Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 27
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
tónlist 27
ísland
— plötur og diskar—
t 1.(2) Jagged Little Pill
Alanis Morrissette
t 2. ( 3 ) Presidents of the United States...
Presidents of the United States...
t 3. ( 5 ) Murder Ballads
Nick Cave and the Bad Seeds
| 4. ( 4 ) Life
Cardigans
t 5. ( 9 ) Melon Collie and the Infinite ...
Smashing Pumpkins
t 6. (- ) Mercury Falling
Sting
f 7. ( 1 ) Grammy Nominees 1996
Ýmsir
# 8. ( 6 ) Croupie d'oú lá
Emilíana Torrini
t 9. ( - ) All Eyez on Me
2Pac
110. (10) Boysfor Pele
Tori Amos
111. (13) Different Class
Pulp
112. (14) The Boy with the X-Ray Eyes
Babylon Zoo
f 13. (11) Gangsta's Paradise
Coolio
114. (Al) Gleóifólkið
KK
f 15. ( 7 ) The Bends
Radiohead
f 16. ( 8 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
117. (19) Second toughest
Underworld
f 18. (16) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
f 19. (17) Crazysexycool
TLC
$ 20. (20) Gling gló
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfss.
London
-lög-
) 1.(1) How Deep Is Your Love
Take That
t 2. ( 3 ) Children
Robert Miles
f 3. ( 2 ) Don't Look back In Anger
Oasis
t 4. ( - ) Real Love
Beatles
f 5. ( 4 ) Coming Home now
Boyzone
t 6. ( - ) Return to the Mack
Mark Morrison
t 7. (12) These Days
Bon Jovi
« 8. ( 6 ) Passion
Gat Decor
t 9. ( 9 ) I Wanna Be a Hippy
Technohead
f 10. ( 5 ) Going out
Supergrass
New York
-lög-
t 1. ( 1 ) One Sweet Day
Mariah Carey & Boyz II Men
t 2. ( 2 ) Sittin' up In My Room
Brandy
t 3. ( 3 ) Not Gon' Cry
Mary J. Blige
t 4. ( 4 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
t 5. (36) Because You Loved Me
Celine Dion
f 6. ( 5 ) Missing
Everything but the Girl
t 7.(10) Down Low (Nobody Has to Now)
R. Kelly Featuring Ronald Isley
f 8. ( 7 ) One of Us
Joan Osbourne
t 9. ( 9 ) Follow You down
Gin Blossoms
f 10. ( 6 ) Be My Lover
La Bouche
Bretland
-plötur og diskar-
t 1. (1 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
t 2. ( 2 ) Jagged Little Pill
Alanis Morissette
t 3. ( - ) Hits
Mike and the Mechanics
t 4. (- ) Mercury Falling
Sting
f 5. ( 3 ) Bizarre Fruit/Bizarre Fruit II
M People
t 6. ( - ) Ocean Drive
Lighthouse Family
t 7. ( 7 ) Stanley Road
Paul Weller
t 8. ( 8 ) Different Class
Pulp
t 9. ( 9 ) Life
Simply Red
t 10. (13) Said and Done
Boyzone
Bandaríkin
— plötur og diskar—
t 1.(2) Jagged Little Pill
Alanis Morísette
f 2. (1 ) All Eyez on Me
2 Pac
t 3. ( 7 ) The Score
Fugees
f 4. ( 3 ) Waiting to Exhale
Úr kvikmynd
f 5. ( 4 ) Daydream
Mariah Carey
t 6. ( 8 ) The Woman in Me
Shania Twain
f 7. ( 6 ) The Presidents of the United...
The Presidents of the United...
f 8. ( 5 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis I
t 9. (13) Relish
Joan Osboume
tlO. (11) Cracked Rear View
Hootie & The Blowfish
Gyðjan Alanis
Alanis Morissette sendi frá sér
sína fyrstu smáskífu fyrir tiu árum.
Hún er núna tuttugu og eins árs!
Þetta er ekki stærsta afrek hennar á
tónlistarferlinum. Langt því frá.
Fremur mætti nefna að hún var til-
nefnd til sex grammyverðlauna og
vann fern. Það verður að teljast all-
nokkuð fyrir kornunga kanadíska
söngkonu og lagasmið sem á fram-
tíðina fyrir sér þrátt fyrir tíu ára
feril í listgreininni.
Alanis er frá Ottawa í Kanada.
Hún á ekki ættir að rekja til
Grikkja þrátt fyrir að heita eftir
grískri gyðju. Faðir hennar, Alan
Morissette, skólastjóri í miðskóla,
vildi að dóttirin héti eftir honum,
þótti nafnið Alanna sviplaust og
valdi því gyðjunafnið.
Stúlkan sýndi snemma að hún
var listhneigð. Sjö ára fór hún að
læra ballett og djassballett og ellefu
ára hafði hún fengið hlutverk í vin-
sælum sjónvarpsþætti. Þetta var
sama árið og hún sendi frá sér smá-
skífu með lagi sínu Fate Stay with
Me. Upptökuna kostaði stúlkan sjálf
með peningum sem hún fékk fyrir
sjónvarpshlutverkið og gaf plötuna
siðan út á eigin kostnað. Fate Stay
with Me seldist ekkert sérstaklega
en var leikin nokkrum sinnum í
kanadísku útvarpi.
Alanis Morissette sendi frá sér
tvær stórar plötur á unglingsárun-
um. Sú fyrri heitir Alanis og kom út
árið 1990. Fyrir tveimur árum kom
síðan Now Is the Time út. Báðar
náðu þær platínusölu heima fyrir
en seldust ekkert utan Kanada. Tón-
list þessara platna er gjörólík því
sem síðar kom en þótti eigi að síður
benda til þess að mikið efni væri á
ferðinni og hlaut Alanis til að
mynda junoverðlaunin (sambærileg
við grammy) sem efnilegasti nýlið-
inn eftir að Alanis kom út.
Platan Jagged Little PUl skipti
hins vegar sköpum fyrir Alanis
Morissette. Hún Quttist frá Kanada
fyrir nokkrum árum og settist að í
Los Angeles. Þar var hún undir
handarjaðri Scotts Welch, fram-
kvæmdastjóra Seals, sem kom
henni í hljóðver og sagði henni að
búa fyrst til plötu og reyna síðan að
seija hana einhverjum útgefanda.
Það kynni ekki góðri lukku að stýra
að fara öfugt að. Enda varð útkom-
an persónuleg og einlæg plata með
eftirtektarverðum textum - platan
sem færði Alanis fern grammyverð-
laun á dögunum. Við laga- og texta-
smíðarnar naut stúlkan aðstoðar
Glens Ballards. Sá hefur það meðal
annars á afrekaskránni að hafa
samið lagið Man in the Mirror með
Michael Jackson og stýrt upptökum
fyrir Aerosmith fyrr á árum.
Það var Madonna sem veðjaði á
að gefa Jagged Little Pill út. Fyrir-
tæki hennar, Maverick, tók áhætt-
una. Bjartsýnustu menn töldu að
platan gæti selst í þrjú hundruð
þúsund eintökum i Bandaríkjunum
Alanis Morissette: Sviðsljósin beinast að henni eftir að hún kom, sá og sigr-
aði á grammyverðlaunahátíðinni á dögunum.
og væri góður stökkpallur fyrir
framtíð Alanis sem listamanns.
Reyndin er sú að um það leyti sem
grammyverðlaunin voru athent
voru seld eintök rúmlega sex millj-
ónir og hefur platan áreiðanlega
tekið kipp síðan.
byrjun!" - Útrætt mál um útgáfu-
tímann.
Fjögurra ára gömul
Dead Sea Apple varð fjögurra ára
um síðustu áramót. Þar á undan
nefndist hún Barátta og spilaði glys-
og gleðirokk í anda Iron Maiden.
Þetta var á þeim tíma sem
dauðarokkið var í algleymingi og
átti Barátta ekki upp á pallborðið
hjá dómnefnd Músíktilrauna árið
sem hún tók þátt í þeim merku til-
raunum. En nú er öldin önnur. Dead
Sea Apple er allt önnur hljómsveit
og Steinarr lýsir stefnunni með orð-
unum „updated rock“. „Sumir hafa
sagst heyra Seattle-áhrif hjá okkur.
Þau hafa sjálfsagt síast inn eins og
Qeira en við teljum að við höfum
bætt einhverju við Seattle-stefnuna.
Annars er alltaf erfitt að skilgreina
nákvæmlega á hvaða línu hljóm-
sveitir eru og á hvaða línu þær eru
ekki,“ bætir hann við.
Steinarr og félagar kynntu lögin
sem verða á plötunni á tónleikum í
Rosenbergkjallaranum í gærkvöld
og byrja að taka upp í næstu viku.
Þeir gefa sér einn til tvo mánuði til
verksins. Nick Cathcart Jones ætlar
að stýra upptökum sem fara fram í
stúdíói FÍH, væntanlega Grjótná-
munni og hugsanlega víðar. Ellefu
lög verða á plötunni, öll frumsamin.
Steinarr segir að þau hafi orðið til í
samvinnu fimmmenninganna sem
eru Hannes Friðbjarnarson
trommuleikari, Haraldur Vignir
Sveinbjörnsson og Carl Johan
Carlsson gítarleikarar og Arnþór
Þórðarson sem leikur á bassa.
Dead Sea Apple hefur einu sinni á
ferlinum látið frá sér heyra á plötu.
Hún átti lagið Mist of the Mourning á
safndiskinum Ýkt böst sem kom út
fyrir tveimur árum. Steinarr segist
vonast til að leyfi fáist frá útgefanda
Ýkts bösts til að hafa lagið með á nýju
plötunni. Liðsmenn Dead Sea Apple
ætla annars að gefa plötu sína út
sjálfir og vona að fleiri tónlistarmenn
fari nú að vakna og gefa út tónlist
sem metnaður sé lagður í. -ÁT-
itin
tin
Sex Pistols hneyksl-
iylgjunni af stað hafa liðs-
saman á ný. Það er uppruna-
sem tekur nú upp þráðinn þar
skipuðu þeir Johnny Rotten,
!ock og Paul Cook. Sid Vicious leysti
J á sínum tlma en vi“ é '
liðsmennirnir
er eftir þvi að heyra í:
inn. Meöal:
komi fram á 1
ísumarenþartreð-
asamt hljom-
Sex Pistols
um að þeir
vegna. -SþS-
Hljómsveitin Dead Sea Apple
byrjar að hljóðrita sína fyrstu plötu
í næstu viku og stefhir að því að
gefa hana út í júní eða í síðasta lagi
fyrstu dagana í júlí.
„Fyrsti júli er eiginlega síðasti
séns fyrir okkur,“ segir Steinarr
Logi Nesheim söngvari um útgáfu-
tímann.
„Við vitum að við erum frekar
með sumarplötu en jóla - og við
verðum bara komnir of nálægt jól-
unum ef við drögum að koma plöt-
ÞÖK unni út mikið lengur en fram í júlí-
Dead Sea Apple
með plötu í sumar