Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Blaðsíða 56
Föstudagur I j 15.3/96 TvoJáUtur i. wmmmgwr Vertu viðbúin(n) vinningi KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 Akureyri: Klipptur út úr bílnum Harður árekstur varð á Drottn- ingarbraut á Akureyri síðla dags i gær. Ökumaður Ladajeppa missti bíl sinn yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hann lenti framan á litlum Daihatsu sem kom á móti. Klippa þurfti ökumann þeirrar bifreiðar út úr bílnum og var hann fluttur á slysadeild. Hann var ekki í lífshættu en brotinn á fót- um og fór í aðgerð í gærkvöldi. -sv Fulltrúar Sierra Leone Komu til _ landsins en létu ekki vitaafsér - og héldu heim á ný Eins og Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra staðfesti í samtali við DV í vikunni óskuðu fulltrúar ríkisstjórnar Sierra Leone tvisvar eftir þvi að koma til íslands og skoða hér sjávarútveg og fisk- yinnslu en komu ekki. íslendingur sem þekkir vel til í Sierra Leone kannaði þetta mál og sagði DV að fulltrúar frá landinu hefðu komið hingað síðastliðinn sunnudag. Þeir skráðu sig inn á Hótel Sögu, gistu eina nótt en skráðu sig síðan út af hótelinu um miðjan dag á mánudag. Af einhverj- um ástæðum höfðu þeir ekki sam- band við íslensk yfirvöld. Og það sem meira er: Einn af þeim sem komu heitir Kamara og er einn æðsti maður sjávarútvegsmála í landinu. -S.dór | _Brook | (rompton | RAFMÓTORAR Pouketa Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499 Sími 533 2000 Ókeypis heimsending L O K I Fjórar stúlkur dæmdar í 20 og 12 mánaða fangelsi fyrir Akranesárásina: Tóku án vafa allar fullan bátt í árásinni „Við ákvörðun refsingar ber sérstaklega að hafa í huga, að þrátt fyrir að I (Ingunn) hafi nú nánast náð sér að fullu, þá var árásin lífshættuleg, líf hennar hékk á bláþræði og afleiðingarnar miklar meðan þær vörðu. Árás ákærðu var hrottafengin og tilfefn- islaus. Létu ákærðu sér ekki segj- ast þrátt fyrir afskipti fólks, en snerust öndverðar gegn því og eltu I um götur Akraness 'og héldu árásinni áfram og stóð hún því yfir í nokkra stund.“ Þetta var niðurstaða refsimats Héraðsdóms Vesturlands í gær í máli fjögurra 16-18 ára stúlkna sem réðust með spörkum og högg- um að Ingunni Pétursdóttur, 16 ára, á Akranesi aðfaranótt 20. jan- úar síðastliðins. Sú elsta var dæmd í 20 mánaða fangelsi en hin- ar þrjár fengu 12 mánaða fangelsi hver. Dómurinn taldi engan vafa leika á að allar stúlkumar fjórar hefðu tekið fullan þátt í árásinni. Hins vegar var ekki talið hægt að fullyrða hvort „hnéspark" þeirrar elstu hefði verið það sem olli áverkum sem leiddu til lífshættu- legrar heilablæðingar Ingunnar með þeim afleiðingum að hún lá á milli heims og helju í langan tíma á sjúkrahúsi í Reykjavík. Þegar yflrheyrslur fóru fram fyrir dómi breyttust framburðir allra stúlknanna, að þeirri elstu undanskilinni, frá því sem þær báru fyrst hjá lögreglu. Fyrir dómi drógu stúlkurnar þrjár úr fyrri frásögnum sínum og kváðu högg sín hafa frekar verið með flötum lófúm og spörk ekki komið í höfuð fómarlambsins. í einum framburðinum kom fram að Ingunn hefði legið saman- kreppt á hlið með fætur fyrir kviðnum við Kirkjubraut 8. Ein stúlknanna kvaðst þá ekkert hafa hugsað út í hvar spörk hennar hefðu komið í stúlkuna. Aðspurð hvort þau hefðu komið í höfuö fórnarlambsins sagði hún: „Það er kallað Mac Fly, það er rétt að strjúka, en það þarf ekki að vera að það hafl farið í hausinn á henni, hún kveinkaði sér ekki og sýndi ekki nein viðbrögð." Hervör Þorvaldsdóttir kvað upp dóminn. Sjá opnuviðtöl við Ingunni og foreldra hennar á bls. 28 og 37. -Ótt Þjóðhátíðardagur íra er á morgun, öðru nafni dagur heilags Patreks. Af því tiiefni hafa eigendur kráarinnar Dubliner í Hafnarstræti fengið þjóðþekkta listamenn frá írlandi til að skapa hina einu sönnu stemmningu sem einkennir land- ið græna. Dagskráin nefnist Helgi heilags Patreks. Þetta er danshópurinn The Booley House Set Dancers, sem er margfaldur meistari í írskum þjóðdönsum, og hljómsveitin Butterfly Band. Þau brugðu sér á leik fyrir utan Dubliner í gær en verða á fullu í dag og á morgun. íslendingar geta fengið kennslu í írskum þjóðdönsum í hádeginu í dag og á morgun auk þess sem þau verða með uppákomur á Dubliner. Einnig verður sýning á Ingólfstorgi á morgun kl. 14. DV-mynd GS Langholtskirkjudeilan: Úrskurður í fyrsta lagi á þriðjudag „Úrskurðar í Langholtskirkjudeil- unni er að vænta í fyrsta lagi á þriðju- dag. Ég vil ljúka þessu máli sem allra fyrst en ég tel það ekki ábyrga afstöðu að flýta sér um of,“ segir sr. Bolli Gústafsson vígslubiskup. Bolli segist munu taka þann tíma sem hann telji nauðsynlegan til að finna lausn í málinu og aðspurður um undirskriftasöfnun í sókninni undir áskorun til hans um að setja sr. Flóka Kristinsson af, segir sr. Bolli að hún geri sér ekki léttara fyrir í málinu. „Það hefur ekki ver- ið rætt neitt við mig um þetta mál og ég hef ekkert fengið í hendurnar, enda finnst mér varla eðlilegt eða rétt að ég taki við því.“ Aðspurður hvort Langholtskirkju- deilan endurspegli að valdsvið presta og annarra starfsmanna kirkjunnar væru illa skilgreind: „Það er margt starfsfólk við kirkjuna, ekki síst í stórum söfnuðum, og það verða auð- vitað að vera skýrar og afmarkaðar reglur um það hverjir ráða hverju sinni, hvort það er alfarið presturinn sem öllu ræður eða ekki.“ -SÁ Veðriö á sunnudag og mánudag: Súld og hægviðri Á sunnudag verður hæg austan- og norðaustanátt. Smásúld eða rigning við suðaustur- og austurströndina. Annars staðar verður úrkomulaust en skýjað. Á mánudag verður hægviðri um allt land. Víðast skýjað en úrkomulaust. Mánudagur Veðrið í dag er á bls. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.