Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
iþróttir
Hvaða lið
veriur
meistari?
Þorbergur Aðalsteinsson.
KA verður
meistari
„Það er mín tilflnning að KA
nái að verja titilinn sinn. Við
verðum að hafa í huga að heima-
völlur KA er engum líkur og lið-
ið fær þar alltaf oddaleik ef til
hans kemur. KA-liðið mætir Val
í úrslitaleikjum og ekki kæmi
mér á óvart að leikimir yrðu
alls fimm eins og í fyrra,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson, fyrr-
verandi landsliðsþjáifari og nú-
verandi þjálfari 1. deildar liðs
ÍBV.
„Þetta er auðvitað með þeim
fyrirvara að engin alvarleg
meiðsli koma upp. í undanúrslit
fara KA, FH, Valur og Stjarnan.
Leikirnir í 8-liða úrslitunum
hafa verið frábærir en keyrslan
á eftir að verða mikii og það
kemur niður á gæðum leikj-
anna,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson.
Jóhann Ingi Gunnarsson.
Veðja á
Valsmenn
„Ég veðja á Valsmenn þótt
þeir hafi ekki virkað neitt sann-
færandi. Valsmenn hafa hvOd-
ina núna og fá því tækifæri til að
slappa af og hugsa sitt ráð. Svo
er það alltaf að Guðmundur
Hrafnkelsson verður aldrei betri
en þegar nær dregur úrslit-
unum,“ sagði Jóhann Ingi Gunn-
arsson handboltasérfræðingur.
„Ég spái því að þaö verða KA,
Stjaman og Haukar vonandi sem
fara með Valsmönnum í undan-
úrslit. Úrslitakeppnin er búin að
vera rosalega spennandi en þá
verður viljinn meiri og menn
bæta sig til muna. Dómgæslan
hefur lika verið góð aö minu
viti, kannski betri en oft áður.
Menn eiga að hætta þessu nöldri
og gefa dómurum frið,“ sagði
Jóhann Ingi Gunnárson.
-JKS
Tilboóin
gilda til
mióvikud.
20. mars
„Ég kann mjög vel mig í alla staði
hér í Bergen. Hér eru allt aðrar að-
stæður en maður hefur átt að venj-
ast heima á íslandi enda eru leik-
menn flestir hreinir atvinnumenn
og gera þar af leiðandi ekkert annað
en að leika knattspyrnu. Þetta gerir
umhverfið skemmtilegt og sam-
keppnin um stöður er miklu meiri.
Um markvarðarstöðuna berjast
þrír markmenn en þannig baráttu
hef ég aldrei kynnst áður. Ég fór
hingað til að hafa fyrir hlutunum og
vonandi tekst mér að verða aðal-
markvörður liðsins,“ sagði Birkir
Kristinsson, landsliðsmarkvörður
hjá norska liðinu Brann, en fyrr í
vetur gerði hann tveggja ára samn-
ing við liðiö.
Brann er íslenskum knattspyrnu-
mönnum að góðu kunnugt en með
því hafa leikið nokkrir leikmenn
héðan. "Má þar nefna Bjarna Sig-
urðsson, Ólaf Þórðarson en fyrir hjá
liðinu er Ágúst Gylfason sem lék vel
með því á síðasta tímabili.
Það segja margir að áhugi á
knattspyrnu í Noregi sé hvergi
meiri en í Bergen. Á heimaleiki
liðsins koma að jafnaði í kringum
tíu þúsund áhorfendur og stundum
fara þeir uppi í 15 þúsund. í Bergen
bíða menn með eftirvæntingu eftir
tímabilinu sem hefst 10. apríl. Það
er mikill hugur að gera vel í sumar
og hafa verið keyptir sex leikmenn
til að þau markmið nái að ganga eft-
ir.
- Hvað hefur komið þér einna
helst á óvart síðan að þú fórst
utan?
„Það er hvað við notum mikið
bolta á æfingum. Ég átti kannski
von á mun meiri þrekæfingum og
lyftingum en raunin hefur orðið á.
Það liggur við á hverri einustu æf-
ingu sé eingöngu spilað. Við höfum
verið á mölinni eingöngu tvisvar á
dag. Að vísu er gert ráð fyrir að
leikmenn vinni sjálfir í því að lyfta.
Fimmtudagurinn er frjáls dagur og
er hann tilvalinn til þessa þáttar
ásamt öðru.“
- Hvernig hefur undirbúnings-
tímabilið gengið hjá liðinu?
„Það hefur verið stígandi í þessu.
Við erum nýkomnir frá Kýpur en
núna um helgina verður farið í tíu
daga æfinga- og keppnisferð til
Möltu. Við stóðum okkur vel á Kýp-
ur og unnu þar alla leikina okkur.
Við lékum þar gegn Helsingborg,
Silkeborg og loks gegn Rosenborg í
úrslitaleiknum. Þjálfarinn ætlaði að
skipa þessum leikjum á milli okkar
markvarðanna en það þróaðist
þannig að ég lék þá alla og spiluðu
þar inn í meiðsli hjá hinum mark-
vörðunum. Það var gott að fá þessa
leiki til að sýna sig. Maður finnur
það greinilega að það er að byggjast
upp pressa. Dagblöð fylgja okkur
eftir og voru fjölmargir með í för á
æfingamótið á Kýpur. Áhuginn hér
er engu líkur en í fyrsta æfinga-
leiknum 20. janúar gegn neðri deild-
arliði mættu á þriðja þúsund áhorf-
Drekalilja, 40 cm, kr. 295 - kaktusar frá kr. 124 - hypocyrta, kr. 490
króton, kr. 390 - bergflétttubróðir, kr. 490 - alparós (stór) kr. 490
einir frá kr. 295
90 cm kr. 990
Nílarsef
60 cm kr. 440
Drekatré
40 cm kr. 295
Fíkus
50 cm kr. 195
Fíkus
endur,“ sagði Birkir.
Birkir sagði að menn væru þess
fullvissir að deildinni yrði jafnari í
ár en oft áður. Rosenborg hefur
sýnt nokkra yfirburði fjögur undan-
farin ár. Við getum líkt þeim við
Skagaliðið. Einokun Rosenborg
væri sennilega liðin ef spá manna
næði fram að ganga. Mörg lið væru
búin að styrkja sig það mikið og
byggja sig vel upp. Við erum að
gæla við það að Brann verði þar of-
arlega á blaði. Ég hef að vísu ekki
spilað nema gegn nokkrum liðum
úr 1. deildinni og get því ekki dæmt
um þetta sjálfur. Af 14 liðum í deild-
inni hafnaði Brann í 9. sæti í fyrra
en alltaf mæta borgarbúar á völlinn.
Þeir snúa aldrei við bakinu á liðinu
þótt i móti blási. Birkir sagði að
marga dreymdi um að leika með
Brann vegna umgjörðar og stemn-
ingu sem ríkti í kringum liðið.
- Er atvinnumennska allsráð-
andi hjá leikmönnum Brann?
„Sumir stunda aðra vinnu með
en flestir væru á atvinnumanna-
samningi. Ég geri ekkert annað eins
og er. Þetta er allt annað líf að geta
einbeitt sér eingöngu að fótboltan-
um.
„Miklu meiri tími með
fjölskyldunm?
Þetta er ekki heldur sama stress-
ið og heima þegar maður vann frá 8
til 5 og mætti með vinnuna á æfing-
ar. Þessu er ekki saman að jafna, að-
Blómatilboð
Bergflétta
kr. 295
v/Fossvogskirkjugarð, sími 55 40 500
Opið alla daga 10-22
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Áralía
40 cm kr. 295
Friðarlilja
50 cm kr. 440
Birkir Kristinsson geröi tveggja ára samning við norska félagið Brann.
stæðurnar eru allt aðrar hér. Hjá
Brann er síðari æfing dagsins lokið
um hálfsex og því hægt að njóta
kvöldsins með fiölskyldunni. Menn
snæða hér snemma til að geta átt
meiri tíma með fiölskyldunni."
- Nú hefur þú kynnst yfir-
byggðum völlum í Noregi. Er
ekki kominn tími til að byggja
eina slika á Islandi?
„Það er engin spurning að yfir-
byggður knattspyrnuvöllur yrði fót-
boltanúm heima til framdráttar.
Hér í Noregi hef ég kynnst slíkum
húsum og það sem þau bjóða upp á
er engu líkt. Bygging á svona húsi
getur ekki dregist öllu lengur. í
febrúar lentum við í Tromsö í snjó-
byl en þegar upp í höllina var kom-
ið biðu þar toppaðstæður fyrir full-
skipuð fótboltalið. Fótboltamenn
hér um slóðir búa einfaldlega við
allt aðrar aðstæður en félagar
þeirra heima á íslandi. Ég ætla að
vona að menn sjái þetta sem fyrst á
íslandi að yfirbyggður völlur er það
sem koma skal,“ sagði Birkir Krist-
insson.
-JKS
Panasonic
Ferðatæki RX DS25
Ferðatæki með geislaspilara,
40W magnara, kassettutæki,
útvarpi m/stöðvaminni og
fjarstýringu.
Nýkomiö
vorlaukar,
rósir
og fræ
»Ekki sama
stressid
og heima
á Islandi"
- segir Birkir Kristinsson hjá Brann