Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Side 33
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
45
Halla Haraldsdóttir á vinnustofu
slnni.
Málverk
og glerverk
Um þessar mundir sýnir
Halla Haraldsdóttir verk sin í
Café Milano, Faxafeni 11. Halla
hefur haldiö fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt í samsýning-
um bæði innanlands og utan.
Hún hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar og verðlaun fýrir
verk sín. Frá 1978 hefúr Halla
veriö af og til, fýrst við nám og
seinna störf, á hinum virta gler-
og mosaíkverkstæði dr. H. Oidt-
mann í Þýskalandi, sem er eitt
elsta sinnar tegundar þar í
landi.
Halla Haraldsdóttir er fædd
og uppalin á Siglufirði. Þegar
hún stundaði nám við Handíða-
og myndlistaskólann var aðal-
kennari hennar Erró. Nokkrum
Sýningar
árum síðar fór Halla að tilstuðl-
an Barböru Ámason í kennara-
deild skólans en Barbara hafði
stutt Höllu og hvatt hana um
margra ára skeið. Þaðan lá leið-
in til Danmerkur í frekara nám.
Sýning Höllu í Café Mílano
stendur til 19. apríl.
Arkitektúr
sem bókfell
minninga
í kvöld kl. 20.00 flytur prófess-
or Carsten Thau fýrirlestur i
Norræna húsinu og er fyrirlest-
urinn á dönsku.
ITC-deildm Kvistur
Fundur verður haldinn að
Litlubrekku (Lækjarbrekku),
Bankastræti 2, í kvöld kl. 20.00.
Fundurinn er öllum opinn.
Tónlist ljóðsins
Marrian Bodtker bókmennta-
fræðingur er með fyrirlestur í
Norræna húsinu í dag kl. 11.15
og nefhist hann Musik, krop og
tanke og fjallar um tónlist ljóðs-
ins og þátt hugsunar og vitund-
ar í tilurð ljóðsins.
Kirkjulundur
Nærhópur Bjarma um sorg og
sorgarferli er með fund í Kirkju-
lundi, Keflavík, i kvöld kl. 20.30.
Samkomur
Sænskur dagur
Norrænu vikunni í Félags-
miðstöðinni Vitanum í Hafnar-
firði lýkur í dag með sænskum
degi. Kvikmyndasýning verður
kl. 15.30 og verður sænsk tónlist
leikin.
Atkvöld
Taflfélagið Hellir stendur fýr-
ir atkvöldi í kvöld kl. 20.00 í
Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Tefldar verða sex umferð-
ir eftir Monrad- kerfi.
Kaffi Reykjavík
Eyjólfur Kristjánsson og Ingi
Gunnar skemmta í kvöld.
á Suöausturlandi
Björgunarf. Hornafjaröi
Kyndill,
Stjarnan, /v
Kirkjubæjarklaustrl (_J
Fagurhólsmýri
Flugbjörgunarsveltin,
Austur-Eyjafjöllum
Vlkvei
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
KK, gítar
og bassi
Hinn kunni tónlistarmaður, KK verður gestur
Listaklúbbs Leikhúskjallarans í kvöld en þá mun
hann, ásamt Guðmundi Péturssyni gítarleikara og Jó-
hanni Ásmundssyni bassaleikara, leika af fingrum
fram órafmagnaða tónlist.
KK eða Kristján Kristjánsson, eins og hann heitir
Skemmtanir
fullu nafni. er sjálfur flinkur gítarleikari. Um snilli
Guðmundar Péturssonar þarf ekki að fjölyrða og Jó-
hann er bassaleikari Mezzoforte sem segir mest um
getu hans svo það verður forvitnilegt að heyra þessa
þrjá snillinga stilla saman strengi sína við söng KK.
Þess má geta að allir þrír fengu íslensku tónlistar-
verðlaunin fýrir stuttu, KK sem besti textahöfundur-
inn, Guðmundur sem besti gítarleikarinn og Jóhann
sem besti bassaleikarinn.
KK er nú að hefja síðbúna útgáfutónleikafor sína í
KK syngur ný og gömul lög í kvöld.
tilefhi af plötu sinni, Gleðifólkinu, sem kom út fyrir
jól en KK var svo óheppinn að fótbrjóta sig um sama
leyti. Þá bætast við í hópinn Eyþór Gunnarsson, Ell-
en Kristjánsdóttir og Ingólfur Sigurðsson. Tónleikam-
ir í Leikhúskjallaranum í kvöld hefjast kl. 20.30.
Félagslundur:
Fermingarbarnamótið
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýndi
um helgina Fermingarbamamótið. Sýning á leikritinu
verður annað kvöld í Félagslundi. Leikritið er eftir Ár-
mann Guðmundsson, Áma Hjartarson, Hjördísi Hjartar-
dóttur, Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu Óskarsdóttur,
Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þau em
öll félagar í áhugaleikfélaginu Hugleik í Reykjavík.
Leiklist
Verkið var fýrst flutt þar fýrir fjórum árum. Þetta er
leikrit í léttum dúr með söng og dansi.
Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson en Hilmar Öm
Agnarsson og Hjörtur Hjartarson sjá um tónlistina. í
verkinu era sautján leikarar en auk þeirra koma um tíu
aðrir að þessari sýningu. Leikritið er í léttum dúr, með
söng og dansi.
Guðný R. Magnúsdóttir og Ólafur Ásbjörnsson í hlutverk-
um ráðherrafrúarinnar og þjónsins.
Dóttir Skafta
og Sigrúnar
Litla stúlkan á myndinni fæddist
á fæðingardeild Landspítalans 7.
febrúar. Hún var við fæöingu 2.300
Barn dagsins
grömm og 45 sentímetra löng. For-
eldrar hennar eru Skafti Fanndal
og Sigrún Svavarsdóttir og er hún
annað bam þeirra. Hún á tvær
hálfsystur, Birgittu Svövu og Evu
Ósk sem báðar eru sex ára.
Dularfullir atburðir gerast í
kennslustofu.
Lokastundin
Háskólabíó fmmsýndi um
helgina dönsku spennumyndina
Lokastundina (Sidste time). Hún
segir frá sjö framhaldsskólanem-
um sem era boðaðir á fúnd á
föstudegi að loknum skóladegi
en hafa ekki hugmynd um hvers
vegna. Þau koma að skólastof-
unni mannlausri en ákveða samt
að bíða. Fljótlega veröur þeim
ljóst að ekki er allt með felldu og
þau hafa verið læst inni.
Micky Holm, stjórnandi vin-
sæls sjónvarpsþáttar, sem nefh-
ist Lokastundin, bíður spenntur
eftir að eitthvað gerist. Þáttur-
inn fjallar um slys og harmleiki
á meðan atburðimir gerast og
eru krakkarnir nú komnir í
beina útsendingu. Fyrir utan
Kvikmyndir
framhaldsskólann er búið að
stilla upp myndavélum og Micky
er mættur á staðinn því að eitt-
hvað hræðilegt virðist vera á
seyði í skólanum.
Leikstjóri er Martin Schmidt
og í aðalhlutverkum era Lena
Laub Oksen, Thomas Villum
Jensen og Rikke Loise Ander-
son, handrit skrifaði Dennis
Júrgensen.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Ópus Herra Hollands
Háskólabíó: Lokastundin
Laugarásbíó: Vinkonurnar
Saga-bíó: Heat
Bíóhöllin: Babe
Bíóborgin: Fair Game
Regnboginn: Fordæmd
Stjörnubíó: Jumanji
Gengið
Almennt gengi LÍ 8. mars 1986 kL 9.15
Eining Kaup Sala Tollflenai
Dollar 66,250 66,590 65,900
Pund 101,230 101,750 101,370
Kan. dollar 48,240 48,530 47,990
Dönsk kr. 11,5830 11,6440 11,7210
Norsk kr. 10,2910 10,3480 10,3910
Sænsk kr. 9,7460 9,8000 9,9070
Fi. mark 14,4000 14,4850 14,6760
Fra. franki 13,0580 13,1330 13,2110
Belg.franki 2,1755 2,1885 2,2035
Sviss. franki 55,0400 55,3500 55,6300
Holl. gyliini 39,9500 40,1900 40,4700
Þýskt mark 44,7400 44,9700 45,3000
ít. lira 0,04249 0,04275 0,04275
Aust. sch. 6,3600 6,3990 6,4450
Port. escudo 0,4313 0,4339 0,4364
Spá. peseti 0,5318 0,5351 0,5384
Jap. yen 0,62780 0,63150 0,63330
írsktpund 103,960 104,600 104,520
SDR 96,76000 97,35000 97,18000
ECU 83,1000 83,6000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
Lárétt: 1 góð, 5 elska, 8 upphaf, 9
fomsaga, 10 muldrir, 11 keyri, 12
baðið, 13 ávíta, 15 nudda, 16 planta,
18 þáttur.
Lóðrétt: 1 geislabaug, 2 handsama,
3 áforms, 4 spilda, 5 yfirlit, 6 las-
leiki, 7 hnappar, 12 rakna, 13
hryggð, 14 skemmd, 17 ekki.
Lausn á sfðustu krossgátu.
Lárétt: 1 kímni, 6 ós, 8 asa, 9 eðli, 10
stritað, 13 rit, 15 æra, 16 auður, 17
óð, 18 launuðu, 20 frómur.
Lóðrétt: 1 kastali, 2 ístru, 3 mar, 4
neitun, 5 iö, 6 ólar, 7 siðaður, 11 tær-
um, 14 iður, 17 óðu, 19 af.