Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Qupperneq 20
32
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Fréttir________________________________________________________________________________x>v
Deila ÁTVR og Heildverslunar Karls K. Karlssonar um kamparíið:
Ætla að hækka verðið
og hirða mismuninn
- segir forstjóri ÁTVR. - Undarlegt þegar ÁTVR talar um einokun, segir framkvæmastjóri heildverslunarinnar
„Mér finnst skjóta nokkuð
skökku við þegar forstjóri ÁTVR
sakar mig um einokunartilburði,"
segir Ingvar J. Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Heildverslunar Karls
K. Karlssonar. „Við erum að selja
kamparí en ekki alkóhólprósentur
og i allri Norður-Evrópu er kamparí
21% og hefur verið það í fjölmörg
ár, m.a. í frihöfninni á Keilavíkur-
flugvelli. Það sem er að gerast er að
nú verður kamparí eins á íslandi og
það er annars staðar í álfunni," seg-
ir Ingvar.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, hefur sakað Heildverslun
Karls K. Karlssonar um að ætla í
skjóli söluumboðs fyrir kamparí að
þvinga fram hærra verð fyrir aðra
vöru en það kamparí sem hingað til
hefur fengist hjá ÁTVR. Ingvar vís-
ar því á bug og segir að fyrirtæki
hans hafi gefið ÁTVR bréflega upp
það verð sem standi til boða hjá
framleiðanda þessa stundina. Ekk-
ert svar hafi hins vegar borist frá
ÁTVR. Einustu viðbrögðin sem
hann hafl orðið var við séu þau að
forstjóri ÁTVR kemur fram í sjón-
varpi og hótar að kæra heildverslun
Karls K. Karlssonar fyrir einokun-
artilburði. „Ég hef vanist því hingað
til að sé væntanlegur kaupandi
óánægður með skilmálana eða vör-
una leiti hann samninga og fái bréf
til baka þar sem farið er fram á
breytingar og yfirleitt finnst grund-
völlur sem menn mætast á,“ segir
Ingvar. Framleiðslukostnaður á
iamparíi og áfengi yflrleitt fer að
sögn hans ekki eftir því hversu vín-
andamagnið er mikið. Þar vega aðr-
ir þættir þyngra. „Okkur er það
ekkert sérstakt kappsmál að selja
hátt vínandamagn enda ekki sér-
staklega að stuðla að fylliríi. Ég hef
spurt framleiðandann sérstaklega
um bragðgæðin eftir breytinguna og
þau verða nákvæmlega þau sömu,“
segir Ingvar.
„Við báðum framleiðanda
kamparís um sömu vöru og við höf-
um keypt árum saman, kamparí
bitter, 25% að vínandamagni, sam-
tals 2.400 flöskur sem afhendast áttu
í janúar sl.,“ segir Höskuldur Jóns-
son, forstjóri ÁTVR. Höskuldur seg-
ir að framleiðandinn hafi með bréfi
vísað þeim á að hafa samband við
Heildverslun Karls K. Karlssonar,
umboðsaðila kamparí. Síðan hafi
komið verðtilboð upp á tiltekið lág-
marksmagn, mun meira en það sem
ÁTVR pantaði, eða 3.600 flöskur,
verðið hærra og vínandamagnið
minna eða 21% í stað 25%. „Verð-
hækkunin á í raun og veru þau rök
ein að eðlilegt hefði verið að borga í
tolli vínandaskatt af 25% sterku
áfengi. Þegar vínandaprósentan
lækkar í 21 þá virðist svo vera að
heildsalinn ætli að stinga þessu í
sinn vasa sem hækkun á álagningu
til okkar," segir Höskuldur Jónsson.
„Ég sé ekki hvernig Höskuldur
Jónsson ætlar að fara að stjórna
áfengisframleiðslu og vínanda-
magni um alla Evrvópu. Auðvitað
hlýtur framleiðandinn að hafa um
það að segja hvernig hann vill bjóða
vöruna fram og hér er um það að
ræða,“ segir Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Verslunarráðs.
Vilhjálmur sagði um hugsanlega
kæru forstjóra ÁTVR til Samkeppn-
isstofnunar að hann fagnaði því sér-
staklega ef af því yrði. „Menn
myndu líka fagna því mjög ef Hösk-
uldur bæði Samkeppnisráð að
álykta um hvort einkasala með
áfengi samræmdist yfirleitt sam-
keppnislögum." -SÁ
Framadagar Háskóla íslands:
Nemendum boð-
inn aðgangur að
gagnasafni DV
DV er eitt 40 fyrirtækja sem voru
aðilar að Framadögum, Atvinnulífs-
dögum Háskóla íslands sem haldnir
voru dagana 5.-7. mars í Þjóðarbók-
hlöðunni. Fyrirtækin 40 kynntu
starfsemi sína fyrir nemendum á
Framadögum. Þær uýjungar sem
teknar hafa verið upp á blaðinu að
undanfórnu, svo sem Tilverusíður
blaðsins, tippfréttir og breytingar á
Helgarblaði, voru kynntar sérstak-
lega.
Auk þess að kynna starfsemi fjöl-
miðilsins DV var nemendum boð-
inn aðgangur að gagnasafni DV á
Internetinu í samstarfi við Skýrr.
Gagnasafn DV verður á næstunni
sett upp í Upplýsingaheimum Skýrr
og verður þá hægt að leita í efni DV
síðustu 8 ár á Internetinu.
Fjölmargir komu í Þjóðarbók-
hlöðuna til að kynna sér starfsemi
fyrirtækjanna á sýningunni, en
þetta er annað árið í röð sem
Framadagar eru haldnir í Háskólan-
um. -ÍS
Nemendum var boðinn aðgangur að gagnasafni DV á Internetinu í samstarfi við Skýrr á Framadögum í Háskóla ís-
lands. Á myndinni er Jenný Davíðsdóttir, tölvustjóri DV, að kynna áhugasömum nemendum starfsemi blaðsins.
DV-mynd BG
Friðun hrygningarþorsks
„ Páskastoppið hefst 14.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá sjávarútvegsráðuneytinu
veröa allar fiskveiðar bannaðar á
stóru svæði fyrir Suður- og Vest-
urlandi frá kl. 22 sunnudaginn 14.
apríl til kl. 10 árdegis mánudaginn
29. apríl. Þetta er sama bannsvæði
og sett var um páskana á síðasta
ári.
Á ofannefndu tímabili eru allar
veiðar bannaðar innan þriggja sjó-
mílna frá fjörumarki meginlands-
ins fyrir Norður- og Austurlandi
frá Horni austur um að Stokks-
nesi.
Sérstök athygli er vakin á að
heimilt er að stunda allar veiðar,
þar með taldar netaveiðar, utan
bannsvæðanna.
Þeim sem hafa leyfi til grá-
sleppu-, innfiarðarækju-, hörpu-
disks- og ígulkeraveiða er þó
heimilt að stunda þær veiðar inn-
an bannsvæðanna.
-SÁ
Hin gífurlega eyðilegging vegna snjóflóðsins sem féll á Flateyri í október sl. er smám saman að koma í Ijós. Snjó-
laust er að telja fyrir vestan og því hefur fólk haft tækifæri til að leita í rústunum. Hreinsunarstarf fer þó ekki í gang
af krafti fyrr en í sumar. Hér má sjá raðhús við Hjallaveg sem fóru mjög illa í flóðinu. Af sex íbúðum gjöreyðilögðust
fimm þeirra eins og sjá má á myndinni. .DV-mynd rt
Tvær kannanir í Hafnarfirði:
Síendurtekin brot við
sölu á tóbaki til unglinga
Gerðar voru tvær kannanir um
sölu á tóbaki til unglinga yngri en
16 ára og var útkoman vægast sagt
léleg.
Dæmigerður 14 ára unglingur fór
12. janúar sl. og 1. mars í fylgd með
starfsmönnum félagsmiðstöðvarinn-
ar Vitans á alla þá staði er selja tó-
bak í Hafnarfirði í þeim tilgangi að
freista þess að kaupa tóbak. Starfs-
menn fylgdust með álengdar og
urðu vitni að viðskiptunum. Niður-
stöður voru geysileg vonbrigði. Af
29 sölustöðum í janúarkönnun voru
aðeins þrír sem virtu tóbaksvarnar-
lög sem banna sölu á tóbaki til ung-
linga yngri en 16 ára eða 89,7%. í
könnun 1. mars varð útkoman öllu
verri. Einungis 2 af 30 sölustöðum
neituðu sölu eða um 94%. Þeir sem
ekki seldu í síðustu könnun seldu
því miður núna. Með öðrum orðum
þá hafa allir sölustaðir í Hafnarfirði
virt að vettugi sölubannið.
Kafé Oskar í Miðbæ var annar af
þeim aðilum sem ekki seldi en þess
ber að geta að sá staður var ekki
starfandi þegar fyrri könnunin var
gerð. Söluturninn Björk, Strandgötu
11, var hinn staðurinn sem ekki
seldi að þessu sinni. Þessar niður-
stöður sýna okkur því að sölubann
á tóbaki til yngri en 16 ára er nán-
ast algerlega virt að vettugi.
Tilgangur Æskulýðs- og tóm-
stundaráðs Hafnarfiarðar var ekki
annar en að benda á með sannanleg-
um hætti hve ástandið væri bágbor-
ið. -HB