Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
%-idge
17
Landsbankamótið
Það er mikið um að vera í Bridge-
höllinni við Þönglabakka því að
undanúrslit íslandsmótsins í bridge
eru spiluð um helgina og verður þá
ákveðið hvaða tiu sveitir spila til
úrslita um páskana.
Fjörutíu sveitir spila í fimm átta
sveita riðlum og komast tvær sveit-
ir úr hverjum riðli í úrslitakeppn-
ina. Dregið er um sæti í riðlana, þó
þannig að stigahæstu sveitirnar
lendi ekki saman í riðli. Það á að
tryggja að úrslitakeppnin verði sem
sterkust. Líklegt verður að teljast að
allar A- sveitirnar (þ.e. þær stiga-
hæstu) komist áfram, en þær eru
sveitir Landsbréfa, Búlka, VÍB,
Samvinnuferða/Landsýnar og Ólafs
Lárussonar. B-sveitirnar eru hins
vegar ekki eins öruggar, því sótt er
að þeim úr öllum áttum. í A-riðli
berjast liðsmenn Hjólbarðahallar-
innar við sveitir Lyfjaverslunar ís-
lands og sveit Stefáns G. Stefánsson-
ar frá Akureyri um hitt sætið. í B-
riðli eru margir um hituna og þar
koma sveitir Timans, Antons Har-
aldssonar frá Akureyri, Sigfúsar
Þórðarsonar frá Selfossi (Skandia)
og Drafnar Guðmundsdóttur úr
Hafnarfirði allar til greina í hitt
sætið. í C-riðli berjast sveitir Roche,
Hróa hattar og H.P. kökugerðar
undir forystu Kristjáns M. Gunnars-
sonar um hitt sætið. í D-riðli er
sveitin Bangsimon sterkust á papp-
írunum, en helsti keppinautur
hennar, sveit ísaks Sigurðssonar, er
án Helga Sigurð>sonar. í E-riðli
stendur baráttan milli tveggja
stórra útgerðarfyrirtækja, sveitar
Granda og Þormóðs ramma. Sveit
Granda er skipuð sömu spilurum og
spilað hafa undir merki Metro, en í
hinni er siglfirsk fjölskylda, sem
enginn skyldi vanmeta.
En sjón er sögu ríkari og ég hvet
alla bridgeunnendur til þess að
fylgjast með undanúrslitunum um
helgina.
En nú í allt aðra sálma. Tvöfóld
geimsveifla er ávallt áhugaverð og í
flestum tilfellum er um að ræða há-
litageim í báðar áttir. Það er hins
vegar óvenjulegra að vinna þrjú
grönd í báðar áttir og raunar fékkst
samtals 21 slagur.
Og hverjir eru nú hetjur okkar í
þessu tilfeúi. Það eru hjónin Hjórdís
og Curtis Cheek, sem náðu þessum
árangri í svæðamóti í Bandaríkjun-
um, sitt með hvorum makkernum.
Makker Curtis var Mike Capelletti
bridgemeistari, en Hjördísar ung
stúlka að nafni Shannon Lipscomb,
sem þykir bráðefnileg.
Við skulum líta á spilið.
N/a-v
12 Austu pass ? D7 »ÁD108432 ? Á8 ? 84
? AK8: V K7 ? 973 ? Á93 N V A S * 96 » G95 * KDG1062 * 105
Norður 1 hjarta * G105 » 6 * 54 * KDG"/ r Sui lg! 4 62 >ur Vestur rand* 2 spaðar
3 hjörtu pass
pass pass
* kröfusögn
3 grönd pass
rjrval
^L—^/ límarit fyrir alla
á næsta
sölustað
eða í áskríft
- undanúrslit íslandsmótsins hófust í gær
í n-s sátu Capelletti og Curtis.
Vestur spilaði út spaðakóng og síð-
an litlum spaða á drottningu blinds.
Curtis spilaði laufi á kóng, vestur
drap með ás og tók spaðaás. Þá var
aðeins eftir að prófa laufið og svína
hjarta. Það gekk eftir og raunar
fékk Curtis tíu slagi, þegar vestur
spilaði ekki tígli.
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
Á hinu borðinu sátu a-v
Lipscomb og Hjördis en þar gengu
sagnir á þessa leið:
Nörður Austur Suður Vestur
1 hjarta 2 tíglar dobl* 2 spaðar
3 hjörtu pass pass 3 grönd
pass pass pass
* Neikvætt
Norður spilaði út hjartadrottn-
ingu, sem er i sjálfu sér í lagi, þótt
sú ákvörðun hafi reynst illa í þessu
tilfelli. Með tíglana 2-2 var samning-
urinn pottþéttur, meðan lítið hjarta
hefði drepið hann strax. Hjördís
fékk raunar 11 slagi, vegna þess að
vörnin gafst upp, eftir hið örlaga-
ríka útspil.