Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1996
Sviðsljós
hljómtækjasamstæða MHC 801
Julie lætur gera
að gallblöðrunni
Söng- og leikkonan Julie
Andrews gekkst undir gall-
blöðruaðgerö fyrir tveimur vik-
um og segir að ekki hafi mátt
seinna vera. „Ég áttaði mig ekki
á að mér liði svona illa. Ég var
með slæmsku í baki en það var
ekki bakið eftir allt saman. Það
er eins gott að ég var í svona
góðu formi,“ segir Julie sem get-
ur aftur farið að leika í söng-
leiknum Victor/Victoria á
Broadway. Átta sýningar á
viku, takk fyrir.
Glæsileg samstæða með
geislaspilara, kassettutæki,
160W. surround magnara,
Karaoke, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
Fjalla5 verður uni matartilbúning
fyrir páskana.
Uppskriftir að kökum, brauðréttum og ostaréttum
verða birtar. Sagt verður frá páska-
siðum o.fl.
>
Liam og Natasha
eignast son
Irsk-bresku leikarahjónin
Liam Neeson og Natasha Ric-
hardson eignuðust nýlega lítinn
sólargeisla og var sveinninn
skirður Michael í lítilli kirkju
suður á Ítalíu. Ekki nóg með að
foreldrarnir séu í leiklistinni,
heldur er amman heldur ekki af
verri endanum í þeim bransa,
sjáif Vanessa Redgrave. Eins og
nærri má geta eru foreldramir
óumræðilega stoltir af aíkvæm-
inu, enda sá stutti víst mikið
krútt.
Mibvikudaginn 27. mars mun
aukablaó um mat og kökur
fylgja DV.
Þeir sem áhuga hafa á að koma efni í blaðið
hafi samband við Ingibjörgu Oðinsdóttir,
ritstjórn DV, í síma 567 6993.
Auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV,
hið fyrsta í síma 550 5720.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagur 21. mars.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
Bandaríski popparinn Lenny Kravitz hristir hárlubbann á tónleikum í Vínar-
borg fyrir stuttu og létu aðdáendur hans sér vel líka. Símamynd Reuter
Walter Thiele og Renate. Það eru
margir sem erfa vilja hana og alla
milljarðana að honum látnum?
Aukablaö um
Sundur, saman
eða hvað?
Þrálátur
orðrómur
um það
Ungverja-
landi
brestir séu
komnir í ást-
arsamband
bandarísku
leikkonunnar
og spænska
Antonios Banderas,
von á barni saman.
Ungverjar eru að vonast til að
við væntanlegar tökur á mynd-
inni Evitu, með Antonio og
Madonnu í aðalhlutverkunum, i
Ungverjalandi muni ástin milli
þeirra blossa upp. Madonna hef-
ur heldur ekki farið leynt með
hrifningu sína á Tona.
er
Melanie Griffith
hjartaknúsarans
sem eiga
SANYL
Þakrennur fyrir
íslenska veðráttu
f AlFABÖRG?
..KNARRARVOGI4 • 8 568 6755
Hver vill konuna
og milljarðana?
Það vakti mikla athygli þegar þýski milljarðamæring-
urinn Walter Thiele og eiginkona hans settu auglýsingu
í blöð þar sem þau auglýstu eftir eiginmanni sem tæki
við bæði eiginkonunni og milljörðunum að honum látn-
um. Sagt var frá þessu hér í blaðinu og að nokkrum dög-
um siðar hefðu bréf frá vonbiðlum oltið stanslaust inn
um lúguna.
Nú hafa Walter og eiginkona hans, Renate, sem er 29
ára og 46 árum yngri, flokkað bréfin. Verða um 100 von-
biölar skoðaðir nánar en þau linna ekki látum fyrr en
þrír eru eftir. Þeir verða hins vegar skoðaðir vel og
lengi því ekki á að ana að neinu.
Sá sem fær Renate og milljarðana verður að hafa
löngun til að aka Rolls Royce, sigla lystisnekkjum, búa
í lúxusvillum í Sviss, Monte Carlo, Cannes, Manila, New
York og London og vilja umgangast þotugengi þar sem
peningar eru hlutur sem ekki er talað um heldur nokk-
uð sem maður bara á.
Walter er svo ríkur að hann veit vart aura sinna tal.
Auðæfin á hann ýmsum uppfinningum sínum að þakka
en peningar streyma inn á bankareikninga hans hverja
einustu sekúndu. Hann hefur vanist því að eiga allt og
geta allt en varð fyrir áfalli í haust þegar 29 ára sonur
hans og tengdadóttir fórust í bílslysi í Póliandi. Þá tók
hann líf sitt til endurskoðunar. Hann fann að elli kerl-
ing var farin að láta á sér kræla og gerði sér grein fyr-
ir að hann ætti ekki langt eftir ólifað. Þá ákváðu þau hjú
að setja hina makalausu auglýsingu í blöðin.
Walter leggur ríka áherslu á að tilvonandi eiginmað-
ur verði að hugsa vel um auðæfin og eiginkonuna. Og
hann vill ekki að Renate verði óhamingjusöm ekkja. Við
þetta má bæta að Walter hefði ekkert á móti því að nor-
rænn maður eignaðist Renate að honum látnum. Hann
segist hafa góða reynslu af Norðurlandabúum en þeir
hafi yfir fágun og viðmóti að búa sem honum sé að
skapi.
„Þó Walter hafi orðið forríkur á skrýtnum uppfinn-
ingum eins og hláturpokanum þá er þetta ekkert grín.
En verðandi eigimaður minn má ekki halda að hann
geti vaðið í sjóðina. Ég mun eiga peningana. En verði
nýi eiginmaðurinn duglegur mun hann ekki skorta
neitt. Það er öruggt mál,“ segir Renate.