Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996 39 Fréttir Bílaviðgerðir Bfólks- ÍLALAND ehf. <S*567 3990 íslandsmeistaramót í 10 dönsum: Flestir bestu samkvæmis- dansararnir kepptu BHdshStOa 20-112 Revklavlk - Slml 587 1410 Laugardaginn 9. mars voru flestir bestu samkvæmisdansarar íslands saman komnir til að keppa um hinn eftirsótta íslandsmeist- aratitil í 10 dönsum. Þegar keppt er í 10 dönsum eru dansaðir 5 suð- uramerískir og 5 standarddansar og stig allra þessara dansa síðan lögð saman. Það par sem hefur bestu heUdarútkomuna sigrar. 5 erlendir dómarar dæmdu keppnina. Hér á eftir fara nokkrar um- sagnir um þau pör sem vöktu at- hygli mína. Dans Þröstur R. Jéhannsson 12-13 ára Hafsteinn Jónasson, Laufey Karitas Einarssdóttir (1. sæti): Herrann einstaklega hæfUeikarík- ur og hefur góða tilfinningu fyrir suðuramerísku dönsunum. Hann verður sífellt öruggari í framkomu og gefur þar af leiðandi mun meira af sér á dansgólfmu en hann gerði áður. Daman þyrfti að leggja meiri áherslu á fótaburð og þá sér- staklega að íhuga beitingu á ökkl- um og hnjám, tU að bæta frammi- stöðu sína enn frekar. Haraldur Anton Skúlason, Sigrún Ýr Magn- úsdóttir (3. sæti): Áttu góðan dag og fannst mér þau dansa vel, sér- staklega í standarddönsum. Her- rann er oftast með líkamsþungann of aftarlaga í suðuramerísku döns- unum sem heftir hann töluvert í þeim. Sigurður Hjaltason, Kristín María Tómasdóttir (5. sæti): Komu svo sannarlega á óvart á þessu móti. Dönsuðu bæði þokkalega vel og þá sérstaklega suðuramerísku dansana. Þurfa nú að leggja meiri áherslu á standarddansana til að eiga möguleika á enn betri árangri í 8 dansa mótum. 14-15 ára Eyþór Gunnarsson, Berglind Petersen (1. sæti): Eru eingöngu búin að dansa saman í rúmt ár en ná þó að sigra í þessum gífurlega sterka riðli. Höfuðstaða hjá Eyþóri hafði fyrr í vetur ekki verið nógu góð, sem hafði slæm áhrif á dans- stöðuna hjá þeim báðum, en nú virðist hann vera búinn að ná tök- um á því og voru standarddans- amir hjá þeim sannarlega glæsi- legir. Frábær árangur hjá þessu efnilega pari. Benedikt Einarsson, Gerum við flestar gerðir fólksbíla BREMSUUIÐGERÐIR STILLINGAR PÚSTKERFI HÖGGDEYFAR KÚPLINGAR næ sérfræðingar ástaðnum! Matarstell og borðbúnaður í miklu úrvali á hreint frábæru verði. Verðdæmi: Atelier matarstell frá Ancher Iversen í Danmörku. Matardiskur kr. 230,- súpud.kr.230,- kafftbolli m/undirskál kr. 230,- kökudiskur kr. 230,- Allir aðrir fylgihlutir til. Má setja í uppþv.vél. Danslínurnar voru í góðu lagi hjá Dóris Ósk Guðjónsdóttur og Snorra Eng- ilbertssyni sem urðu í fjórða sæti í aldursflokknum 12-13 ára á íslandsmót- inu í 10 dönsum sem fór fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. DV-mynd Teitur Berglind Ingvarsdóttir (2. sæti): Einnig mjög góður árangur hjá þessu unga og efnilega pari. Sýndu góða takta í suðuramerísku döns- unum og voru að mínu mati best í þeim í þessum aldiirsflokki. Sigur- steinn Stefánsson, Elísabet Sif Haraldsdóttir (3. sæti): Það þarf enginn að efast um þá hæfni og hæfíleika sem þetta par býr yfir í suðuramerísku dönsunum en þó var eins og einhvern neista vant- aði hjá þeim sem þau venjulega hafa. 16-18 ára Þorvaldur S. Gunnarsson, Jó- hanna Ella Jónsdóttir (1. sæti): Sigruðu auðveldlega í þessum riðli. kepptu einnig í aldursflokkn- um 16 ára og eldri og ekki þætti mér ólíklegt að þau hefðu tekið nokkur stig frá sigurvegurunum þar, í .standarddönsunum, einkum vegna góðrar klassískrar dans- stöðu. 16 ára og eldri Árni Þór Eyþórsson, Erla Sóley Eyþórsdóttir (1. sæti): Eru bæði mjög miklar keppnismanneskjur og nálgast það sem þau eru að gera eftir því, þ.e.a.s. af miklum aga og eljusemi. Ég tel samt sem áður ólíklegt að þau hafi sigrað í öllum 10 dönsunum en þar sem þau voru jöfnust yfir heildina fannst mér þau hafa unnið mjög verðskuldugan sigur. Eggert Thor- berg Guðmundsson, Karen Björk Björgvinsdótir (3. sæti): Dönsuðu mjög góða suðurameríska dansa. Daman er einstaklega kröftugur og sterkur dansari og býr yfir miklum hraða í öllum snúningum- sem hún framkvæmir. í stand- arddönsunum þykir mér herrann helst til stífur í dansstöðunni. Óopinber heimsmeistara- keppni. í byrjun apríl munu flest af sterkustu pörum íslands ásamt foreldrum og þjálfurum halda til Blackpool í Englandi til að taka þátt i einu stærsta og sterkasta dansmóti sem haldið er fyrir dans- ara undir 16 ára aldri. Þar koma saman sterkustu dansarar hvaðanæva úr heiminum til að leiða saman hesta sína. Dansar- arnir skipta hundruðum og stend- ur keppnin því yfir í heila 5 daga. Þrátt fyrir að við íslendingar séum tiltölulega nýbyrjaðir að taka þátt í slíkum keppnum hefur unga fólkið okkar náð feiknalega góðum árangri á undanfornum árum og höfum við átt dansara sem náð hafa úrslitasætum og jafnvel sigrað í þessari keppni. Keppnina dæma margir þekkt- ustu þjálfarar og dómarar í heim- inum í dag. í haust átti ég stutt samtal við einn af þeim dómurum sem dæmdu keppnina í fyrra. Hann gat ekki orða bundist yfir áhuga og einbeitingu íslensku dansaranna og fannst ótrúlegt hversu vel þeim hefur gengið mið- að við það hversu stutt er síðan ís- lendingar hófu að taka þátt í slík- um keppnum. Það verður mjög spennandi að fylgjast með árangri íslensku dan- sparanna og óska ég öllum þeim sem ætla að taka þátt i keppninni í ár góðs gengis. Aukablað um Miðvikudaginn 27. mars mun aukablað um mat og kökur fylgja DV. Séra Ragnar Fjalar víkur sæti: Fannst ég búinn að taka afstöðu „Ég vík sæti af fúsum og frjálsum vilja í máli Sigrúnar Pálínu og Stef- aníu vegna þess að þeim fannst ég búinn að taka afstöðu," segir séra Ragnar Fjalar Lárusson í samtali við DV. Ragnar Fjalar vék sæti á meðan Siðanefnd Prestafélagsins fjallar um mál kvennanna tveggja. „Ályktun okkar prófastanna var harðorð og ég staðfesti í þætti að ég áliti að yfirlýsing biskups um sak- leysi sitt væri sönn. Konurnar kvörtuðu yfir þessu og mér fannst sjálfsagt að víkja. Ég gat ekki neitað því að ég hefði tekið afstöðu með biskupi en það þýðir ekki endilega að konurnar ljúgi. Það gætu verið einhverjar aðrar ástæður sem valda því að þær bera þetta fram þó þær séu ekki beinlínis að ljúga,“ segir Ragnar Fjalar. -em Fjallað verður um matartilbúning fyrir páskana. Uppskriftir að kökum, brauðréttum og ostaréttum verða birtar. Sagt verður frá páska- siðum o.fl, Þeir sem áhuga hafa á að koma efni í blaðið hafi samband við Ingibjörgu Oðinsdóttir, ritstjórn DV, í síma 567 6993. Auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550 5720. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtudagur 21. mars. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.