Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 6
6
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
útlönd
stuttar fréttir
írani verði handtekinn
Saksóknarar í Þýskalandi
hafa gefiö út handtökuskipun á
hendur yfirmanni njósnaþjón-
ustu Irana vegna morðs á land-
flótta leiötogum Kúrda í Berlín
1992.
Peres róttir úr kútnum
Simon Per-
es hefur end-
urheimt
hluta af því
fylgi sem
hann tapaði í
kjölfar
sprengjutil-
ræða Hamas-
samtakanna. I skoðanakönn-
unum hefur hann 2-3 prósentu-
stiga forskot á aðalkeppinaut-
inn, Netanyahu.
Persson boðar aðhald
Göran Persson, verðandi for-
sætisráðherra Svía, sagði í
ræðu á landsfundi sósíalde-
mókrata að sýna yrði fjármála-
legt aðhald á næstu misserum.
Bjargað úr ferju
ítalski sjóherinn bjargaði 371
farþega úr ferju sem strandað
hatði við eyna Sardiníu í
Miðjarðarhafi.
Lík grafið upp
Réttarlæknisfræðingar grófu
upp lik konu sem fórst í spreng-
ingunni í Oklahoma í aprU en
hún hafði verið grafin með vit-
lausan fót.
Aflétta farbanni
ísraelar afléttu farbanni á
íbúa Vesturbakkans sem inn-
leitt var i kjöifar sprengjutil-
ræðanna fyrr í mánuðinum.
Páfa gert að hvílast
Læknar
páfa hafa
ráðlagt hon-
um að hvU-
ast um sinn
eftir að hafa
veikst og
fengið háan
hita. Óvíst
er hvenær páfi hefur störf á ný.
Grýttur fyrir nauðgun
Sómali var grýttur til bana
eftir að hafa verið fundinn sek-
ur um aö nauðga 15 ára gamalli
stúlku.
Rætt við Kashmíra
Innanríkisráðherra Indverja
átti fund með taismönnum
skæruliða í Kashmír en þeim
leist ekki á hugmyndir ráðherr-
ans um að efna til kosninga í
héraðinu.
Friðaráætlun í ermínni
Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, sagðist hafa áætlun
um frið í Tsjetsjeníu uppi í
erminni en bardagar geisa þar
enn. Reuter
Kauphallir erlendis:
Lækkun í
Wall Street
Hlutabréfavísitalan Dow Jones í
kauphöllinni við Wall Street í New
York lækkaði í vikunni eftir að verð
hlutabréfa nokkurra stórra fyrir-
tækja fór niður á við. Síðastliðinn
fimmtudag sýndi Dow Jones þó til-
burði til hækkunar þegar dró úr
áhyggjum af aukinni verðbólgu eft-
ir að heildsöluuppgjör febrúarmán-
aðar lá fyrir.
Svipaða sögu er að segja af gangi
mála í öðrum helstu kauphöllum
heims. Hlutabréfaverð fór lækkandi
í byrjun vikunnar eða þar til á
fimmtudag að verðið fór lítillega
upp á ný. Fjárfestar í Bretlandi voru
bjartsýnir vegna ágætra afkomu-
talna fyrirtækja.
Því miður tókst ekki að afla upp-
lýsinga um verðþróun á eldsneyti á
heimsmarkaði. Reuter
Forsetakosningar á Taívan haldnar í skugga ógnunar:
Kínverjar boða
nýjar heræfingar
Kínverjar eyddu öllum vonum
Taívana um friðsamlegar forseta-
kosningar þegar þeir boðuðu nýjar
heræfingar á Taívansundi dagana
18.-25. mars. Loforð sem Kínverjar
gáfu í fyrradag um að ekki yrði ráð-
ist á Taívan og lok heræfinga síð-
ustu daga drógu úr spennu milli
ríkjanna og róuðu íbúa á Taívan en
sá friður varði ekki lengi. Fyrstu
forsetakosningarnar á Taívan fara
fram 23. mars þegar 21 milljón
manna gengur að kjörborðinu. En
þá verða heræfingar Kínverja í full-
um gangi á Taívansundi. Virðast
Kínverjar staðráðnir í að eyða öll-
um vonum Taívana um sjálfstæði.
I leiðurum málgagna kínverska
hersins og Kommúnistaflokksins,
sem birtast í dag, segir að Kínverjar
ætli aldrei að líða það að land verði
rofið frá móðurlandinu.
Æfingarnar næstu daga munu
eiga sér stað mun nær Taívan og af
þeim stafa meiri ógn en fyrri heræf-
ingum á Taívansundi. Hunsa Kín-
verjar með ölíu stóran flota Banda-
rikjamanna á svæðinu, sem er þar
þrátt fyrir loforð Kínverja um að
gera ekki árás á Taívan, og alþjóðleg-
ar óskir um aðhafd. En þrátt fyrir
loforð Kínverja hóta þeir að ráðast á
Taívan verði lýst yfir sjálfstæði þess.
Stjórnvöld í Peking líta á Taívan
sem hérað í Kína og hafa gert síðan
þjóðernissinar flúðu þangað í kjölfar
borgarastríðsins 1949.
Kínverjar buðust í gær óvænt til
að hjálpa Taívönum að losa sig við
geislavirkan úrgang en þó með einu
skilyrði - að Taívanar gengju stjórn-
völdum í Peking á hönd. Reuter
Sóldýrkendur ná hér í fyrstu almennilegu sólargeisla vorsins nærri bökkum árinnar Neva í St. Pétursborg í Rúss-
landi. En þótt vorið sé á næsta leiti í Rússlandi og léttara sé yfir sólþyrstu mannfólkinu minnir veturinn rækilega á
sig þar sem ís og krap er enn á gangstéttum. Símamynd Reuter
John Major heimsótti Dunblane og varð skelfingu lostinn:
Krafðist að salurinn yrði rifinn
John Major, forsætisráðherra
Breta, heimsótti í gær leikfimisal-
inn í Dunblane á Skotlandi þar sem
16 böm og kennari þeirra voru myrt
á miðvikudag. Hann starði skelf-
ingu lostinn á kúlnafórin á veggjum
leikfimisalarins þar sem ódæðið átti
sér stað og krafðist þess að bygging-
in yrði rifin.
„Við verðum að rífa salinn,"
sagði Major meðan hann horfði á
óhugnanleg ummerki blóðbaðsins.
Tony Blair, formaður Verka-
mannaflokksins, var í för með
Major og saman hittu þeir kennara
skólans sem hafa þurft að takast á
við gríðarlega erfiðleika í kjölfar
morðanna. Major sagði ómögulegt
að skýra með orðum hvað kennar-
arnir hefðu gengið í gegnum og að-
dáunarvert væri hvernig þeir hefðu
tekið á málum.
Eftir heimsóknina lagði Major
krans við skólann til minningar um
hina látnu og lagði til að Bretar
sameinuðust í einnar mínútu þögn
á sunnudag. Lögregla hélt vörð við
skólann en við innganginn höfðu
hlaðist upp kransar og bangsar og
sjá mátti áletranir eins og „Englar“.
Áður en Major og Blair komu til
Dunblane heimsóttu þeir nokkur
barnanna átta sem særðust á spítala
í Sterling. Sum þeirra höfðu bragg-
ast en meðan á heimsókn þeirra
stóð hrakaði einú fórnarlambanna,
Amie Adam, á spítala í Glasgow.
Kúlurnar úr byssum morðingjans
höfðu mélað lærbein hennar og var
ástand hennar mjög alvarlegt.
Rannsókn morðanna var haldið
áfram og sérstaklega hugað að því
hvernig Thomas Hamilton, sem
framdi sjálfsmorð í kjölfar ódæðis-
ins, hafði yfir fjórum byssum að
ráða við tilræðið og hvers vegna
hann hafði leyfi fyrir mörgum byss-
um upp á vasann. Reuter
5.600 missa
vinnuna
viö gjaldþrot
Fokker
Forráðamenn Fokker-flug-
í vélaverksmiðjanna lýstu fyrir-
tækið gjaldþrota í gærmorgun
eftir að örvæntingarfull leit að
fjárfestum hafði mistekist.
Fokker hafði starfað í 77 ár.
Fyrirtækið var skuldum vafið
og rekið með miklu tapi og
höfðu menn brúað bilið síðustu
mánuði með ríkisábyrgðarlán-
um. Ástandið varð mjög alvar-
: legi í janúar þegar þýska fyrir-
tækið Daimler-Benz hætti að
veita fé í Fokker.
Með gjaldþroti Fokker verða
mestu fjöldauppsagnir í sögu
Hollands en 5.600 manns missa
vinnuna. Um 960 manns verður
hins vegar boðin vinna á ný í
Fokker Aviation, fyrirtæki sem
sjá mun um viðhald og gerð raf-
kerfa og tæknibúnaðar. Þar
verða um 2.500 manns í vinnu.
Viðhaldsþjónusta seldra véla
verður söm og áður.
Buchanan hótar
framboði fýrir
þriðja flokk
Pat
Buchanan
hefur ekki
gefist upp í
baráttunni
fyrir útnefn-
ingu sem for-
setaefhi
repúblikana.
í gær gaf hann í skyn að hann
mundi bjóða fram undir merkj-
um þriðja stjórnmálaflokksins.
Buchanan sagði að einhver yrði
að vera málsvari þess fjölda
sem hefði stutt hann í forkosn-
ingunum til þessa. Hann sagði
að ef flokkur hans tæki vinstri
beygju á flokksþinginu í San
Diego í ágúst mundi hann ekki
hika við að stofna nýjan stjórn-
málaflokk og bjóða sig fram.
Markgreifafrú
nakin á
i áróðursskiltum
Marina Ripa di Meana, 52 ára
ítölsk markgreifafrú sem er
mikið fyrir að ögra samborgur-
unum, mun koma kviknakin
fram á auglýsingaskiltum um
alla Italíu frá og með deginum í
dag. Tekur hún þátt í áróðurs-
herferð dýraverndunarsamtaka
sem vilja að konur hætti að
klæðast pelsum. Á myndunum
er Marina með krosslagðar
hendur undir brjóstunum og
gerir enga tilraun til að fela
skapahárin. I texta á myndinni
stendur: Þetta er eina loðnan
sem ég skammast mín ekki fyr-
ir að klæðast."
Marina sagðist vera undir
áhrifum frá lafði Godivu sem
reið nakin á hestbaki um
Coventry á Englandi í tilraun
til að fá mann sinn til að lækka
skatta.
Sjálfsmorð
lögregluþjóna
valda áhyggjum
Talsmenn frönsku lögregl-
unnar lýstu yfir áhyggjum í
; gær eftir þrettánda sjálfsmorðið
í þeirra röðum frá áramótum.
Sá þrettándi var í Parísarlög-
reglunni og mun hafa kiknað
undan álagi og ábyrgð sem fylg-
| ir starfinu.
Talsmenn stéttarfélaga lög-
| reglumanna segja vinnuálag
hafa aukist mjög í kjölfar
sprengjutilræða í fyrra og vart
hafi orðið aukinnar streitu.
Innanríkisráðuneytið gerir
lítiö úr áhyggjum lögreglunnar,
segir að 35 af hverjum 100 þús-
und lögregluþjónum hafi árlega
framið sjálfsmorð síðasta ára-
tug meðan samsvarandi tala
fyrir þjóðina væri 53-55. Reuter