Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Utlönd
Hóta fleiri
sprengjutilræðum
Hamassamtökin hafa hótað
fleiri sjálfsmorðssprengjuárás-
um í kjölfar handtöku Frelsis-
samtaka Palestínu, PLO, á þrem-
ur leiðtogum Hamas og vegna
hertra aðgerða ísraela.
Yfirvöld í ísrael lýstu 1 gær
yfir ánægju sinni með handtök-
urnar og tilkynntu að þau
myndu létta á ferðabanni íbúa
Vesturbakkans í dag til að þeir
gætu safnað að sér vistum.
Palestínumenn mega hins vegar
enn ekki koma til ísraels. Marg-
ir Palestínumenn hafa fordæmt
sprengjutilræðin en segja jafn-
framt að harðar refsiaðgeröir
ísraelsmanna hafi lamað líf á
Vesturbakkanum og valdið
skorti á nauðsynjavörum á viss-
um svæðum.
Talsverðar vonir eru bundnar
við leiðtogafundinn á miðviku-
daginn í Kaíró um hryðjuverk í
Mið-Austurlöndum. Fulltrúar 31
ríkis, þar á meðal Clinton
Bandaríkjaforseti og Jeltsín
Rússlandsforseti, munu sitja
fundinn. Reuter
Mótorhjólagengin Hells Angels og Bandidos í stríði:
Skotbardagar í Ósló
og Kaupmannahöfn
- einn lést og Qórir særðust á Kastrup og Fornebu
Einn maður lét lífið og Qórir
særðust í skotbardögum milli mót-
orhjólagengja á Kastrupflugvelli í
Kaupmannahöfn og Fornebuflug-
velli í Ósló síðdegis í gær. Að sögn
lögreglu virtust atburðimir í gær
vera hluti af alþjóðlegu stríði milli
Hells Angels og Bandidos hópanna.
Sjónarvottar greindu svo frá að
hinir særðu hefðu hlaupið blóðugir
inn í komusal Kastrupflugvallar eft-
ir skotbardagann og þar hefðu þeir
hnigið niður fyrir framan hundruð
farþega sem voru að koma með
l árs afmælistilboð hjá
LA BAGUETTE
Heildsöluverð út þessa vihu á öllum tertum,
smjördeigi með fyllingum og böfeum.
Frystivöruverslun
Efeta fransfet.
NYTT - HRAÐRETTIR
Kaupið núna fyrir ferminguna
LA BAGUETTE
Glæsibæ - Sími 588-2759
OPIÐ: mán-fimmtud. 12-18, föstud. 12-19, laugard. 10-14
Q| UTBOÐ
F.h. Sjúkahúss Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í viðhald tækja á röntgendeild. Út-
boðsgögn verða seld á 1.000 kr. á skrifstofu vorri frá og með miðvikud. 13. mars nk.
Opnun tilboða: fimmtud. 11. apríl nk. kl. 11.00.
shr 26/6
F.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í blóðtökukerfi. Útboðsgögn verða
seld á 1.000 kr. á skrifstofu vorri. Opnun tilboða: þriðjud. 9. apríl nk. kl. 11.00.
shf 27/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í lóðarframkvæmdir
við leikskólann Ásgarð ásamt frágangi á sameiginlegri lóð leikskólans og íbúðarblokkar
í eigu Félagsst. stúdenta. Heildarstærð lóðar er um 2.100 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: miðvikud. 27. mars nk. kl. 14.00.
bgd 28/6. _______________________________________________
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur, Gatnamálastjóra, Símstöðvarinnar í Reykjavík og Raf-
magnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í endurnýjun veitukerfa og gangstétta
1. áfanga 1996 - Sund. Götumar sem endurnýjað er við eru: Holtavegur, Efstasund,
Skipasund og Sæviðarsund.
Helstu magntölur eru:
Hitaveitulagnir í plastkápu, alls um 5.250 m
Skurðlengd 6.700 m
Malbikun 1.800 m2
Steyptar gagnstéttir 4.900 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og með þriðjud. 12. mars nk. gegn
15.000 kr. skilatr. Opnun tilboða: þriðjud. 26. mars nk. kl. 11.00.
hvr 29/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræöings er óskað eftir tilboðum í frágang viðbygg-
ingar að utan og gerð lóðar við Grandaskóla.
Helstu magntölur:__
Plötúklæðning útveggja 455 m2
Múrkerfi á útveggi 580 m2
Frágangur þaka 1.120 m2
Gluggar, gler og hurðir 240 m2
Lóð 2.500 m2
Verkinu á að vera lokið 1. ágúst 1996. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá og
með þriðjud. 12. mars nk. gegn 15.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 28. mars nk. kl. 14.00.
bíd30/6 ______________________________________________
INNKAUPASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
Lögregla breiöir yfir lík eins meðlima Bandidos mótorhjólagengisins á
Kastrupflugvelli í gær.
leiguflugi frá útlöndum.
„Ég heyrði hávaða eins og í flug-
eldum og síðan heyrðist hljóð eins
og gler hefði brotnað. Það voru blóð-
poflar í komusalnum," sagði einn
sjónarvotta í viðtali við danska
Símamynd Reuter
sjónvarpsstöð.
Tveir byssumenn komust undan í
bíl og lögreglan leitaði þeirra í
Kaupmannahöfn. Þrjátíu meðlimir
mótorhjólagengjanna voru hand-
teknir á flugvellinum eftir skotbar-
dagann.
Danska lögreglan sagði að talið
væri að meðlimir Bandidos hefðu
verið að koma til Kaupmannahafn-
ar frá helgarfundi í Helsinki þegar
byssumenn Hells Angels réðust á þá
fyrir utan flugvallarbygginguna.
í Ósló var maður fluttur á sjúkra-
hús eftir að hafa verið skotinn í
brjóstið. Norska sjónvarpið greindi
frá því að hinn slasaði væri meðlim-
ur í Bandidos genginu. Lögreglan í
Ósló handtók fimm menn vegna
skotárásarinnar þar.
Á undanförnum árum hafa skær-
ur milli mótorhjólagengja farið vax-
andi í Skandinavíu. Finnska lög-
reglan sagði fyrir helgina að hún
væri viðbúin átökum mifli mótor-
hjólagengjanna eftir að maður slas-
aðist í skotbardaga í miöborg
Helsinki þann 1. mars síðastliðinn.
Tfl átaka kom einnig milli gengja í
Helsingborg í Suður-Svíþjóð í síð-
UStU viku. Reuter
búi í hverfinu llidzia í Sarajevo, sem verið hefur undir yfirráðum Serba, gengur hér með eigur sínar í hjólbörum fram
hjá brunarústum. íkveikjur eru tíðar í hverfinu og kölluðu NATO-foringjar á slökkvilið Bosníumanna eftir að íbúarnir
höfðu farið fram á aðstoð. Símamynd Reuter
Elísabet drottning sparar:
Ferðaðist með
almenningslest
Stuttar fréttir
Elisabet Englandsdrottn-
ing hefur ákveðið að grípa
til aðgerða til að bæta
ímynd bresku könungsfjöl-
skyldunnar, að því er
breska blaðið The Sunday
Times greindi frá í gær.
Blaðið segir að drottning-
in hafi áhyggjur af því að
vinsældir konungsQölskyldunnar
séu famar að dala. Þess vegna hafi
hún meðal annars ákveðið aö draga
úr ferðakostnaöi og er nefnt að áætl-
aður spamaður muni nema mifljón-
um punda.
Á fostudaginn ferðaðist drottning-
in með áætlunarlest til ákvörðunar-
staðar utan við London í stað þess
að ferðast með sérstakri konung-
legri lest. Heimildarmenn innan
Buckinghamhallar segja að drottn-
ingin muni ferðast oft á þennan hátt
í framtíðinni.
Drottningin hefur einnig svipt
hertogaynjuna af Jórvík, fyrram
eiginkonu Andrésar prins, þeim
réttindum að ferðast
ókeypis.
Árið 1992 braut drottn-
ingin aldagamlar hefðir er
hún samþykkti að greiða
tekjuskatt.
Niðurstöður nýlegra
skoðanakannana sýna að
Bretar eru búnir að fá nóg
af hinni endalausu konunglegu
sápuópera en í henni her nú hæst
skilnað Díönu og Karls. Breskt blað
greindi frá því í síðustu viku að
Díana prinsessa krefðist þriggja
milljarða króna í greiðslu við skiln-
aðinn frá Karli prinsi. t skoðana-
könnun breska hlaðsins The Sun í
síöustu viku vildu 5.000 manns að
Elísabet drottning yrði síðasti kon-
unglegi þjóðhöfðingi Bretlands en
3.190 vildu áfram konungdæmi.
Önnur skoðanakönnun sýndi að 77
prósent lesenda vildu að Vilhjálmur
prins yrði næsti konungur Bret-
lands en ekki faðir hans Karl.
Reuter
Afram heræfingar
Kínverjar ætla að halda áfram
tilraunum með flugskeyti og
stríðsleikjum við Taívan að lokn-
um forsetakosningum þar.
Senda flugmóðurskip
Bandaríkin senda flugmóður-
skip i átt að Taívan um leið og
þeir vara Kínverja við frekari að-
gerðum.
Gefast ekki upp
Karadzic, leiðtogi Bosníu-
Serba, og yfirmaður herafla
hans, Mladic, sem eftirlýstir era
vegna striðsglæpa, segjast ætla
að spyrna á móti tilraunum til að
handtaka þá.
Ekkert athugavert
Vopnasérfræðingar Samein-
uðu þjóðanna fundu ekkert at-
hugavert við leit sína í stjórnar-
byggingum í Bagdad um helgina.
Lögreglan vöruð við
ísraelskur lögreglumaður
sagði við yfirheyrslur í gær að
lögreglan hefði verið vöruð við
mögulegri tilraun til að myrða
Rabin kvöldið sem hann var
myrtur. Reuter