Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Page 4
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 4 %éttir__________________________________________________________________________________ Frumvarpið um lífeyrisráttindi opinberra starfsmanna ekki lagt fram: - svona gera menn ekki, sagði Davíð um árið og lét hætta við barnaskattinn Þaö urðu margir hissa í gær þeg- ar Davíð Oddsson forsætisráðherra steig í ræðustól á Alþingi og lýsti því yfir að frumvarpið um lífeyris- réttindi opinberra starfsmanna yrði ekki lagt fram. Breytingar á lífeyris- réttindum yrðu ekki knúnar í gegn í andstöðu við kennara eða aðra starfsmenn ríkisins. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra hefur verið í orlofi síðustu daga og Davíð gegnt fiármálaráð- herraembættinu á meðan. Friðrik haíði aldrei ljáð máls á að hætta við að leggja frumvarpið fram eða breyta því. Þess vegna lögðu tals- menn kennara, BSRB og BHMR í fundaherferð um landið þar sem þeir héldu vel á þriðja hundrað fé- lags- og vinnustaðafundi til að mót- mæla frumvarpinu með þessum ár- angri. Það sem mesta athygli vekur í sambandi við þetta er að þetta er í annað sinn sem Davíð Oddsson for- sætisráðherra grípur fram fyrir hendumar á ,Friðriki Sophussyni fiármálaráðherra og rekur hann til baka með óvinsælt mál. í hinu til- fellinu var það frumvarpið um barnaskattinn, sem forsætisráð- herra stöðvaði í sjónvarpsútsend- ingu með orðunum „svona gera menn ekki“. Þetta gerðist 10. nóvember 1994. Þann sama dag hafði Friðrik Soph- usson beðið um utandagskrárum- ræðu um málið. Þar sakaði hann Ólaf Ragnar Grímsson um lagabrot þegar hann sem fiármálaráöherra lét hætta við að innheima skatta af bömum sem vora að vinna fyrir vasapeningum. Síðar þann sama dag hélt svo Friðrik fund með ritstjóra, aðstoðar- ritstjóra og blaðamanni DV í fiár- málaráðuneytinu vegna þessa sama máls. DV hafði barist harðast fyrir því að frumvarpið yrði dregið til baka. Á miðjum þessum fundi var fiármálaráðherra kallaður i símann. Þegar hann kom til baka var allt breytt. Þá taldi hann allt í einu koma til greina að breyta framvarp- inu. Skömmu eftir að fiármálaráð- herra hafði lokið símtalinu var það sem forsætisráðherra kom út úr þingflokksherbergi Sjálfstæðis- flokksins í þinghúsinu og sagði þessi frægu orð. „Svona gera menn ekki.“ -S.dór Vélar að hefja vinnu við grunn vörugeymslunnar. DV-mynd ÆMK Eina nýsmíð varnarliðsins í ár: Vörugeymsla reist og end- urbætur fyrir 727,5 milliónir ÐV, Suðumesjuni: _ _______ „Verkefnið felur í sér að byggð verður stór vörugeymsla ásamt skrifstofuhúsnæði við matvöru- verslunina auk mikilla endurbóta á versluninni sjáifri. Þetta verður eina nýsmíðin sem íslenskir aöal- verktakar hefia framkvæmdir við í ár á Keflavíkurflugvelli,“ sagði Friðþór Kr. Eydal, upplýsingafull- trúi Varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli, í samtali við DV í morgim. íslenskir aðalverktakar eru byrj- aðir á framkvæmdum við byggingu vörugeymslunnar viö matvöruhús vamarliðsins. Þetta er mikið verk og hljóðar samningurinn upp á 727,5 milljónir króna. Verkinu á að vera lokið fyrir haustið 1997. -ÆMK Stýrimannaskólinn í í dag, laugardag, milli kl. 13.30 og 17.00 mun Stýrimannaskólinn í Reykjavík halda árlegan kynningar- dag sinn á skólanum undir ein- kunnarorðunun „sigling til framtíö- ar“. Sýndar verða allar deildir skól- ans og nemendur og kennarar munu sýna gestum þáu siglinga- og fiskileitartæki og notkun þeirra sem við skólann era. Einnig munu nemendur skólans taka þátt í splæs- ingarkeppni (vírasplæsing). Mörg Reykjavík fyrirtæki, sem tengjast sjávarút- vegi, munu kynna þjónustu sína innan og á lóð Sjómannaskólans. Þyrla Landhelgisgæslunar, TF-LÍF, mun koma á svæðið og sýnd veröur björgun manna ef veöur leyfir. Biskup til Strasborgar: Undirbýr aðalfund Biskup Islands, herra Ólafur Skúlason, heldur á þriöjudag til Strasborgar þar sem hann stýrir undirbúningsfundi fyrir aðalfund guðfræðistofnunar Lútherska heimssambandsins en biskup er stjórnarformaður stofnunarinnar. Missagt var í gær að fundurinn væri til undirbúnings biskupafundi sambandsins og er beðist velvirð- ingar á því -SÁ Dansað í Kolaportinu Nemendur og keppnispör úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru ætla að bjóða gestum Kolaports- ins upp á glæsilegan dans helg- ina í dag og á morgun. Sérstakar danssýningar verða kl. 12,14 og 16 báða dagana. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur í tvígang tekið fram fyrir hendur samráðherra síns, Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra, og blásið af óvin- sæl mál. DV-mynd BG Miðskólinn hvert annað einkafyrirtæki: Borgin á engan hátt skuldbundin - segir formaður skólamálaráðs Reykjavíkur „Borgin er á engan hátt skuld- bundin til að sjá Miðskólanum fyrir húsnæði. Leigusamningi við Mið- skólann var sagt upp fyrir sl. ára- mót samkvæmt ákvæðum í samn- ingnum. Ég skil einkafýrirtæki og þar með einkaskóla þannig að stjómendumir eigi að sýna einka- framtak í því að bjarga sér, m.a. um húsnæði," segir Sigrún Magnúsdótt- ir, formaður skólamálaráðs Reykja- víkur. Hún vísar því algerlega á bug að borgin sé á nokkurn hátt skuld- bundin gagnvart Miðskólanum með að sjá honum fyrir húsnæði fremur en öðrum einkafyrirtækjum að einkaskólum meötöldum. Ekkert finnist í gögnum borgarinnar eða borgarstjóraembættisins um það. Þá fari ekkert uppeldis- eða kennslu- fræðilegt brautryðjendastarf fram í Miðskólanum sem réttlæti slíkt. -SÁ Eigendur Miðskolans verða sjálfir að finna nýtt húsnæði handa fyrir- tæki sfnu, segir Sigrún Magnúsdótt- ir, formaður skólamálaráðs Reykja- vfkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.