Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 28
40
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Menning
Leikhús
Islandsklukkan - saga Snæfríöar
€
Sigrún Edda Björnsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson
verkum sínum í Hinu Ijósa mani.
Leikgerðir eftir sög-
um Halldórs Laxness
eru orðnar margar -
sem betur fer. Orðgnótt
hans og fádæma
skemmtilegar persónu-
lýsingar sóma sér eink-
ar vel á sviði og skáld-
sögurnar, þótt ólikar
séu, bera ævinlega í sér
kjama sem góðir lista-
menn hafa svo oft náð
að miðla á ógleyman-
legan hátt í lifandi
flutningi.
í Borgarleikhúsinu
ganga persónurnar úr
íslandsklukkunni nú í
endumýjun lífdaga í
leikgerð Bríetar Héð-
insdóttur. Hún nefnir
verkið Hið ljósa man
enda er megináherslan
á persónu og sögu Snæfríðar, þeirrar sem ekki að
ástæðulausu er nefnd íslandssól í skáldverkinu.
Sú leikgerð sögunnar sem oftast hefur sést á sviði og
Halldór samdi sjálfur fyrir opnun Þjóðleikhússins 1950
spannar verkið í nokkuð réttri tímaröð. Bríet breytir
áherslum og sjónarhomi í þeim tilgangi að laða fram
stórbrotinn persónifleika Snæfríðar
og dramatísk örlög hennar.
En engu að síður sýnir hún frá-
sögninni fúllan trúnað og sagan er
þarna til staðar með öllu sínu mann-
lífi, persónuflúri og sagnfræðilegum
bakgmnni.
Að sjálfsögðu er af miklu að taka og erfítt að velja
og hafna öllum þeim freistandi atriðum sem gætu átt
heima í sýningunni undir þessum formerkjum. Þetta
reynist að vissu leyti fótakefli; sýningin dregst óþarf-
lega á langinn og spuming hvort ekki hefði verið til
bóta að þétta og stytta sum atriði, jafnvel fella alveg út.
Vandi þess sem ræðst í það að semja leikgerð af
þessu tagi er hins vegar augljós því að gullkornin era
á hverri síðu.
Bríet byrjar frásögnina þegar Snæfríður situr
heima í Bræðratungu, eiginkona jungkærans sem bú-
inn er að drekka frá sér vit og ráð og allar eignir líka.
Þegar hún á árum áður sá að sér mundi ekki auðnast
að deila kjörum með Áma Ámasyni, eða assessor
Arnasi Amæusi eins og hann kallaði sig, sagði hún
eins og frægt er að heldur vildi hún eiga þann versta
en þann næstbesta og gekk að eiga hinn auðnulausa
Magnús.
Fyrri atburðir eru sýndir í endurliti með stuttum
innskotum sem varpa ljósi á það sem á undan er geng-
ið.
Þessi atriði vora einkar vel sviðsett og höfðu yflr
sér einhvern loftkenndan blæ eins og þau væru sótt
beint í hugskot persónanna. Þar hjálpuðust að góð
leikstjórn Bríetar, vel unnin lýsing og leikmynd Stigs
Steinþórssonar sem ég var ágætlega sátt við.
Pálína Jónsdóttir lék Snæfríði unga í þessum atrið-
um og hefur til þess ágætt útlit en raddbeitingin var
ekki nógu góð.
Sjálf leikgerðin varpar kastljósi á Snæfríði, stækkar
hana og setur hana á stall með mestu kvenhetjum
heimsbókmenntanna.
Eins og í grískum harmleik virka pólitísk togstreita
og landsmálabarátta sterkt inn í lífshlaup hennar sem
■
Leiklist
Auður Eydal
VERSLUNARMANNAFELAG
HAFNARFJARÐAR
Aðalfundur Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar
verður haldinn í húsnæði félagsins,
Lækjargötu 34-D, þann 14. mars nk. kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN
Aukavinningar
í „Happ í Hendi"
og annarra persona
sögunnar og skapa
beisk örlög fyrir utan
þann stakk sem hún
sníður sér sjálf.
I aðalhlutverkinu
sýnir Sigrún Edda
Björnsdóttir djúp-
stæðan skilning á
margbrotinni per-
sónu Snæfríðar og
hefur að mínu viti
ekki gert betur í ann-
an tíma. Túlkun
hennar er kannski
númer eitt hægt að
lýsa sem mannlegri.
Snæfríður syndir
gegn straumi og er
samtímafólki sínu að
hlut- mörgu leyti ráðgáta.
Hún er stórlynd og
stolt og hefur kraft til
aö rísa gegn valdinu þegar aðrir beygja sig.
Það er líka spurning hvenær hennar persónulegu
hagsmunir eða annarra eiga að víkja fyrir öðrum
stærri.
Sigrún leikur á marga strengi í hlutverkinu og tekst
með hárfmum áherslum aö sýna og koma til skila öll-
um þeim ofúrkrafti sem bærist hið
innra með persónunni; krafti sem
reynist hennar mesti styrkur og
veikleiki í senn.
í helstu hlutverkum öðrum era
________________ Krisfján Franklín Magnús, sem leik-
ur Arnas Amæus og sýnir vonsvik-
inn mann sem orðið hefur fyrir miklum áfollum í líf-
inu. Eins og aðrir þarf hann að spyrja sig þeirrar
spurningar hvort hann hafi valið rétt. Kristján leikur
hlutverkið ágætlega á rólegum, yfirveguðum nótum þó
að persónuna skorti kannski eilítið meiri sjarma.
En hann er um leið sterk andstæða Magnúsar í
Bræðratungu sem Þröstur Leó Gunnarsson leikur með
tilþrifum. Túlkun hans á drykkjulátum Magnúsar í
upphafi var öfgafengin en svo komst meira jarðsam-
band á í persónusköpuninni.
Vonbiðill Snæfríðar, Sigurður dómkirkjuprestur, er
mjög veigamikil persóna í þessari leikgerð og inngrip
hans í mörg atriði með þeim betri í sýningunni. Ég
var ekki ails kostar sátt við túlkun Þorsteins Gunnars-
sonar í fyrsta hluta verksins, fannst hann of ýktur í
smeðjulegum undirlægjuhætti, en það átti eftir að
breytast svo um munaði.
Sigurður Karlsson leikur föður Snæfríðar, Eydalín
lögmann, og gerir það af yfirvegaðri hófstillingu.
Og svo er það hann Jón gamli Hreggviðsson, uppá-
hald leikhúsgesta í gegnum árin. Hann hefur lítið
breyst síðan hann sást fyrst á sviöi 1950 og Guðmund-
ur Ólafsson túlkar hann með miklum ágætum. Margir
aðrir leikarar koma við sögu og af þeim má nefna þær
Margréti Jóhannsdóttur og Hönnu Maríu Karlsdóttur
sem báðar leggja gott til mála.
Eins og áður var sagt skapar Stígur Steinþórsson
sýningunni umgjörð þar sem klettaveggir Almanna-
gjár eru stflfærður bakgrannur allan tímann og bún-
ingar Messíönu Tómasdóttur era vel hugsaðir í stíl
tímans, reglulegt augnayndi, bæði í litavali og hönn-
un. Skiptingar gengu hratt fyrir sig en sagan berst
óhjákvæmilega víða og nauðsynlegt að skipuleggja
slík atriði vel.
í heildina er þarna vel og fagmann-
lega að verki staðið, Jón Nordal
leggur til frumsamda tónlist og leik-
ur er góður, reyndar mjög sterkur
þegar best lætur.
Undirstaðan er þó rótgróin virðing
fyrir viðfangsefninu og trúnaður
við hið mikla stórvirki, íslands-
klukkuna, þó að sjónarhornið sé að
sumu leyti takmarkað við Snæfriði
íslandssól.
Leikféiag Reykjavíkur sýnir á stóra
sviði Borgarleikhúss:
Hið Ijósa man
eftir íslandsklukku Halldórs Laxness í
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
Tónlist: Jón Nordal
Leikmynd: Stigur Steinþórsson
Búningar: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: David Walters
Fundir
Bjarni Víðir Pálmason
Laufvangi 1,220 Hafnarfirði
Lilja Sverrisdóttir
Auðnum, Öxnadal, 601 Akureyri
Aukavinningar sem
dregnir voru út
í sjónvarpsþættinum
„Happ í Hendi"
síöastliðiö föstudags-
kvöld komu í hlut
eftirtaiinna aðila:
Anna Margrét Helgaóttir
Réttarseli 7,109 Reykjavík
Auður Pálsdóttir
Kirkjuteigi 29, 105 Reykjavík
Unnur Sigurðardóttir
Lameyrarbraut 10, 735 Eskifirði
Kristin H. Einarsdóttir
Hraunbæ 56,110 Reykjavík
Sverrir Pálmarsson
Unuhóll 1, 851 Hellu
Hanna K. Másóttir
Vanabyggð 1, 600 Akureyri
Hrafnkell Stefánsson
Mávahlíð 45, 105 Reykjavik
Hunda Halldórsdóttir
Irabakka 6,109 Reykjavik i
Btrt meö fyrirvara um prtntvillur
Vlnningshafar geta vitjað vinninga sinna hjá Happdrætti Háskóla Islands, 7]arnargötu 4,
101 Reykjavik og veröa þeir sendir tii viökomandi.
Skafðu fyrst og horfðu svo
Slysavarnadeildin
Hraunprýði
Hafnarfirði, heldur fund þriðjudags-
kvöldið 12. mars kl. 20.00 (ath.
breyttan tíma), mæting kl. 20 við
hús félagsins að Hjallahrauni og far-
ið með rútu um borð í björgunar-
skipið Sæbjörgu.
Kvenfélag Grensássóknar
verður með fund í safnaðarheimil-
inu mánudaginn 11. mars kl. 20.
Upplestur o.fl. KafFiveitingar. Allar
konur velkomnar.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
ií
STÓRA SVI6 KL. 20.00:
HIÐ UÓSA MAN
eftir íslandsklukku Halldórs
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
Tónlist: Jón Nordal
Leikmynd: Stígur Steinþórsson
Búningar: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: David Walters
Leikendur: Ari Matthíasson, Árni
Pétur Guðjónsson, Bryndís Petra
Bragadóttir, Guðmundur E.
Knudsen, Guðmundur Ólafsson,
Hanna María Karlsdóttir, Jón
Hjartarson, Kristján Franklín
Magnús, Margrét Helga
Hjartardóttir, Pálína Jónsdóttir,
Pétur Einarsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Sigurður Karlsson,
Soffía Jakobsdóttir, Steindór
Hjörleifsson, Theodór Júlíusson,
Valgerður Dan, Þorsteinn
Gunnarsson, Þórey Sif
Harðardóttir og Þröstur Leó
Gunnarsson.
2. sýn. fid. 14/3, grá kort gilda, fáein
sæti laus, 3. sýn. sund. 17/3, rauð kort
gilda, fáein sæti laus.
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Föd. 15/3, örfá sæti laus, lau. 23/3.
Sýningum fer fækkandi.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Sud. 17/3, fáein sæti laus, sud. 24/3.
Sýningum fer fækkandi.
STÓRA SVIð KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Laud. 16/3, örfá sæti iaus, fösL 22/3.
Þú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavíkur:
Leikhópurinn Bandamenn sýna á Litla
sviði kl. 20.30:
AMLÓÐA SAGA
eftir Svein Einarsson og leikhópinn.
Frumsýning iau. 16/3.
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla sviði kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Mid. 13/3, uppselt, mid. 20/3, örfá sæti
laus, föd. 22/3, uppselt, laud. 23/3,
uppseit.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Föd. 15/3 kl. 23.00, uppselt, 40 sýn.
laud. 16/3, uppselt, lau. 16/3 kl. 23.30,
örfá sæti laus, föd. 22/3, fáein sæti
laus, laud. 23/3 kl. 23.00.
Tónleikaröð L.R.
Á LITLA SVI6I KL. 20.30.
Þrd. 12/3 Sverrir Guðjónsson,
Steinunn Bima Ragnarsdóttir og
Ludvig K. Forberg;
Söngur dauðans - „grafskrift".
Miðaverð 1.000 kr.
Fyrlr börnin: Línu-bolir og
Linupúsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum i síma
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
ÞJÓÐLEIKHÚSID
STÓRA SVI6I6 KL. 20.00:
TRÖLLAKIRKJA
eftir Ólaf Gunnarsson í leikgerð
Þórunnar Sigurðardóttur.
4. sýn. fid. 14/3, örfá sæti laus, 5. sýn.
Id. 16/3, örfá sæti laus, 6. sýn. Id. 23/3,
uppselt, 7. sýn. fid. 28/3, 8. sýn. sud.
31/3.
PREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Föd. 15/3, uppselt, sud. 17/3, uppselt,
fid. 21/3, föd. 22/3, föd. 29/3, Id. 30/3.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Mvd. 13/3 kl. 14.00, laud. 16/3, kl. 14.00,
örfá sæti laus, sud. 17/3 kl. 14.00,
uppselt, Id. 23/3 kl. 14.00, nokkur sæti
laus, sud. 24/3 ki. 14.00, nokkur sæti
laus, sud. 24/3 kl. 17.00, nokkur sæti
laus.
TONLEIKAR
Paul Dissing og Benny Andersen
Þrd. 12/3 kl. 21.00, uppselt.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
Fid. 28/3, uppselt, sud, 31/3, uppselt.
SMÍ6AVERKSTÆ6I6 KL. 20.00:
LEIGJANDINN
eftir Simon Burke
Fid. 14/3, Id. 16/3, Id. 23/3, fid. 28/3,
sud. 31/3.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
LISTAKLÚBBUR
LEIKHÚSKJALLARANS
Mád. 11/3 kl. 20.30:
KK-TÓNLEIKAR; Kristján Kristjánsson,
Guðmundur Pétursson og Jóhann
Ásmundsson leika og syngja.
Gjafakort í leikhús -
sígila og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
SÍMI MI6ASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
Safhaðarstarf
Áskirlga: Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Fundur í æskulýðsfélagi
Áskirkju kl. 20 i safnaðarheimilinu.
Friðrikskapella: Kyrrðarstund í há-
degi í dag. Léttur málsverður í gamla fé-
lagsheimilinu að stundinni lokinni.
Grensáskirkja: Bænastund kl. 18 Ritn-
ingarlestur, íhugim, bænir, samveru-
stimd. Koma má fyrirbænarefnum til
kirkjunnar í sima 553-2950.
Hallgrímskirkja: Kyrrðarstund með
lestri Passíusálma kl. 12.15.
Háteigskirkja: Trú og streita. Fræðslu-
og samfélagskvöld kl. 20.
Langholtskirkja: Ungbamamorgunn
kl. 10-12. Fræðsla. Ungbamanudd. Þór-
gunna Þórarinsdóttir og Hjördís Hákon-
ardóttir hjúkmnarfr. Aftansöngur kl.
18. Lestur Passlusálma fram að páskum.
Laugarneskirkja: Fyrirlestur um
fyrstu hjálp kl. 20.30 á vegum mæðra-
morgna.
Neskirkja: Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Fundur i æskulýðsfélaginu kl. 20. For-
eldramorgunn þriðjudag kl. 10-12. Kaffi
og spjall.
UPPBOÐ
Bifreiðin LE-346 verður boðin upp að Gránugötu 4-6,
Siglufirði, mánudaginn 18. mars 1996 kl. 13:00.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
8. mars 1996