Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 JjV
Dagur í lífi Theódóru Þórarinsdóttur, starfskonu Stígamóta:
Setið á fundum og svarað í síma
Eins og hjá flestum öðrum byrjaði dagurinn
við það að vekjaraklukkan hringdi. Fyrsta hugs-
un mín var sú hvort einhver möguleiki væri á
því að klukkan væri að misskflja eitthvað, það
væri kannski laugardagur og ég mætti sofa í
nokkra klukkutíma í viðbót. Svo var ekki og ég
ákvað því að takast á við daginn með því að fara
í sturtu og hressa mig við.
Þrátt fyrir góðan ásetning sleppti ég undir-
stöðu dagsins, það er morgunmatunum og hélt
af stað gangandi í vinnuna. Ég er það heppin að
búa í húsi því sem amma mín og afi byggðu og
bjuggu í nokkra áratugi að það tekur mig ekki
nema um 5 mínútur að ganga í vinnuna. Auk
þess sem það er næsta vonlaust að fara í bíl til
vinnu vegna bílastæðisleysis við Vesturgötuna
þar sem Stígamót, vinnustaður minn, ■ eru til
húsa.
Hellt upp á könnuna
Fyrsta verk á Stígamótum er að hlusta eftir
skilaboðum á símsvaranum. Við erum með vakt
til Klukkan sjö á kvöldin, eftir það tekur sím-
svarinn við skilaboðum þar til klukkan níu á
morgnana. Næsta verk er að hella upp á kaffi-
könnuna, þá fyrstu þann daginn en þær eiga ef-
laust eftir að vera margar þar til líður að kvöldi.
Meðan kaffið silast í kaffikönnuna lít ég í við-
talabókina og sé fram á að það eru viðtöl á
nærri klukkutímafresti. Yfirleitt er fyrsta viðtal
ekki fyrr en kl. 9.30 en við nýtum þann tíma í að
fá okkur kaffi og spjalla örlítið saman um við-
fangsefni dagsins. Þess má geta að fólk á öllum
aldri leitar til Stígamóta, konur, karlar, ungling-
ar og böm, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Þegar fólk leitar fyrst til Stígamóta er
því boðið upp á einkaviðtöl. Einstaklingsbund-
inn stuðningur við að ræða ofbeldið, rifja það
upp og setja það í orð eru fyrstu skrefin í þá átt
að ná tökum á afleiðingum ofbeldisins á sjálfs-
mynd og sjálfsvirðingu þolenda.
Undanfarnar vikur hefur verið mikið að gera
á Stígamótum og þá ekki síst vegna „biskups-
málsins" svokallaða. Öll sú umræða bæði í fjöl-
miðlum og utan þeirra eykur allt álag á okkar
starf. En það er reynsla okkar að öll fjöl-
miðlaumfjöllun, sérstaklega vönduð og yfirveg-
uð um kynferðisofbeldi, auðveldar þolendum
mjög að leita sér aðstoðar.
Theódóra Þórarinsdóttir, starfskona Stígamóta.
Sýning á sex ára afmæli
Þann 8. mars siðastliðinn héldum við einnig
upp á 6 ára starfsafmæli okkar með sýningu
á verkum sem unnin eru af konum sem leit-
að hafa til Stígamóta. Sýningin, sem verður
opin til 24. mars, heitir „Þvottur á snúru" og
er hún ætluð til þess að gefa innsýn í tilfinn-
ingcdegar afleiðingar kynferðislegs ofbeldis.
Jafnframt er brugðið upp mynd af viðhorfum
réttarkerfisins til þessara mála.
Miili viðtala þennan dag svarði ég símanum.
En umfangsmikið ráðgjafarstarf fer einnig
fram í gegnum síma og þá oft við einstak-
linga sem búa úti á landi. Að jafnaði er tekið
á móti 20-30 símtölum á dag alla virka daga
ársins.
En rétt fyrir hádegiö fékk ég fax frá vinkonu
minni sem býr i Danmörku og var það mjög
svo ánægjulegt. Alltaf gott að vera tengd við
umheiminn, sérstaklega þegar svona mikið
álag er í vinnunni. Ég ætlaði að senda henni
svarbréf í hádeginu en til þess vannst enginn
tími.
Dagurinn hélt síðan áfram sinn vanagang en
eftir síðasta viðtalið kl. 19.00 vorum ég og
önnur starfskona búnar að ákveöa undirbún-
ingsfund. Við erum nýbúnar að ljúka sjáifs-
hjálparhóp hér hjá Stígamótum þar sem unn-
nið er með ákveðið þema og ætlum að fara
setja annan af stað. Við munum eflaust byrja
þann hóp næstkomandi þriðjudagskvöld. En
meðan við spjölluðum saman voru komnar
hingað nokkuð margar konur til að taka þátt
í öðrum sjálfshjálparhópum. Þegar ég gekk út
um kvöldið var klukkan langt gengin í níu en
ekki öll nótt úti enn hjá Stígamótum því hús-
inu verður eflaust ekki lokað fyrr en undir
miðnætti.
Meðan ég gekk heim hugsaði ég um það hvað
ég ætti fljótlegt til í ísskápnum. Seinna um
kvöldið var ég búin að ákveða að hitta vin
minn á kaffihúsi sem ég og gerði, alltaf gott
að geta slakað örlítið á eftir langan dag í
vinnu. Ég hef nú samt oft velt því fyrir mér
hvað ég gerði við tímann á kvöldin áður en
kaffihúsamenningin varð allsráðandi. Þegar
ég lagðist loks á koddann var klukkan öfugu
megin við miðnættið þrátt fyrir góðan vilja
að fara að sofa á skikkanlegum tíma.
Finnur þú fimm breytingar? 350
Nafn:.
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fertugustu og
áttundu getraun reyndust vera:
1. Pálmi Jónsson
Hólavegi 27
550 Sauðárkrókur
2. Ámý Lára Sigurðardóttir
Grenigrund 1
300 Akranes
Myndirnar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þeg-
ar betur er að gáð kemur í
ljós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum
verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu
merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr.
4.275, frá Bræðmnum Ormsson, Lág-
múla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið meö lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 350
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík