Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 11
JD*"V" LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
mennmg .1
Meðal þeirra tónskálda tuttug-
ustu aldar sem virðast hafa skapað
sér varanlegan sess í tónlistarsög-
unni má með vissu telja rússneska
tónskáldið Dimitri Shostakovitsj.
Nú eru fáanlegir í plötuverslunum
hljómdiskar þar sem landi hans,
sellóleikarinn Mistislav Rostropo-
vitsj, stjórnar The Washington
National Symphony Orchestra í
upptökum af nokkrum helstu sin-
fóníum tónskáldsins. Diskurinn
með elleftu sinfóníunni hefur borist
okkur til eyrna og líkar einkar vel.
EUefta sinfónía Shostakovitsj er
einnig kennd við árið 1905. Hún var
samin í tilefni af 40 ára afmæli
októberbyltingarinnar í Rússlandi
og í minningu uppreisnar sem bæld
var niður 1905. Shostakovitsj lá und-
ir stöðugum pólitískum þrýstingi í
tónsmíðum sínum frá Stalín og
kumpánum hans. Hann lætur þess
getið í hinni frægu ævisögu sinni,
Testimony, að hann hafi ekki síður
haft í huga ungversku uppreisnina,
sem bæld var niður af sovéskum
hersveitum. Hvað sem þessu líður
er ellefta sinfónían prógrammverk
með skýrum boðskap sem kemur
fram jafnt í kaflaheitum sem tónlist-
inni sjálfri. Hér er engin léttvæg
skemmtitónlist á ferðinni. Viðfangs-
efnið er í raun mannlíflð allt, þótt
hinar dekkri hliðar virðist fá mest
rúm. Shostakovitsj seilist víða til
um efnivið. M.a. notar hann stef úr
fjölmörgum kunnum sönglögum frá
því um aldamótin og textar þeirra
skapa flókið mynstur tilvísana. Tón-
listarleg úrvinnsla hans á þessum
efnivið skiptir þó mestu máli. Hún
er frábærlega frjó og persónuleg og
verkið í heild hrífandi auðugt og vel
byggt. Shostakovitsj hefur af mörg-
um verið talinn heldur íhaldssamt
tónskáld fyrir sinn tíma. Pólitísk
kúgun og listræn einangrun hefur
ef tO vill haft áhrif á hann í þessa
veru.
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
Afstaða tónskáldsins til samtíma
síns að þessu leyti virðist þó, þegar
öllu er á botninn hvolft, vera hreint
aukaatriði. Það eina sem skiptir
máli er fegurð og frumleiki verksins
sjálfs. Þeirrar viðleitni gætir mjög í
samtíma okkar að reynt er að fella
eða hefja listaverk á stall með tUvís-
un tO þeirrar aðferðar sem lista-
maðurinn notar. Shostakovitsj er
áþreifanleg sönnun þess hve mjög
menn vaða hér í viUu og svíma. Að-
ferðir sem notaðar eru til að ná
markmiðum listarinnar varða höf-
undinn einn og skipta hlustandann
engu máli, nema frá fræðilegu sjón-
armiði.
Mistislav Rostropovitsj.
Rostropovitsj er auðvitað þekkt-
astur sem seUóleikari, en hann hef-
ur getið sér orð sem mjög góður
stjórnandi einnig. Má þess sjá
merki á þessum diski. Flutningur-
inn er áberandi skýr og styrksviðið
óvenjulega mikið. Hjálpar þar tU
mjög góð upptaka. Þá er túlkunin
þolinmóð, ef svo má að orði komast.
Allt er gert með langtímamarkmið
síðar í verkinu í huga og fær þannig
hvert smáatriði dýpri merkingu í
heildinni. Þannig á að túlka verk af
þessu tagi.
k.
TÆKNILEGAR UPPLYSINGAR:
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 30 minnum
•100 watta magnari
• 3ja diska geislaspilari
með 30 minnum
1 Tónjafnari m. 6 forstilltingum
• Tímastilling og vekjari
: Tvöfalt Dolby segulband
' Innstunga fyrir heyrnartól
og hljóðnema
' Fullkomin fjarstýring
... og margt fleira.
FULLKOMIN
1 OOW HUÓMTÆKI
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090
TX-300
Mtomatwm,
Giylll uall UIBágp
Mraðlr enúasti
Trust Independent Pro Advanced
Pentium 75 - Margmiðlunartölva með öllu!
fnrlRDen£
Turntölva með mlkla stækkunarmöguleika
8 MB minni - 850 MB diskur - 5 hraða geislaspilari
5D Surround hljóðkort - FM Stereo útvarp
300 w 3D Surround hátalarar - Windows 95
MS Home heimapakkinn
MS Works (ritvinnsla, töflureiknir, gagnagrunnur)
MS Encarta - alfræðiorðabók
MS Money - heimilisbókhald
MS Scenes - undersea collection
Megapak 3 I12 geisladiskar stútfulllr af lelkjum)
The Lemmlngs Chronicles - MegaRace
tfx - Tactlcal Flghter Experiment
The VORTEX - Quantum Gate II
Cydones - Jammit • Dragon s Lalr
i Novastorm - Reunion DBtta tVfl
j The Journeyman Project Turbo
hKjniuiMTiO
Dúndur tölva og hljómflutningstæki . Trust
SKAFTAHUÐ 24
SÍMI569 7800
NYHERJA
Opið á laugardögum írá 10-14