Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Fréttir
Islendingur varð vitni að skotbardaganum við Kastrupflugvöll:
Blóðið spýttist úr
sári á síðu mannsins
- segir Ágúst Erlingsson um þann sem lést í árásinni
„Ég þakka mínum sæla fyrir
að hafa verið heldur seinn fyrir.
Ég ætlaði að taka strætisvagn af
ákveðinni stoppistöð en þessir
hörmungaratburðir voru rétt um
garð gengnir þegar ég loksins
fann hana. Hefði ég vitað ná-
kvæmlega hvar hún var hefði ég
orðið vitni að þessu og hugsan-
lega lent í átökunum miöjum,"
segir Ágúst Erlingsson, íslending-
ur búsettur í Kaupmannahöfh, en
hann var staddur við Kastrup-
flugvöll þegar til skotbardaga
kom milli tveggja gengja í gær.
„Ég mætti öskrandi lögreglu-
manni með talstöð á lofti, varð
forvitinn að hætti íslendinga og
ákvað að athuga hvað hefði gerst.
Greinilegt var að notaðar höfðu
verið vélbyssur því ég kom að
tveimur sundurskotnum bílum.
Aftur í öðrum bflnum lá illa
særður maður og rétt fyrir utan
Ágúst Erlingsson.
hann annar sem tveir ungir lög-
reglumenn voru að stumra yflr.
Sá var greinilega úr öðru genginu
því hann var í skotheldu vesti. Ég
sá að lögreglumennirnir reyndu
hjartahnoð en þá spýttist blóð úr
sári á síðunni, undir handarkrik-
anum. Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir lögreglumannanna dó
strákurinn í höndunum á þeim.“
Ágúst segir atburðinn í gær
vera „hrikalega reynslu" fyrir
saklausan Islendinginn en stað-
reyndin sé bara að Kaupmanna-
höfn sé að verða eins og aðrar
stórborgir þar sem glæpir verði æ
algengari.
„Ég vona að svona nokkru eigi
ég ekki eftir að lenda í aftur. Ég
er enn í sjokki og það líður örugg-
lega einhver tími þar til maður
jafnar sig algerlega," segir Ágúst.
-sv
Eiríkur Jónsson:
Sveitar-
félögin taka
afstöðu með
fjármála*
ráðherra
„Fulltrúaráö Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga gengur út frá
því að lífeyrisréttur starfsmanna
rikisins verði skertur. Sveitarfélög-
in blanda sér því með beinum hætti
inn í deiluna sem hefur verið á
milli okkar og fjármálaráðherra,"
segir Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarafélags íslands, í samtali við
DV í gær.
Fulltrúaráöið kom saman í Borg-
arnesi um helgina og samþykkti
ályktun um kostnað við flutning
grunnskólanna til sveitarfélag-
anna. Að sögn Eiríks byggist sam-
komulagið sem fúlltrúaráðið gerði
við ríkið ekki á gildandi lögum um
lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins
eða kostnaö vegna hans heldur
lagafrumvarpinu nýja sem er að
gera ailt vitlaust.
„Þetta er algerlega óásættanlegt.
Þeir byijuðu á því að samþykkja
ályktun um aö ekki yrði um skerð-
ingar á lífeyrisréttindum að ræða.
Áhrif lifeyrisskuldbindinga í flutn-
ingi tekjustofna er í samræmi við
tillögu kostnaöárnefndar og þar er
gert ráð fyrir skerðingu. Þeir byrja
á því að samþykkja að ekki eigi að
skerða en staðfesta skerðingu síðan
í samkomulaginu. Það er eins og
þeir hafi ekki vitað hvað þeir voru
að gera. Þó þeir hafi náð samkomu-
lagi um kostnaðarskiptingu fellum
við okkur aldrei viö að lífeyrisrétt-
indi fólks skeröist. Þetta er hið
versta mál en við höldum áfram í
þessu stríöi og reynum aö vinna
okkar mál áfram,“ segir Eiríkur.
„Viö leggjum þann skilning í
málið aö lífeyrisréttindi séu ekki
skert enda lögöum við áherslu á
þaö. Fundarmenn voru bærilega
sáttir viö samkomulagið og fundur-
inn samþykkti þaö,“ segir Þórður
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
bands Islenskra sveitarfélaga. -em
Mikil leit var gerð á Selfossi um helgina að Agnesi Eiríksdóttur. Hún fannst
látin í gærdag. DV-mynd Kristján
Konan sem leitað var að:
Fannst látin
Agnes Eiríksdóttir, konan sem leit-
að var að á Selfossi frá því aðfaranótt
laugardags, fannst látin um klukkan
14 í gær. Lík hennar fannst í Ölfusá á
móts við bæinn Kirkjuferju. Það voru
leitarmenn í slöngubát frá björgimar-
sveitinni Tryggva á Selfossi sem
fundu Agnesi. Að leitinni stóð fjöldi
karla og kvenna úr björgunarsveit-
inni á Selfossi og Ámessýslu, auk
sporhunda. Agnes lætur eftir sig eig-
inmann og tvö uppkomin böm. -sv
Veðurguðirnir gerðu mönnum lífið leitt um helgina. Starfsmaður Háskólans lenti í kröppum dansi við fánastangirn-
ar, Kári feykti þeim um koll, og snjór og hálka olli því að óvenjumargir árekstrar urðu í Reykjavík á laugardag.
DV-mynd S
Reykjavík:
Óvenjumargir árekstrar
Óvenjumargir árekstrar urðu í
Reykjavík i ófærð og leiðindaveðri á
laugardaginn. Lögreglumaður sem
var á vakt sagði að þegar hann hefði
farið heim af dagvakt hefðu árekstr-
amir veriö farnir að nálgast þrjátíu.
Þó megi reikna með að þeir hafi
verið mun fleiri því lögreglunni sé
ekki tilkynnt um alla árekstra. Ekki
er óvarlegt að áætla að um 70 bUar
hafi skemmst í hamaganginum.
Stærsti áreksturinn varð á Suður-
landsvegi við Rauðhólaafleggjarann
en þá lentu fjórir bUar saman. í
þremur tUvikum var um minni
háttar meiðsl að ræða en gera má
ráð fyrir töluverðu eignatjóni.
-sv
Stuönings-
hópur í
biskupsmáli
„Stundum þarf peninga tU þess að
mannréttindi nái fram að ganga því
sumir eiga meira af þeim en aörir. Á
fundinum var rætt hvað hægt væri að
gera tU stuðnings konunum ef tU lög-
fræðikostnaðar kæmi,“ segir Sigríður
Kristinsdóttir, talsmaður þeirra þrjá-
tíu kvenna sem stofnuðu hóp tU stuðn-
ings Sigrúnu Pálínu og Stefaníu sem
sakað hafa biskup um kynferðislega
áreitni og nauðgunartilraun. -em
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringia í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
,r ö d l
FOLKSIN
904-160
Á að taka á ný upp
Geirfinnsmálið
fyrir dómstólum?
Já jJ
Nei 2]
Stuttar fréttir
Vondir ráðgjafar
Séra Geir Waage telur að
biskup íslands hafi valið sér
vonda ráðgjafa þegar hann
fékk tvo hæstaréttarlögmenn
tU að aðstoða sig viö lausn á
sínum vanda. Útvarpið greindi
frá þessu.
Starfslok 67 ár
Stefnt er að því að starfsloka-
aldur starfsfólks Landsbank-
ans lækki úr 70 árum í 67.
Morgunblaðiö greindi frá.
Innanlandsflug lá
niðri
Allt innanlandsflug Flug-
leiöa lá niðri frá hádegi í gær
vegna ókyrrðar og ísingar í
lofti. Útvarpið greindi frá
þessu.
Helmingur andvígur
Ríflega helmingur aðspurðra
var andvígur afsögn Ólafs
Skúlasonar. Tíminn greindi frá
þessu.
Erlendar skuldir
greiddar
íslendingar eru famir að
greiða niður erlendar skiUdir.
Stöö 2 greindi frá þessu.
Óvarðar vörur
hættulegar
Stjóm Bakarameistarafélags
íslands leggur áherslu á að vör-
ur eigi ekki að selja óvarðar og
án umbúða og benda á rjóma-
bolluslysið.
Reykjavíkurflug-
völlur
Reykjavíkurflugvöllur upp-
fyllir ekki skilyrði Alþjóðaflug-
málastofnunar um öryggi á
flugvöllum. Útvarpið greindi
frá því.
Sölumiðstöð
landbúnaðarins
Búnaðarþing vili að stofnuð
verði Sölumiðstöð landbúnað-
arins til að hafa umsjón með
öUum útflutningi á kjöti. Út-
varpið greindi frá þessu.
Fólínsýra fyrir
ófrískar
Fólínsýra dregur úr fæðing-
argöllum, meðal annars klofn-
um hrygg. Danir taka upp eftir
íslendingum að nota fólínsýru.
Útvarpið greindi frá þessu.
Undirbýr eignarnám
Bæjarstjórn Garðabæjar
undirbýr að taka eignamámi
35 hektara lands á Amames-
hálsi. Sjónvarpið greindi frá
þessu.
-em