Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 34
42 unglingaspjall LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 Unga fólkið mallar og brallar með „trip hop" í Reykjavík: Gamlir djassgeggjarar ffla þessa tónlist líka —segir Kári Sturluson hjá plötubúðinni Hljómalind Ungir og aldnir tónlistarunnend- ur geta farið að hlakka til því að á næstunni verður haldin „Trip hop“ hátíð i Tunglinu og koma frægir breskir tónlistarmenn hingað til lands sérstaklega á þessa hátíð. Það eru tvö sett af plötusnúðum, DJ Food og Coldcut frá útgáfufyrirtæk- inu Ninja Tune, og „trip hop“ hljómsveitin Woodshed, frá útgáfu- I»l Netscape; Coldcut Paqe 'Jto SBf. ■ A ! Back fcrv*rd Home R»lo»d Óh d iht4p://vw.iou4h»rft c»m/PtPC/coUctj4hp.h4m) Vh»t'»N»w?| Vhftt's Cool?| Htftdbook | N«t S»»roh | N»t [>ir»ctorg| N»w»youpt | „Trip hop“-hátíð verður haldin í skemmtistaðnum Tunglinu um næstu helgi og koma frægir, breskir tónlistarmenn á hátíðina, tvö sett af plötusnúðum, hljómsveitin Woodshed og blaðamaður og Ijósmyndari Melody Maker, sem ætla að fjalla um hátíðina, en blaðamaðurinn er jafnframt plötusnúður. Marg- ir íslendingar kannast við þessa tónlistarmenn enda hafa þeir verið ofarlega á listum í Bretlandi. :n hliðin Skemmtilegast að spila körfubolta - segir Eiríkur Önundarson, körfuknattleiksmaður í ÍR fyriptækinu Cloak & Dagger ásamt plötusnúðnum Graham Sherman, sem koma til að breiða út þessa tón- listarstefnu hér á landi. Hátíðin er kölluð Maila og bralla í Reykjavík! Kári Sturluson hjá Hljómalind segir að þetta lið, sem er á leið hing- að til lands, hafi allt verið á topp 10 hjá pressunni úti í Bretlandi með lög, plötur, skífuþeytingu eða tón- leika. Óþarfi er að kynna plötusnúð- inn DJ Food á íslandi. Plötur og diskar, sem DJ Food hefur gefið út, nafa selst gríðarlega vel hér og hann hefur notið gífurlegra vin- sælda hér eins og í Bretlandi. Fyrir ofan Björk Coldcut voru einu plötusnúðarnir sem komust inn á lista yfir bestu plötur ársins með „70 Minutes of Madness" hjá breska tónlistarblað- inu Melody Maker á síðasta ári. Þeir voru meðal annars fyrir ofan Björk. Hljómsveitin Woodshed átti topp- lag á danstónlistarlistanum hjá Me- lody Maker í fyrra og stóra platan þeirra hefur hlotið afbragðs dóma alls staðar, að sögn Kára. Plötusnúðurinn Graham Sherm- an er ekki bara góður plötusnúður heldur er hann líka blaðamaður hjá Melody Maker og fjallar sérstaklega um danstónlist. Hann kemur hingað til lands ásamt ljósmyndara MM til að skrifa um ferðina í blaðið. Það er tónlistarverslunin Hljóma- lind í Austurstræti sem stendur fyr- ir því að fá bresku tónlistarmenn- ina hingað í samvinnu við útgáfu- fyrirtækin Ninja Tune og Cloak & Dagger en upplýsingar um þessi út- gáfufyrirtæki og tónlistarmennina sem þau senda hingað má sjá á Netscape: DJ food v Kitchen of Turnlable Tritknology o ^2 tB iKi ! B*ck Forvtrj Hom« Or*r, PrM Fk»d .SS0I jhttp://ww .com/P/djfood html Vhcrt'sNfrv?! Vh4t/s Cool>f Hywtbook | N»tS»arch f N»t l»r«»ctorv| N»»syo«j|?s | tijrttou t »*»«< ■*»*»*» ******. H « :'%•«**» >4 *«■ M'<* DJFOOL A FAT, FRHE\ FA LIJNCÍL *REE DI FöOtJ is th» coHaboraik® Wmi MattBlack & Jfc (COLDCyTi air.1 Patrick Carj.ienterfPC.1 thc ?iprcerors appn or BulldúÆSPs (on Luv'n'Hiusht) jpS’óöd ts definiUvely t Æ. Tvö bresk útgáfufyrirtæki senda á næstunni hingað til lands tvö sett af plötusnúðum. Plötusnúðarnir tilheyra meðal annars DJ Food-genginu og hafa þeir verið mjög vinsælir hjá aðdáendum þessarar tónlistarstefnu úti í Bretlandi. heimasíðum þeirra, sjá meðfylgj- andi myndir. Ninja Tune er leiðandi útgáfufyr- irtæki í „trip hop“ tónlist í heimin- um í dag og hefur ásamt Mo Was út- gáfunni og Bristol genginu Portis- heaád, Massive Attack og Tricky rutt brautina fyrir gífurlegum vin- sældum þessarar tónlistar. Útgáfufyrirtækið Cloak & Dagger hefur einnig lagt sitt af mörkum og nýtur mikillar virðingar í tónlistar- bransanum. Sívaxandi vinsældir Kári segir að „trip hop“ tónlist njóti sívaxandi unglinga, bæði með- al unga fólksins en einnig hjá göml- um djassgeggjurum. Þeir séu áfjáðir í að kynna sér þessa tónlist. Fyrir þá sem ekki vita segir hann að „trip hop“ sé danstónlist, rólegri en sú tónlist, sem fíkniefnið „Ecstacy" hefur verið tengt við, og segir Kári að „skemmtilegur kúltúr" hafi skap- ast kringum þessa tónlist. Hann segir að „trip hop“ sé meira í ætt við djass og fónk. „Það eru margir gamlir djassgeggjarar sem fíla þessa tónlist og þeir hafa verið að koma hingað og kynna sér hana. Það má segja að þetta sé smáangi af framúrstefnulegum djassi," segir Kári. -GHS I Eiríkur Önundarson er búinn að vera lengi með íþróttadellu og æfir nú og leikur körfuknattleik með ÍR. Hann þykir einn efnilegasti leikmaðurinn landsins í körfunni um þessar mundir. Eiríki hefur gengið vel meö liði sínu á þessu leiktímabili og hefur hann því verið fenginn tii að sýna á sér hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Eiríkur Sverrir Önundarson. Fæðingardagur og ár: 19. september 1974. Unnusta: Sóley Valdimarsdóttir. Börn: Engin. Bifreið: Ford Escort ’85. Starf: Nemi i viðskiptafræði við Háskóla íslands. Laun: Engin. Áhugamál: Körfubolti, tennis og almenn skemmt- un. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Ég hef aldrei fengið stóran vinning. Ég hef í mesta lagi ver- ið með þrjá rétta. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila körfubolta þegar vel gengur. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Hafa ekkert aö gera. Uppáhaldsmatur: Rjúpm-. Uppáhaldsdrykkur Sódavatn. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur f dag að þlnu mati? Vala Flosadóttir. Uppáhaldstímarit: Körfuboltatímaritið Slam. Hver er fafiegasta kona sem þú hefur séð? Móðir mín. Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Magic Johnson. Uppáhaldsleikari: Eddie Murphy. Uppáhaldsleikkona: Goldie Hawn. Uppáhaldssöngvari: Fugees. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Friðrik Sophusson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Andrés önd að sjálfsögðu. Uppáhaldssjónvarpsefni: Háskólaboltinn á Stöð 3 undir leiðsögn Herberts Ámasonar. Uppáhaldsmatsölustaður: Ítalía. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Bókina sem ég er nýbyrjað- ur á, Hvítt skítapakk og flekkótt- ur svertingi. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? X-ið. Uppáhaldsútvarpsmaður: Þossi. Á hvaða sjónvarpsstöð horf- ir þú mest? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Herbert Ámason. Uppáhaldslö'á: IngólfsCafé. Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍR. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Klára skólann og lifa hamingjusömu lífi. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Vinna. -GHS Eiríkur Önundarson, körfuknattleiksmaður í ÍR, sýnir á sér hina hliðina. DV-mynd BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.