Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1996 5 Fréttir Borgarráð Reykjavíkur Viðhorfskönnun Samtaka iðnaðarins: Fleiri velja ís- lenskar vörur sökum gæða - niðurstöðurnar kynntar á Iðnþingi í dag Rúmlega 9 Islendingar af hverjum 10 telja íslenskar vörur sambærileg- ar eða betri að gæðum en erlendar. Þetta eru meðal niðurstaðna í ný- legri viðhorfskönnun sem Samtök iðnaðarins létu gera í tengslum við átakið „íslenskt, já takk“ og kynnt er á Iðnþingi sem hefst í dag í Húsi iðnaðarins. ÍM-Gallup framkvæmdi viðhorfs- könnunina . í úrtakinu voru 1.200 manns og svarhlutfallið varð 71,8%. Þegar aðspurðir voru beðnir um að bera saman verð og gæði komu í ljós greinilegir yfirburðir íslensku framleiðslunnar hvað gæðin varðar. I 95% tilvika þóttu gæði íslenskra vara betri eða álíka og erlendra. Verðið þykir hins vegar lakara í 63% tilvika en álíka í 31% tilvika. Hér er um töluverðan mun að ræða frá fyrri könnunum en þeim lands- mönnum sem telja íslenskar vörur dýrari en innfluttar hefur fækkað verulega eða um 9%. Þá telja tæp 8% fleiri að verð á íslenskum vör- um sé álíka miðað við frá fyrra ári. Þeir sem sögðust frekar velja ís- lenskar vörur voru spurðir af hverju. Tæplega helmingur svar- enda sögðust velja íslenskt af því að það skapaði atvinnu, um þriðjungur vegna átaksins og rúm 10% sögðust vilja styðja íslenska framleiðslu. Frá síðustu könnun hefur þeim fjölgað sem vísa til átaksins. -bjb Sveitarstjóri Suðureyr- ar verður sparisjóðs- stjóri á Þórshöfn „Eg held að Norðurlandskjör- dæmi eystra, sem ég er að fara í núna, sé eina kjördæmið sem ég hef aldrei unnið í svo það var kannski tími til kominn," segir Halldór Karl Hermannsson, sveitarstjóri á Suður- eyri, sem hefur verið ráðinn spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis. Halldór hefur verið sveitarstjóri á Suðureyri í rúm 4 ár en starf hans leggst niður vegna sameiningar sveitarfélaga. „Samhliða því gefst tækifæri á að fara í starf sem virð- ist mjög lofandi og spennandi og þar af leiðandi ákváðum við að táka þeirri áskorun. Það er með pólítík eins og annað að hún er mjög spennandi og gaman að takast á við þau verkefni sem þar eru. En það er til lítils að sinna almannamálum nema maður sé með traustan at- vinnugrundvöll á bak við sig,“ segir Halldór. -IBS Miðbæjarskól- anum breytt í skrifstofur Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að hýsa fræðslumiðstöð Reykjavíkur í Miðbæjarskólanum. Samtímis verður Miðskólanum, sem leigt hefur í Miðbæjarskólan- um, sagt upp húsnæðinu til að rýma til fyrir hinni nýju stofnun. Sjálfstæðismenn í borgarráði mótmæltu því að gera skrifstofu- húsnæði úr hinni öldnu og sögu- frægu skólabyggingu. Þá þýddi breytingin það að Miðskólinn verð- ur í húsnæðishraki og starfsemi Tjarnarskóla raskast. Verulegur kostnaður sé auk þess fyrirsjáanleg- ur, bæði vegna innréttinga og breyt- inga yfir í skrifstofuhúsnæði og breytinga í kjallara vegna þarfa Námsflokka Reykjavíkur sem áfram verða í húsinu. Jafnframt verði að gera breytingar á húsnæði Náms- flokkanna í Mjódd. Heildarkostnað- ur vegna þessa verði því minnst 175 milljónir króna í stað 70 milljóna eins og R-listinn heldur fram. Málið á eftir að hljóta lokaafgreiðslu borg- arstjórnar. -SÁ MEGA DRIVE LEIKJATÖLVA M/STÝRIPINNA 01 kró nu r fyrir þá sem vilja mikið fyrir lítið! 28" LITASJÓNVARP Kolster litasjónvarp með Black Line myndlampa, fjarstýringu, 2x20 W Nicam Stereo með Surround hát. tengimögul., aðgerðir á skjá, textavarp með ísl. stöfum, 2x Scart tengi, Pal möttaka. ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS #.900 STGR. o o SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA Miðbæjarskólinn í Reykjavík. Fræðslumiðstöð fíeykjavíkur flytur inn, Miðskólinn víkur. Fræðslumiöstöð í hús Miðbæjarskólans: Liggur Ijóst lyrir að Miðskólinn hættir - segir Bragi Jósepsson, formaður skólanefndar „Það liggur ljóst fyrir að Miðskól- inn neyðist til að hætta starfsemi sinni þegar hann missir húsnæðið í Miðbæjarskólanum. Reykjavíkur- borg getur ekki staðið við fyrirheit um að tryggja honum húsnæði. Annað húsnæði fyrir grunnskóla er einfaldlega ekki til í borginni," seg- ir Bragi Jósepsson, formaður skól- anefndar Miðskólans. Hann segir að Reykjavíkurborg verði krafin um svör við því hvort hún ætli að standa við staðfestingu borgarstjóra frá 8. ágúst 1989 á að 'borgin léti Miðskólanum í té húsnæði sem upp- fyllti lagakröfur um grunnskólahús- næði. Því verði varla trúað að óreyndu að ganga eigi milli bols og höfuðs á eina heilsdagsskólanum í borginni sem auk þess sér nemend- um fyrir fullu fæði. Hann segir að gengið verði fast eftir því við borg- ina að hún standi við það áfram. Ef annað dugar ekki kemur fyllilega til greina að sögn Braga að setja lög- bann á brottvísun Miðskólans úr Miðbæjarskólanum. Ekki náðist í Sigrúnu Magnús- dóttur, forseta borgarstjórnar, vegna þessa máls. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.