Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Síða 19
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
31
Fréttir
Skagfirðingar
sameinast um
skólaskrifstofu
DV, Fljótum:
Sveitarstjórnarmenn úr Skaga-
firði samþykktu fyrir skömmu að
Skagfírðingar standi einir að
rekstri skólaskrifstofu fyrir hérað-
ið. Viðræður fulltrúa Austur- og
Vestur- Húnvetninga og Skagfirð-
inga hafa staðið að undanfómu um
sameiginlegan rekstur á skólaskrif-
stofu fyrir Skagafjörð og Húnaþing
eftir að grunnskólinn flyst til sveit-
arfélaganna. Áhugi reyndist ekki
fyrir hendi.
Fulltrúar Skagfirðinga lögðu
fram drög að samþykktum fyrir
byggðasamlag um rekstur og stjórn-
unarfyrirkomulag skólamálaskrif-
stofu þessara þriggja aðila fyrir
fund sem fulltrúar sveitarfélaganna
í héraðinu sátu. Ekki var áhugi á
þeim drögum og niðurstaðan varð
sú að sveitarfélögin í Skagafirði
sameinast um skólaskrifstofu.
Starfssvið skólaskrifstofunnar er
áþekkt og verið hefur hjá Fræðslu-
skrifstofunni á Blönduósi, það er
sérkennsluráðgjöf, almenn og
greinabundin kennsluráðgjöf og
kennsluþjónusta. Gert er ráð fyrir
að tveir sérfræðingar að minnsta
kosti starfi á væntanlegri skrifstofu
Skagfirðinga. -ÖÞ
Karlakórinn Heimir í Höfðaborg á Hofsósi.
DV-myndir Örn
Heimiskvöld í Höfðaborg
DV, Fljótum:
Húsfyllir var í Höfðaborg á Hofs-
ósi þegar Karlakórinn Heimir hélt
þar sitt árlega Heimiskvöld fyrstu
helgina í mars. Viðtökur áheyrenda
vom frábærar og varð kórinn að
syngja mörg aukalög.
A söngskránni voru bæði gömul,
þekkt lög og einnig ný sem kórinn
er að flytja nú í fyrsta skipti og virð-
ast líkleg til að ná vinsældum ef
marka má viðtökur sem þau fengu.
Auk söngs var á dagskránni
skemmtiefni flutt af félögum Leikfé-
lags Sauðárkróks, hagyrðingaþáttur
og harmónikuleikur. Þá em ótaldar
kaffíveitingar sem eiginkonur kór-
félaga sáu um. Þess má geta að um
miðjan mánuðinn mun kórinn
syngja í Ytri-Njarðvíkurkirkju, Há-
skólabíói og á Hótel íslandi.
-ÖÞ
Bakkavor fær stora loö a
Fitjum í Reykjanesbæ
DV, Suðurnesjum:
Bæjarstjóm Reykjanesbæjar hef-
ur samþykkt að úthluta Bakkavör
hf. - fyrirtækinu sem flutti hluta af
starfsemi sinni úr Kópavogi í
Reykjanesbæ fyrir nokkm - 15 þús-
und m2 lóð, sem er á milli BYKÓ og
Bifreiðaskoðunar íslands á Fitjum í
Njarðvíkurhverfi. Lóðin er alls 19
þúsund m2 og hafa eigendur Bakka-
varar forleigu á 4000 m2 til viðbótar
ef þörf krefur.
Bakkavör hefur sérhæft sig í
hrognavinnslu og fer frumvinnslan
fram í Reykjanesbæ en er fullunnin
í Kópavogi. Samningar eru í gangi
þessa dagana milli bæjarstjómar og
eigenda Bakkavarar um framtíð fyr-
irtækisins í Reykjanesbæ. Eigendur
þess vilja kaupa húsnæði sem það
hefur á leigu í Reykjanesbæ, ásamt
því að byggja nýtt hús fyrir hrogna-
vinnsluna og þá yrði öll starfsemin
flutt frá Kópavogi.
í Reykjanesbæ vinna 20 manns
hjá fyrirtækinu nú en þegar nýja
húsið verður tekið i notkun verða
hátt í 70 starfsmenn hjá því.
-ÆMK
UTBOÐ
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 96002 stækkun útvirkis aðveitustöðvar að Eyvindará við
Egilsstaði. Utboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu
og byggingar undirstöðu fyrir stálvirki.
Útboðsgögn verða seld á aðalskrifstofu RARIK, Laugavegi 118,
Reykjavík, og Þverklettum 2, Egilsstöðum, frá og með mánudegin-
um 11. mars nk. Verð fyrir hvert eintak er 1.000 kr.
Skila þarftilboðum á skrifstofu RARIK á Egilsstöðum fyrir kl. 14.00
þriðjudaginn 26. mars nk. Tilboðin verða þá opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenáa sem óska að vera nœrstaddir.
Þóknun fyrir gerð tilboða er engin. Verkinu á að vera að fullu lokið
föstudaginn 31. maí 1996.
Vinsamlegast hafið tilboðin í lokuðu umslagi,
mertktu: RARIK- 96002
£
RARIK
Laugavegi 118 • 105 Reykjavík
Sími 560 5500 • Bréfasími 560 5600
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn fimmtudaginn 21. mars 1996
á Hótel Loftleiðum, þingsal 1-3,
og hefst fundurinn kl. 14.00
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins,
hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 18,
3. hæð, frá og með 19. mars,
fram að hádegi fundardags.
Stjóm Olíufélagsins hf.
r&
Olíufélagið hf
Tíu tonn af
könglum
Dy Egilsstöðum:
„Veðrið hefur leikið við okkur og
tínslan hefur gengið vel. Við höfum þeg-
ar safhað 10 tonnum af könglum," sagði
Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Hér-
aðsskóga.
Tínslan hófst í janúar og við hana
vinna 20 manns. Þegar er búið að hreinsa
hluta af könglunum en það verk er unn-
ið i Gunnarsholti. Hátt í 30% af fræinu er
spírunarhæft en besta fræið kemur úr
Guttomslundi. Þar eru trén um 17 metra
há og þarf körfubíl til að ná könglunum.
Helgi sagði að áfram myndi haldið að
safha könglum meðan hægt væri en það
væri mest undir veðri komið hve lengi
gæfi til tínslunnar. -SB
Þu kemur með hugmyntí Við sjáum um afganginn - Snoggit & areiðanlegir
3R05-30UR
► Síðumúla 33 • $: 581 4141