Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 5
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Fréttir
5
Rýmingaráætlanir vegna snjóflóða:
Bráðabirgða-
fyrirkomulag
til að tryggja
öryggi íbúa
Veðurstofa Islands hefur unnið
rýmingaráætlanir í samráði við Al-
mannavarnir ríkisins og heima-
menn staða þar sem talin er snjó-
flóðahætta. Áætlanirnar byggja á
því að hverjum þéttbýlisstað er
skipt í reiti með tilliti til snjóflóða-
farvega og snjósöfnunaraðstæðna.
Reitaskiptingin er skilgreind á
grundvelli skráðrar snjóflóðasögu,
staðarþekkingar heimamanna,
skriðlengdar snjóflóða samkvæmt
reiknilíkönum og mats snjóflóðasér-
fræðinga á aðstæðum. Telji sérfræð-
ingar að veðurspá og athuganir á
staðnum bendi til yfirvofandi hættu
á snjóflóðum á ákveðnum svæðum
verða tilteknir reitir rýmdir.
Rýmingaráætlanirnar fela ekki í
sér snjóflóðahættumat og þær hafa
ekki áhrif á skipulag, byggingu
varnarvirkja, uppkaup eigna eða
aðrar slíkar ákvarðanir. Um er að
ræða bráðabirgðafyrirkomulag sem
á að tryggja öryggi íbúa á viðkom-
andi svæðum meðan verið er að afla
fyllri þekkingar, setja reglur um
hættumat og notkun þess og reisa
varnarvirki gegn snjóflóðum. Rým-
ingarreitir eru að því leyti frá-
brugðnir hættusvæðum, eins og þau
eru skilgreind í hefðbundnu hættu-
mati, að ekki er verið að afmarka
svæði þar sem hætta á snjóflóðum
er yfir tilteknum viðmiðunarmörk-
um. -IBS
Veðurstofan hefur unnið rýmingaráætlanir í samráði við Almannavarnir
ríkisins og heimamenn staða þar sem talin er snjóflóðahætta.
W>;
Reglugerð um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum:
Varnarvirki reist
nema húsakaup
séu hagkvæmari
Umhverfisráðherra hefur gefið út
reglugerð um varnir gegn snjóflóð-
um og skriðufóllum. Þar eru meðal
annars settar reglur um þáttöku Of-
anflóðasjóðs í gerð varnarvirkja og
um uppkaup og flutning á húseign-
um í sveitarfélögum sem búa við
snjóflóðahættu. Er Ofanflóðasjóði
heimilt að greiða allt að 90 prósent
af kostnaði við gerð varnarvirkja
vegna ofanflóða eða kaup eða flutn-
ing á húsnæði á hættusyæðum.
Samkvæmt reglugerðinni skal að
jafnaði bregðast við snjóflóðahættu
með því að reisa varnarvirki nema
það sé talið hagkvæmara að kaupa
eða flytja húseignir. Náist ekki sam-
komulag um kaup á húseign er
sveitarstjórn heimilt að taka eign-
ina eignarnámi.
Ofanflóðasjóður greiðir kostnað
við rannsóknir sem miða að því að
bæta hönnun varnarvirkja og
hættumat. Hvorki má byggja á
óbyggðum hættusvæðum né þétta
þá byggð sem fyrir er fyrr en tO-
skildum varnarvirkjum hefur verið
komið upp.
Umhverfisráðherra hefur, að
höfðu samráði við stjórnendur hlut-
aðeigandi sveitarfélaga, falið Veður-
stofu íslands að gera úttekt á snjó-
flóðavörnum þar sem meðal annars
yrði gerð grein fyrir snjóflóðahættu
og áætluðum kostnaði við nauðsyn-
legar snjóflóðavarnir. Auk Veður-
stofunnar munu erlendir sérfræð-
ingar vinna að úttektinni. Gert er
ráð fyrir að niðurstöðum verði skil-
að um mitt þetta ár. -IBS
Efþú kaupir Bose
hátalara af gerðunum
Acoustimas Am5, Am7,
Bose 501, 701 eða 901
færðu 2 stk. hátalara
Bose 100í kaupbæti
að verðmæti kr. 19.980.
Bose Acoustimass Am5
( 2 hátalarar og bassabox ) -
79.900
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt
Þaö fer ekki mikið fyrir
litlu orkuverunum frá Bose.
en áhrifin eru stórkostleg.
Bose Acoustimass
„Direct/Reflecting*®
Stereo alls staöar!
rFBSSBBSg
TIL ALLT AO 38 MANAW
Bose stereo
- alls staöar!
Lifandi tónleikar Venjulegir hátalarar
Kauptu
eittog
táðu
annað
hátalara-
sett frítt!
t$>
t$>
t$>
t$>