Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 17
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
17
I>v Fréttir
Helguvík:
Spenni-
stöð fyrir
40 milljónir
DV, Suðurnesjum:
„Stöðin verður mun minni en reikn-
að var með í upphafí því loðnuverk-
smiðjan í Helguvík ætlar ekki að vera
með rafskautsketil heldur keyra á
svartolíu. Það er enn ekki ljóst hvað
spennirinn verður stór en talað um að
bræðslan muni taka tvö megavött. Við
munu hafa hann stærri þvi við gerum
ráð fyrir að starfsemi eigi eftir að
aukast í Helguvík," sagði Július Jóns-
son, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja.
Hitaveitan setur upp spennistöð í
Helguvik sem mun kosta um 40 millj-
ónir króna. Gert er ráð fyrir að stöðin
verði komin í gagnið áður en loðnu-
bræðslan, sem SR-Mjöl er að byggja
þar, fer í gang í nóvember svo að
bræðslan geti fengið rafmagn og
einnig önnur starfsemi sem fyrir er í
Helguvík. Að sögn Júlíusar er búið að
leggja strengi í Helguvík sem geta flutt
25-30 megavött. -ÆMK
Gilsfjarðarbrúin
verður mikil sam-
göngubót
DV, Akranesi:
„Okkur líst mjög vel á að fram-
kvæmdir eru byrjaðar við Gilsfjarðar-
brúna þó brúin sé kannski ekki beint
mikil samgöngubót fyrir okkur hér í
Dalabyggð. En hún verður mikil sam-
göngubót fyrir Reykhóla og við höfum
töluvert samstarf við íbúa Reykhóla,"
sagði Marteinn Valdimarsson, sveit-
arstjóri í Dalabyggð, í samtali við
fréttamann DV.
„Dalabyggð og Reykhólar eru með
sömu heilsugæsluna og hér er mjólk
sótt og seld vestur fyrir fjörð. Þá erum
við með sama byggingafulitrúann. Og
þetta mun hafa mikil áhrif í umferð-
inni og umferðarmunstrið mun breyt-
ast með brúnni," sagði Marteinn. -DÓ
Akranes:
Verja þarf lóðir
fyrir sjávargangi
DV, Akranesi:
í flóðinu á dögunum, þegar háflæði
var sem mest, urðu nokkrar skemmd-
ir við Krókalón hér á Akranesi. Á
nokkrum stöðum féll niður jarðvegur
en engar skemmdir urðu á mannvirkj-
um.
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra á Akranesi, er ljóst að það þarf
að verja lóðirnar við Krókalón fyrir
ágangi sjávar. Áður en það er hægt
þarf að lagfæra holræsalagnir sem eru
á svæðinu. Kostnaðaráætlanir liggja
ekki fyrir en ljóst er að um nokkum
kostnað verður að ræða.
Sótt verður um framlag úr ríkis-
sjóði til að gera grjótvörn á svæðinu
en Akranesveita þarf að taka á hol-
ræsamálinu. -DÓ
Sjúkrahús Suðurnesja:
Ráðuneytisstjór-
ar væntanlegir
DV, Suðurnesjum:
„Ráðuneytisstjórarnir ætla að
koma á næstu dögum og skoða þá að-
stöðu sem hér er í heilbrigðisþjónust-
unni og í þjónustu við aldraða. Þetta
er vegna vaxandi umræðu sem verið
hefur i gangi hér undanfarið," sagði
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjóm-
ar Reykjanesbæjar, í samtali við DV í
morgun.
Suðumesjamenn eiga von á ráðu-
neytisstjórum heObrigðisráðuneytis
og fjármálaráðuneytis til að kanna að-
stöðu Suðurnesjamanna í heilbrigðis-
málum og einnig verður rætt um lag-
færingar á fjárhagsstöðu sjúkrahúss-
ins. Þá verður og rætt um minnisblað
sem sveitarstjómirnar hér syðra hafa
samþykkt um byggingu D-álmu við
Sjúkrahús Suðurnesja. -ÆMK
Sköpun arðbærra hugmynda
Námsteffna með Marsh Fisher, frumkvöðli og
framkvæmdastjóra IdeaFisher Systems Inc. í Bandaríkjunum.
Haldin að Scandic Hótel Loftleiðum,
miðvikudaginn 20. mars 1996 frá kl. 9:00 til 16:00.
Sköpunargáfan hefur áhrif á árangur stjórnenda. Ef stjórn-
endur virkja sköpunargáfuna með réttum aöferðum er
ekki aðeins hægt að auka fjölda hugmynda heldur einnig
gæði þeirra til að skapa arðbærar iausnir.
Góðar hugmyndir og þau bylgjuáhrif, sem þær valda, hafa áhrif
á starf þitt, heilsu, velgengni og umhverfi. Það er í raun ekkert
sem getur tryggt þér betri framtíð en hæfileikinn að vera skap-
andi. Stjórnendur, sem virkja sköpunargáfu sína og þann mann-
auð sem fólginn er í hæfileikum samstarfsfólks og undirmanna,
eiga meiri velgengni að fagna en aðrir.
Virkjun sköþunargáfunnar getur skapað þér forskot í sam-
keppni, hvort heldur sem finna þarf nafn á nýja vöru, þróa
áætlanir og framtíðarsýn fyrirtækis eða stofnunar, skipuleggja
almannatengslaherferðir, hjálpa til að leysa vandamál og breyta
og meta lausnir. Á þessari námstefnu mun Marsh Fisher fjalla
um eðli sköpunargáfunnar og kynna hvernig stjórnendur geta
virkjað hana með nýjum og bættum aðferðum. Einnig mun
hann kynna IdeaFisher hugbúnaðinn, sem er innifalinn í
námstefnugjaldinu, og sýna notkun hans.
Á námstefnunni gefst því tækifæri til að kynna sér nýtt verklag til
að glíma við krefjandi úrlausnarefni nútímastjórnunarumhverfis,
auka fjölda og gæði nýrra hugmynda og hvernig stjórnendur
geta leyst sköpunargáfu sína úr læðingi og beitt til þess sér-
hæfðum hugbúnaði til að skapa arðbærar hugmyndir og lausnir
á knýjandi viðfangsefnum.
Innifalið í námstefnugjaldi: Bókin IdeaFisher eftir Marsh Fisher og IdeaFisher
Pro tölvuforritið (þú getur valið á milli Mac eða PC). Með forritinu fylgir
notendahandbók sem jafnframt er kennsluhandbók. Að auki fylgir viðbótarefni
til notkunar með forritinu - sérhæfðir pakkar fyrir hugmyndavinnu á sviði
stefnumótunar og þróunar nýrrar vöru og/eða þjónustu. Einnig er innifalið
morgunkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi.
Árið 1970 þróaði Marsh Fisher hugmyndina að því sem átti eftir
að verða stærsta fasteignasölufyrirtæki í heiminum, Century 21.
Marsh Fisher seldi sinn hlutárið 1977 og hefursíðan þáfjárfest
fyrir meira en 4 milljónir dollara (hátt í 300 milljónir króna) og
haft yfir 200 manns við rannsóknir á því hvernig við hugsum og
að finna svör við spurningunni: Hvernig er hægt að virkja
sköpunargáfuna á réttan hátt og hvernig er hægt að nýta sér þá
orku sem liggur óbeisluð í huga okkar? Uppgötvun þeirra um
undirstöðuatriði hugsunar og eðli hugmyndasköpunar hefur
síðan verið staðfest af sjálfstæðum rannsóknum við John
Hopkinsháskóla.
Árið 1988 stofnaði Marsh Fisher fyrirtækið IdeaFisher Systems
Inc. sem er hugbúnaðarfyrirtæki í Irvine í Kaliforniu. Á grunni
áðurnefndra rannsókna hefur fyrirtækið þróað IdeaFisher hug-
búnaðinn sem fengið hefur frábæra dóma og verið seldur í
rúmlega 500 þúsund eintökum víða um heim.
AFSL ATTARTILBOÐ
til fyrirtækja og stofnana
■ 4 Ef þrír eru skráðir frá sama fyrirtæki eða stofnun
w T I fær fjórði þátttakandinn fría skráningu.
^ i O s)ö eru skráðir frá'sama fyrirtæki eða stofnun
" ■ fá þrír þátttakendur til viðbótar fría skráningu.
Verð: Kr. 42.400.
Verð fyrir aðila Stjórnunarfélagsins: Kr. 25.415.
Skráning er hafin
Tryggðu þér þátttöku
Skráningarsími:
562-1066
Stjómunarfélag
íslands
Einstakt tækifæri til að kynnast nýjum aðferðum, hugmyndum og
hjálpartækjum sem auðvelda þér að leysa sköpunargáfuna úr
læðingi, skapa nýjar lausnir og landa spennandi tækifærum sem V
fært geta þér lykilinn að framtíð fyrirtækis þíns eða stofnunar.
KVEIKTU A PERUNNI
IdcaFisher PRO
lhe Ultimate Writiiiö
ís: Coiiinmnicatioii Tooís for
iHisiness IVi 'fessionaLs
•• 903 • 5670 ••
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.