Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 32
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996 Tekur hver skák of langan tíma? Fimm mín- útna skák „Kvöldið er ónýtt. Við hefður getað lokið þessari skák á fimm mínútum en þess í stað tók hún fjóra klukkutíma."- David Bronstein, á Reykjavíkur- skákmótinu, í Alþýðublaðinu. Stunda betl og nærast á snöpum „Þau standa ekki á eigin fót- um fjárhagslega en stunda betl og nærast á snöpum og styrkjum og eru í raun klíka örfárra öfga- fullra kvista." Sigurður Helgi Guðjónsson, um Leigjendasamtökin, í DV. Ummæli Leggja karlkynið í einelti „Svokölluð kvennafræði hafa aðeins eitt markmið: karlmenn. Ekki svo að skilja að kvenna- listakonur gangi á eftir karlpen- ingi með grasið í skónum heldur leggja þær karlkynið í einelti.“ Asgeir Hannes, í Tímanum. Samkynhneigð er fíkn „Samkynhneigð er í raun og veru það þegar fólk hefur ekki tök á lífinu og tilfinningum sín- um. Þetta er óregla í tilfmning- um, miklu fremur skyld flkn en mannréttindum." Snorri Óskarsson safnaðarhirðir, í Tímanum. Er svínarækt eins og brauðgerð? „Það er alveg út í hött og ég kalla það atvinnuróg að líkja ali- fuglarækt og svínarækt við brauðgerð.“ Kristinn Gylfi Jónsson, form. Svínaræktarfél. Islands, í Morg- unblaðinu. Smásjár eru nauðsynlegar vís- indamönnum. Öflugar smásjár Skannasmásjá sú sem hönnuð var i rannsóknarstöð IBM í Zúrich getur stækkað 100 milljón sinnum og greint allt niður í einn hundraðasta af þvermáli frumeindar (3xl0á10 m). Með jónasmásjárrannsóknum hefur tekist að smíða kannabrodda á Blessuð veröldin skannasmásjár sem eru aðeins ein frumeind - þrjú síðustu endalög kannans eru smæsti píramídi búinn til af mannavöld- um - í þeim eru 7,3 og 1 frum- eind. Árið 1986 tókst AT&T Laboratories í New Jersey að flytja eina éinustu frumeind (sennilega germanium) af tungst- en-broddi skannasmásjár yfir á germaniumflöt. Hljóðasti staður „Dauða herbergið í rannsókn- arstofu Bell Telephone í New Jersey er 10,7x8 fermetrar. Það er bergmálslausasta herbergi í heimi. Það gleypir 99,98% þess hljóðs sem á veggina fellur. Hvöss sunnanátt 1 dag verður hvöss sunnanátt ríkjandi um allt land og fremur hlýtt, með rigningu sunnanlands framan af morgni, en gengur síðan í hvassa suðvestanátt með éljagangi um landið sunnan- og vestanvert, Veðrið í dag jafnvel stormur í éljum. Norðaust- anlands léttir til síðdegis. Veður fer smám saman kólnandi og þegar líð- ur á daginn verður hiti kominn nið- ur í frostmark vestanlands. Hiti verður á bilinu 1-7 stig, hlýj- ast austanlands. Sólarlag í Reykjavík: 19.18. Sólarupprás á morgun: 07.56. Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.41 Árdegisflóð á morgun: 11.11. Heimild: Almanak Háskólans. 1° * * vdP V'/ 3° io > t 2° * * m 6 V * v v. V Veðrið kl. 12 í dag og hlýtt Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri Akurnes Bergsstaöir Bolungarvík Egilsstaöir Keflavíkurflugv. Kirkjubkl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Helsinki Kaupmannah. Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Chicago Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Lúxemborg París Róm Mallorca New York Nice Nuuk Orlando Vín Washington Winnipeg skýjaö 8 rigning 6 skúr á síð.klst. 5 haglél 1 rigning og súld 6 slydda 1 rigning 6 hálfskýjað 5 rigning og súld 3 súld á síð.klst. 4 léttskýjaó 4 snjókoma 1 léttskýjaó 2 heióskírt 2 rigning 6 mistur 5 mistur 14 heiöskírt' -9 heiöskírt 6 mistur 6 heiðskírt 3 mistur 9 heióskírt 11 heiöskírt 5 heióskírt 8 rigning 11 skýjaó 15 heiðskírt -7 skýjað 12 alskýjaö -12 alskýjaö 7 mistur 0 heióskirt -7 heiöskírt -10 Sverrir Guðjónsson kontratenór: Þar sem líf og dauði haldast í hendur Sverrir Guðjónsson kontratenór mun annað kvöld vera með tónlist- argjörning í Borgarleikhúsinu. Er gjörningurinn I tónleikaröð Leik- félags Reykjavíkur á þriðjudögum. Verður flutningurinn á litla svið- inu. Á þessum tónlistargjörningi, þar sem tónlist, hreyfing, hljóð- mynd, lýsing og áheyrendur mynda eina óijúfanlega heild frá upphafi til enda, koma fleiri við sögu, píanóleikari, slagverksleik- ari og dansari. Sverrir, sem er kontartenór og hefur því sérstöðu meðal söngvara hér á landi, byggir þessa tónleika sína mjög myndrænt upp og í ná- lægð við áhorfendur. Hafa þeir yf- Maður dagsins irskriftina Söngur dauðans - graf- skrift: „Þetta eru yfirleitt verk sem hafa verið samin við rödd mína og eru þau öll íslensk og eru flutt á þann hátt að þau mynda eina heOd. Ég mun byrja á að syngja þjóðvísuna um Sæmund Klemensson og síðan kemur verk eftir Oliver Kentish, ljóðaflokkur um dauðann. Ég hef reynt að setja Sverrir Guðjónsson. tónlistargjörninginn upp á mynd- rænan hátt. Þeir sem taka þátt í þessu með mér eru Steinunn Birna Ragnarsdóttir, sem leikur undir á píanó, slagverksleikarinn Ludvig K. Forberg, sem kemur fram í einu verkinu, en í því verki leik ég einnig á slagverk, og David Greenall dansari sem sýnir hreyf- ingar í einu verki.“ Sverrir sagði aðspurður að hann hefði ekki verið með slíkan tónlistargjörning áður: „Þetta hef- ur þó lengi verið að brjótast í mér og má segja að ég sé búinn að und- irbúa þetta lengi. Temað Söngur dauðans - grafskrift vísar til þess sem fjallað er um. Dauðinn er í að- alhlutverki, ekki sem neikvætt afl heldur sem hluti af heild þar sem líf og dauði haldast í hendur.“ Sverrir sagði að fram undan væri hjá honum ferð til Bretlands með sönghópnum Voices Thules: „Þá er líklegt að ég taki þátt í óp- eruuppsetningu í Kaupmannahöfn í sumar og það sem er sérstakt við þessa óperu, sem sett er upp sam- eiginlega af Norðurlandaþjóðum, er að hún verður sýnd I skipakví. Þetta er mjög spennandi verkefni og ef af verður fer ég í þriggja mánaða víking.“ Sverrir Guðjónsson hefur verið virkur í að flytja fyrri alda tónlist auk þess sem hann hefur frumflutt mörg verk. Eiginkona Sverris er Elín Edda Árnadóttir og eiga þau tvo syni. Elín Edda er leikmynda- teiknari og vinna hún og Sverrir mikið saman og hefur hún hannað útlit á tónlistagjörningnum annað kvöld. -HK Það er hart barist í úrslitakeppn- inni i handbolta og er leikið á hverju kvöldi í víkunni ef með þarf. Úrslita- keppnin í handbolta Úrslitakeppnin í handbolta hófst í gær með viðureign KA gegn Selfoss á Aklureyri og í Hafnarfirði var slagur Hafnar- fjarðarliðanna Hauka og FH. í kvöld verða tveir leikir. Valur sem var í öðru sæti i deildinni leikur á heimavelli gegn Gróttu og verða Valsmenn að teljast mun sigurstranglegri, en Grótta er þó það lið sem hefur komið mest á óvart í vetur. í Garðabæ leika svo Stjarnan gegn Aftureld- ingu . Verður það örugglega tví- sýn viðureign. Einn leikur er í úrslitakeppninni í 2. deild, UBK leikur gegn Fylki. Allir þessir leikir hefjast kl. 20.00. í körfuboltanum verður í kvöld þriðja viðureign ef úrslit liggja ekki fyrir eftir tvo leiki. Bridge í sumum tilfellum, þegar spiluð er sveitakeppni, er barist hart um samninginn, en þegar tölurnar eru bornar saman, virðist litlu máli skipta hverning niðurstaðan var á öðru borðinu. Tökum hér eitt dæmi úr síðustu Vanderbilt-sveitakeppn- inni í Bandaríkjunum. Hinir þekktu spilarar, Larry Cohen og David Berkowitz sögðu sig upp í 5 lauf á NS spilin, sem áttu góða möguleika á að standa. Þeir fengu hins vegar á sig erfiða vörn, suður gjafari og all- ir á hættu: * 8754 *Á 4. K4 * D97642 4 ÁD1096 1053 ♦ 1086 * K10 4 G3 * KD6 * ÁD972 * ÁG3 Suður Vestur Norður Austur 14 pass 24 2* 34 pass 34 pass 3» 54 pass p/h 44 pass Spilarinn í vestur spilaði út spaðakóng í lit félaga síns og síðan meiri spaða. Austur tók annan slag- inn á spaðadrottningu og spilaði síðan spaðaás í þriðja slag. Larry Cohen sá þá að eini möguleikinn til þess að standa spilið, væri að trompa með laufgosa og vonast til þess að austur ætti kónginn blank- an í laufinu. En þriðji spaðinn var banvænn fyrir sagnhafa og vörnin fékk einn slag til viðbótar á tromp. Laufátta vesturs var mjög mikU- vægt spil! Cohen og Berkowitz höfðu að sjálfsögðu áhyggjur yfir því að hafa ekki staðið spilið, en þegar að samanburðinum kom, þá skipti litlu máli hvort spilið stóð eða ekki. Samningurinn var 5 lauf vedobluð á norðurhendina á hinu borðinu og austur fann eðlilega ekki útspilið í spaða. Með hjálp svíning- arinnar í trompi, fékk sagnhafi alla slagina! og þáði fyrir það 1800 stig. Cohen og Berkowitz töpuðu því 18 impum á spUinu, en hefðu tapað 15 impum ef spilið hefði staðið. ísak Örn Sigurðsson # K2 4» G98742 4- G53 4 85 1466

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.