Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 18
18
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Fréttir
Bæjarstjórnardeilurnar í Vesturbyggð:
Snýst um að halda lyð
ræðislegar leikreglur
„Það má draga þetta saman og
segja að deilurnar snúist um lýð-
ræðislegar leikreglur. Það eru sjálf-
stæðismenn og kratar sem mynda
hér meirihluta í bæjarstjórn. Hér
hafa verið fjárhagserfiðleikar og
þurft hefur að taka á ýmsum erfiö-
um máium. Meirihlutinn hefur
hins vegar haldið bæði minnihlut-
anum og íbúunum frá öllu. Það er
ekkert sjálfgefið upplýsingaflæði tii
okkar í minnihlutanum. Við þurf-
um að draga nánast hvert einasta
orð upp úr þeim með töngum. Þess
vegna snýst þetta um að farið sé
eftir bæjarmálasamþykkt og sveit-
arstjórnarlögum," segir Einar Páls-
son, talsmaður minnihlutans í bæj-
segir Einar Pálsson, talsmaður minnihlutans í bæjarstjórn
um þvi af fundi,“ sagði Einar.
arstjórn Vesturbyggðar, en þar
eiga sér nú stað mikil átök í bæjar-
málunum.
Gengu af fundi
Hann var spurður hvers vegna
minnihlutinn hefði tekið það til
bragös að ganga af fundi í síðustu
viku?
„Á bæjarstjórnarfundi þar áður
höfðum við krafist þess að taka
þrjú mál á dagskrá fundarins. Það
voru starfsmannamál, snjómokstur
og staðsetning þyrlunnar. Þeir
samþykktu að taka snjómokstur-
inn og þyrluna á dagskrá en höfn-
uðu að taka fyrir starfsmannamál-
in og sögðu þau ekki eiga erindi á
bæjarstjórnarfund. Fyrr í vetur
höfðu átt sér stað hópuppsagnir hjá
bænum. Þann 1. febrúar síðastlið-
inn átti að vera búið að ganga frá
endurráöningu þeirra sem áttu að
fá hana. Einhveijir voru ekki end-
urráðnir en við bara vissum svo
lítið um þetta mál allt.
Bæjarstjórinn beitti þeirri aðferð
við endurráðningu fólks að kalla
hvem og einn fyrir sig, bauð hverj-
um og einum sérkjör sem enginn
veit um nema hann og viðkomandi
starfsmaður. Það er með þetta eins
og annað, öllu er haldið leyndu fyr-
ir okkur í minnihlutanum og fólk-
inu í bænum. Við vorum bara
hreinlega búnir að fá nóg og geng-
Lokun fundar
Hann sagði að minnihlutinn
hefði óskað eftir fundinum og þeim
málum sem hann vildi að þar yrðu
rædd. Þetta hefði verið áréttað á
bæjarráðsfundi en þar hefði meiri-
hlutinn sagst vilja hafa fundinn
lokaðan. Því hafnaði minnihlutinn
en lofaði jafnframt að fara ekki að
ræða mál einstakra starfsmanna
bæjarins heldur ræða kjaramálin
almennt.
„Þeir hafa gert það áður, ef ein-
hver óþægileg mál eru á ferðinni,
þar sem bæjarstjórnin er gagn-
rýnd, að loka fundum. Og að þessu
sinni vildu þeir ekki bara loka
fundinum heldur skrá fundargerð-
ina í einkamálabók, sem hefði þýtt
að hún var orðin algert trúnaðar-
mál sem við hefðum hvergi mátt
ræða opinberlega. Þessu gátum við
ekki unað. Þess má líka geta að
fundargerð á alltaf að fylgja fúndar-
boði næsta bæjarstjórnarfundar.
Það er aldrei gert heldur vorum
við að fá allar fundargerðir ársins
1995 í einum pakka nú í janúar.
Við erum búnir að gefast upp á
vinnubrögðum þeirra og því kær-
um við til félagsmálaráðuneytisins,
eins og skýrt hefur verið frá í frétt-
um,“ sagði Einar Pálsson.
-S.dór
Fráhvarfseinkenni
hjá fyrrum meiri-
hlutamönnum
- segir Gísli Ólafsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar
„Þetta er ekkert annað en mark-
laus della í þeim minnihlutamönn-
um. Þessir menn voru áður i meiri-
hluta og þeir geta ekki sætt sig við
að vera nú komnir í minnihluta.
Þetta eru því fráhvarfseinkenni
fyrrum meirihlutamanna,“ sagði
Gísli Ólafsson, bæjarstjóri Vestur-
byggðar, þegar ávirðingar minni-
hlutans á meirihlutann í bæjar-
stjóm voru bornar undir hann.
Hagræðing
Hann sagði að í október í haust
er leið hefði verið samþykkt tillaga
um að ná fram hagræðingu í rekstri
sveitarfélagsins. Þar var meðal ann-
ars gert ráð fyrir að bæjarstarfs-
mönnum yrði fækkað og að fastri
yfirvinnu yrði sagt upp.
„Mér var gefin heimild til að
ganga í þetta mál og ljúka því og ég
gerði það. Málinu er lokið og það er
búið að skrifa undir alla samninga,
nema auðvitað við þá sem ekki voru
endurráðnir en það voru þrjú stöðu-
gildi. Það er talið að þessi ráðstöfun
muni spara sveitarfélaginu 18 millj-
ónir króna á þessu ári. Það er auð-
vitað aðalmálið fyrir sveitarfélagið í
þeirri erfiðu stöðu sem það er í.
Þess vegna skil ég ekki hvað það á
að fyrirstilla hjá minnihlutanum að
taka þessi mál upp nú. Og ég veit
heldur ekki um hvað fólkið er að
tala þegar það hleypur út af fundum
eins og það gerði síðastliðinn föstu-
dag, í algeru ábyrgðarleysi," sagði
Gísli.
Einkamálabókin
Hann segir það alveg ótvírætt,
samkvæmt sveitarstjórnarlögunum,
að ef verið er að fjalla um persónu-
leg mál manna, eða mál sem varða
hag sveitarfélagsins sérstaklega,
hefur sveitarstjórin leyfi til þess að
loka fundi. Þar með sé verið að
vernda þá sem um er fjallaö.
„Bæjarstjórnir hafa heimild til að
halda einkamálabækur. En það var
ekkert skráð í okkar einkamálabók
á þessum fundi og það stóð ekki til
nema ef fjallað væri um persónu-
lega hagsmuni einstakra starfs-
manna. Hér er bæjarráð og það hef-
ur þessi mál á sinni könnu. Minni-
hlutinn kom aldrei með þessi mál
inn í bæjarráð enda þótt bæjarráðið
fjallaði um og afgreiddi þessi mál á
sínum tíma. Þess í stað setur minni-
hlutinn á svið pólitíska flugeldasýn-
ingu til að vekja athygli á þeim
sjálfum og þeirri pólitík sem þeir
eru að reka hér út um sveitir,“ seg-
ir Gísli Ólafsson. -S.dór
Nemendur og kennarinn. Fremri röð frá vinstri: Helga Hrönn Melsted, Gerð-
ur Helgadóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir og Þórður Þorgrímsson. Efri röð:
Guðlaug Gunnlaugsdóttir, Kristinn Helgason, kennarinn Ólafur Eggertsson,
Bergur Karlsson og Árni Guðmundsson. DV-myndir Hl
Tréskurður á
Breiðdalsvík
DV, Breiðdalsvík:
Magnesíumverksmiðja á Reykjanesi:
Hagkvæmnisathuganir lofa góðu
Námskeið i tréskurði var nýlega
haldið á Breiðdalsvik og var Ólafur
Eggertsson kennari. Hann hefur
verið með námskeið víða um land
undanfarin ár. Átta nemendur sátu
við verkefni í 12 klukkustundir með
hléum og sköpuðu hina glæsile-
gustu hluti. Færri komust að á nám-
skeiðin en vildu.
-KI
DV, Suðurnesjum:
„Þeir eru að fara yfir lokapunkt-
ana og við fáum lokaskýrsluna eftir
tæpan mánuð. Þá þurfa menn að
ákveða framhaldið. Þeir erlendu að-
ilar, sem sjá um hagkvæmisathug-
unina fyrir okkur, eru frekar bjart-
sýnir. Þetta virðist allt mjög jákvætt
og ekkert athugavert hefur fundist,"
sagði Júlíus Jónsson, forstjóri Hita-
veitu Suðurnesja, í samtali við DV.
Hér eru nú staddir Þjóðverjar og
Rússar sem eru að Ijúka við athug-
un á byggingu 25 þúsund tonna
magnesíumverksmiðju á Reykja-
nesi. Hafa verið hér á landi frá því
á mánudag en halda heim um helg-
ina. Athuganir þeirra eru fyrri hlut-
inn af tveimur hagkvæmisathugun-
um og kosta 36 milljónir króna.
Júlíus telur að síðari athuganir
kosti sömu fjárhæð og er reynt að fá
aðila til að taka þátt i þeim kostn-
aði. Talið er að milli 250-300 manns
muni starfa við verksmiðjuna verði
hún að veruleika og gert er ráð fyr-
ir að afköst hennar geti tvöfaldast í
framtíðinni.
-ÆMK
Skólamálastjóri ráðinn
í Reykjanesbæ
DV, Suðurnesjum:
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar sam-
þykkti á fundi sínum 5. mars að
ráða Eirík Hermannsson í stöðu
skólamálastjóra. Skólanefnd bæjar-
ins taldi hann hæfasta umsækjand-
ann og mælti með ráöningu hans.
Eiríkur hefur verið skólastjóri í
Gerðahreppi í mörg ár.
„Ég geri ráð fyrir að Eiríkur hefji
störf að einhverju leyti fljótlega en
fari að fullu í nýja starfið þegar
hann losnar frá okkur. Jón Ög-
mundsson aðstoðarskólastjóri mun
leysa hann af hólmi fyrst um sinn.
Það þarf að auglýsa stöðuna en ég
tel að Jón Ögmundsson hafi mjög
sterka stöðu í því sambandi," sagði
Siguröur Jónsson, sveitarstjóri
Gerðahrepps. -ÆMK
Glæsileg verk nemenda á námskeiöinu.