu um hvort ung stúlka sem á fortíð sem nærfatasýningarstúlka geti átt framtíð fyrir sér sem drottn- ing. Sýningarstúlkan Cathrine Knudsen. Hákon, ríkisarfi Noregs, er sem sé búinn að segja kærustunni upp, hinni 21 árs gömlu sýningarstúlku Cathrine Knudsen. Þau höfðu verið saman í tvö ár. Unga parið var saman yfir jól og áramót í skíðakofa og því komu fréttirnar um skilnaðinn eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hákon bauð stúlkunni þó i piparsveinaí- búð sína í Bergen þar sem þau ræddu málin og ákváðu að skilja sem góðir vinir. Krónprinsinn heldur til Banda- ríkjanna í haust til að nema samfé- lagsfræði en nú hefur Cathrine hætt við fyrri áform sín um að fara vest- ur um haf líka til að afla sér frekari menntunar. Haraldur og Sonja skiptu sér aldrei af ástarmálum barna sinna en fréttir herma að Marta Lovísa prinsessa sé líka hætt með kærast- anum, hinum hollenska Leon de Rooy. Miðvikudaginn 28. febrííar mun auka- blað um hljómtækiDV. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verður fjallað um flest það er við- kemur hljómtækjum. Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að hafa samband við Hauk Lárus Hauksson á ritstjórn DV, í síma 550-5843 fyrir 20. febrúar. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði um hljómtæki, vinsamlega hafi samband við Arnar Ottesen, auglýsingadeild DV, hið fyrsta ísíma 550-5723. Nýjar uppljóstranir um fyrsta ástarfund Játvardar prins á Englandi: Glataði sveindóminum í faðmi herbergisþernu „Eg sagði: Er það satt sem sagt er um karlmenn í Skotapilsi? Eruð þið í einhverju undir því? Þá sagði hann: Það er þitt að komast að því. Það var merkið sem hann gaf mér.“ Sú sem svona segir frá er Michelle Riles, fyrrum herbergis- þerna bresku konungsfjölskyldunn- ar, og maðurinn sem hún er aö tala um er enginn annar en Játvarður prins, yngsti sonur Elísabetar Eng- landsdrottningar. Þetta ýar kvöldið sem prinsinn glataði sveindóminum í hlýjum faðmi þjónustustúlkunnar. Og Michelle heldur á fram: „Við kysstumst heitt og innilega og ég þreifaði undir pilsið og kom Herbergisþernan lostafulla, Mich- elle Riles, forfærði prinsinn unga. við bossann á honum. Hann var ber og ég færði höndina hægt og bítandi fram á við. Hann hætti að kyssa mig og sagði: Við ættum ekki að vera að þessu, er það? Ég sagði: Nei, í raun- inni ekki en við ættum samt að koma okkur úr spjörunum. Ég hélt að hann mundi segja nei en hann fór úr öllu og ég gerði það líka.“ Og það var ekki að sökum að spyrja. Unga fólkið, hann aðeins átj- án ára gamall en hún 22 ára, hrað- aði sér í rúmið og átti í ástríðufull- um ástarleik skamma stund. „Þessu lauk nú fremur fljótlega. Þetta var nú ekki það besta sem ég hef lent í,“ segir Michelle og bætir við að það sé nú samt ákaflega spennandi að hafa gert það með prinsi. Forfæringin átti sér stað í Balmoralkastala og sváfu drottning og eiginmaður hennar í herbergi á sama gangi og prinsinn. Sem betur fer heyrðist ekki hátt í stráksa. En Játvarður prins var ekki eini maðurinn í Buckinghamhöll sem Michelle lokkaði upp í rúm til sín. Hún hafði áður tælt hestasveina drottningar en að sögn hennar komst ekkert í hálfkvisti við ástar- ævintýrið með Játvarði. Húsbænd- ur og hjú í æðra veldi. I Mongóltu er það nýjasta tíska meðal glæsikvenna að klæðast pelsum úr hundaskinni, eins og þessum sem sjást hér. Að sönnu glæsilegar flíkur og hlýjar á köldum vetrardögum. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.