Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Page 36
Vbadngstalur lasugardagimL
5 13 19
%&'r 28 37 23
Vinningar rjöldl vinninga Vinningsupphæö
1. 5 qf5 0 2.047.790
2. 4 af5 +
3. 4 qf 5 9.980
4. 3 qf5 : 2.001 -620.
—©©©©
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
Ólafur Ragnar um forsetaframboö:
Stuðnings-
menn síst í
hópi alþýðu-
bandalags-
,’,Það er nú svo merkilegt að allur
þorri þeirra einstaklinga sem við
mig hafa samband eru annaðhvort
fylgismenn annarra flokka en þess
flokks sem ég hef tilheyrt eða fólk
sem staðið hefur utan við vettvang
stjórnmálanna. Þetta fólk er ekki
síður fólk sem stutt hefur Sjálfstæð-
isflokk og Framsóknarflokk heldur
en aðra flokka, og kannski enn frek-
ar,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson
alþingismaður.
Ólafur Ragnar segist það nýkom-
inn til landsins að hann hafi ekki
haft mikinn tíma til að skoða hugs-
anlegt framboð sitt til embættis for-
seta íslands í ljósi niðurstöðu skoð-
anakönnunar DV um möguleg for-
setaefni en Ólafur kom sterkur út
úr könnuninni. Hann kveðst hafa
síðustu vikurnar fundið fyrir vax-
andi hvatningu frá bæði einstak-
lingum og hópum fólks sem hann
bæði meti og virði. „Ég hef hins veg-
ar enga ákvörðun tekið um fram-
boð,“ sagði Ólafur í gærkvöld. -SÁ
Heimsmeistareinvígi FIDE:
íslendingar
og Danir
mótmæla
„Mótmæli eiga eftir að berast víð-
ar að og við bíðum eftir því. Það
stendur til að halda mótið í Bagdad
vegna þess að Saddam borgar best,“
segir Guðmundur G. Þórarinsson,
forseti Skáksambands íslands. ís-
land og Danmörk brugðust hart við
fyrirætlunum FIDE að heimsmeist-
araeinvígi Karpovs og Kamskis
verði haldið í Bagdad undir hand-
leiðslu Saddams Hussein. -em
Yfirgefinn bíll:
Skemmt og
stolið
Bíll var skilinn eftir á Reykjanes-
braut við álverið í Straumsvík á
laugardagskvöldið eftir að dekk
hafði sprungið. Þegar eigandinn
vitjaði bílsins í gær var búið að
brjóta hliðarrúðu og stela tveimur
hátalaraboxum. Reynt hafði verið
að losa um geislaspilara en ekki tek-
ist að fjarlægja hann. Af gremju eða
tómri skemmdarfýsn var skorið í
bæði framsætin. -sv
fjöldi bíla keyrði fram hjá slösuðum ungmennum:
Ég er þakk-
lát fyrir að
vera á lífi
- segir Stella Ósk
„Bíllinn fór meira en fjórar velt-
ur og stöðvaðist rétt við brúnina á
einhverju gili. Við erum afskap-
lega heppin að við slösuðumst
ekki meira og ég er þakklát fyrir
að vera á lífí,“ segir Stella Ósk Sig-
urðardóttir, 14 ára stúlka, ein fjög-
urra í bifreið sem valt rétt utan
við Akranes á föstudagskvöldið.
Stella segir þau hafa orðið mjög
hrædd eftir veltuna. Birna, vin-
kona hennar og jafhaldra, meidd-
ist mikið á hendi og liggur enn á
sjúkrahúsi. Stella lá á sjúkrahúsi
Sigurðardóttir eftir bílveltu við Akranes
um nóttina en tveir 17 ára strákar
sluppu vel og fengu að fara strax
heim að lokinni skoðun.
„Það var mjög hvasst og við vor-
um rosalega hrædd. Þegar við svo
komum upp á veg og enginn
fékkst til aö stoppa til þess að
hjálpa okkur urðum við enn
hræddari. Ég hugsa að um 10 bílar
hafa þotið fram hjá okkur án þess
að stoppa og ég hef engar skýring-
ar á því hvemig á því stendur.
Ungt fólk stendur ekki í vegar-
kanti í svarta myrkri og leiðinda-
veðri nema eitthvað sé að. Það var
svo loksins Hjörleifur Helgason,
maður frá Akranesi, sem stoppaði
fyrir okkur og kom okkur á
sjúkrahús. Fýrir það erúm við
þakklát.“
Stella segir að annar strákanna,
sá sem keyrði, hafi verið sá eini
sem var í belti en hin hafi verið
heppin að hendast ekki út úr bíln-
um. Hún sagðist vera öll blá og
marin en óðum að ná sér eftir
sjokkið þegar hún talaði við DV í
gærkvöld. -sv
Norðmanns
Skákmennirnir sem enduðu í þremur efstu sætunum á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í gær. Þeir fengu allir 7 vinn-
inga úr 9 skákum, en þegar reiknaður hafði verið út styrkur andstæðinga þeirra úr skákunum var Simen Adgestein
úrskurðaður sigurvegari, Pedrag Nikolic í öðru sæti og Jonathan Tisdal í því þriðja. DV-mynd GVA
Uppgangur hjá Alla ríka:
700 milljóna
fjárfestingar
- Hólmaborgin stækkuð
„Þetta er hugmynd sem eftir er
að ræða hér í stjórn fyrirtækis-
ins,“ segir Aðalsteinn Jónsson,
forstjóri Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar, um fyrirhugaða stækkun
á Hólmaborginni, stærsta loðnu-
veiðiskipi íslenska flotans.
Hólmaborgin ber 1.600 tonn
eins og hún er nú en hugmyndin
er sú, að sögn Aðalsteins, að
stækka skipið upp í 2.300 tonn.
„Við erum að spekúlera í ýmsu
en ekkert er ákveðið enn þá,“
segir Aðalsteinn.
Samkvæmt heimildum DV er
ætlunin að lengja Hólmaborgina
um 12-13 metra. Þá er verið að
endurnýja verulega Guðrúnu
Þorkelsdóttur og búa Hólmatind
á rækjuveiðar. Búið er að endur-
byggja loðnubræðslu fyrirtækis-
ins sem nú framleiðir hágæða-
mjöl og verið er að reisa mikla
tanka fyrir loðnubræðsluna.
Heildarfjárfestingar fyrirtækis-
ins munu nema um 700 millj-
ónum króna. -SÁ
Verslunin Gullbrá:
Miklum verð-
mætum stolið
Brotist var inn í verslunina Gull-
brá, Nóatúni 17, aðfaranótt laugar-
dags. Geysimiklum verðmætum var
stolið, skartgripum, ilmvötnum,
sundbolum, samfellum, síma og ein-
hverri skiptimint. Lögreglan hafði
ekki upplýsingar um hversu mikið
tjónið er talið vera en ljóst er að það
er umtalsvert. -sv
Reykjavíkurskákmótið:
Fótboltakapp-
inn sigraði
Norski fótboltakappinn Simen
Agdestein gerði sér lítið fyrir og
hampaði sigri á Reykjavikurskák-
mótinu sem lauk í gær með níundu
umferð. Þrír menn enduðu efstir og
jafnir með 7 vinninga, Agdestein,
Predrag Nikolic og Jonathan Tis-
dall, en Agdestein var úrskurðaður
sigurinn á grundvelli þess að hann
tefldi gegn sterkustu andstæðingun-
um. Nikolic hreppti annað sætið
samkvæmt sömu reglu. Norömaður-
inn Tisdall missti af toppsætinu
með því að tapa í 8. umferð fyrir
Nikolic.
í næstu sætum voru Paul van der
Sterren og Nikolaj Borge með 6'/2
vinning en Hannes Hlífar og Mar-
geir voru meðal þeirra sem enduðu
í 6.-10. sæti með 6 vinninga. -ÍS
L O K I
Veðrið á morgun:
Suðvest-
an strekk-
ingur
Á morgun er gert ráð fyrir
suðvestan strekkingi og éljum
um vestanvert landið en frem-
ur hægri breytilegri átt og rign-
ingu um tíma austanlands. Hiti
verður á bilinu 0-4 stig austast
á landinu en annars 0-3 stiga
frost.
Veðrið í dag er á bls. 44
cQszama
Brook
rompton
1
RAFMOTORAR
Pouben
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499
Mánudagskvöld
Fjölskylduhlaðborð