Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 50
58 vti
afmæli
Margrét Guðnadóttir
Jónína
Jónína Margrét Guðnadóttir,
þýðandi hjá Hagstofu íslands,
Skildinganesi 36A, Reykjavík, er
fimmtug í dag.
Starfsferill
Jónína Margrét fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MR 1965, BA-prófi í
ensku og sagnfræði við HÍ 1969,
cand. mag.-prófi í ensku frá HÍ1979
og prófi fyrir löggilta skjalaþýðend-
ur og dómtúlka í ensku 1981.
Jónína Margrét hefur sinnt rit-
stjórnarstörfum, skjalaþýðingum
Salaleiga
Höfum sali sem henta
fyrir alla mannfagnaði
hótelíMp
5687111
og öðrum þýðingum sl. fimmtán ár,
hefur verið þýðandi hjá Hagstof-
unni frá 1992 og hefur kennt ensku
við MR sl. þrjú ár.
Hún ritstýrði bókinni Konur,
hvað nú?, útg. 1985, ritstýrði Flug-
orðasafni, útg. 1993, og þýddi bók-
ina Þú misskilur mig, eftir
Deborah Tannen, útg. 1994.
Jónína Margrét sat í stjórn
Kvennréttindafélags íslands
1979-94, var lengi ritari þess og
varaformaður 1990-94, ritstjóri 19.
júní, ársrits Kvennréttindafélags
íslands, 1980-88 og hefur setið í
nefndum um málefni og menntun
þýðenda á vegum íslenskrar mál-
nefndar og menntamálaráðuneytis-
ins.
Fjölskylda
Jónína Margrét giftist 24.7. 1965
Sveini Snæland, f. 2.3. 1944, verk-
fræðingi. Hann er sonur Péturs
Snælands, fyrrv. forstjóra, og
Ágústu Pétursdóttur Snæland
teiknara.
Börn Jónínu Margrétar og
Sveins eru Pétur, f. 30.5.1971, nemi
í vélaverkfræði við HÍ, en kona
hans er Solveig Hulda Jónsdóttir
tannlæknanemi; Tinna Kristín, f.
4.7. 1973, tannlæknanemi; Sveinn
Orri, f. 28.11. 1981, nemi í grunn-
skóla.
Alsystkini Jónínu Margrétar eru
Einar Guðnason, f. 13.4. 1939, við-
skiptafræðingur í Reykjavík; Berg-
ur Guðnason, f. 29.9. 1941, lögfræð-
ingur í Reykjavík; Elín Guðnadótt-
ir, f. 14.10. 1950, búsett í Reykjavík.
Hálfsystkini Jónínu Margrétar,
samfeðra, eru Jón Guðnason, f.
31.5.1927, prófessor í sagnfræði við
HÍ, búsettur í Reykjavík; Gerður
Guðnadóttir, f. 4.3. 1926, fyrrv.
skrifstofumaður hjá Myndlista- og
handíðaskóla íslands, búsett í
Reykjavík; Bjarni Guðnason, f. 3.9.
1928, prófessor í fombókmenntum
við HÍ og fyrrv. alþm., búsettur í
Reykjavik; Þóra Guðnadóttir, f.
17.2. 1931, móttökuritari á lækna-
stofu, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Jónínu Margrétar
voru Guðni Jónsson, f. 22.7.1901, d.
4.3. 1974, prófessor við HÍ, og Sig-
ríður Hjördis Einarsdóttir frá Mið-
dal, f. 28.10. 1910, d. 18.7. 1979, hús-
móðir.
Ætt
Guðni var sonur Jóns, formanns
á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka,
Guðmundssonar, formanns á
Gamla-Hrauni, bróður Jóhanns,
afa Ragnars í Smára. Guðmundur
var sonur Þorkels, b. og formanns
í Mundakoti, Einarssonar, bróður
Hannesar, langafa Sigurjóns Ólafs-
sonar myndhöggvara. Móðir Guð-
mundar var Guðrún Magnúsdóttir,
formanns í Mundakoti, Arasonar,
b. í Neistakoti, Jónssonar, b. á
Grjótlæk, Bergssonar, ættföður
Bergsættarinnar, Sturlaugssonar.
Móðir Jóns á Gamla-Hrauni var
Þóra Símonardóttir, b. á Gamla-
Hrauni, Þorkelssonar. Móðir Sim-
onar var Valgerður Aradóttir, syst-
ir Magnúsar í Mundakoti. Móðir
Þóru var Sesselja Jónsdóttir, b. á
Ásgautsstöðum, Símonarsonar og
k.h., Guðrúnar Snorradóttur. Móð-
ir Guðrúnar var Þóra Bergsdóttir,
systir Jóns á Grjótlæk.
Móðir Guðna var Ingibjörg
Gíslína Jónsdóttir, b. í Miðhúsum í
Sandvíkurhreppi Jónssonar.
Sigríður var systir Guðmundar
Jónína Margrét Guðnadóttir.
frá Miðdal, föður Errós. Sigríður
var dóttir Einars, b. í Miðdal í Mos-
fellssveit, bróður Eiríks, afa Vig-
dísar forseta. Einar var sonur Guð-
mundar, hreppstjóra í Miðdal, Ein-
arssonar, b. á Álfsstöðum á Skeið-
um, Gíslasonar, b. á Álfsstöðum,
Helgasonar, bróður Ingveldar,
móður Ófeigs ríka á Fjalli.
Móðir Sigríðar var Valgerður
Jónsdóttir, formanns á Bárekseyri
á Álftanesi, Guðmundssonar og
k.h., Sigríðar Tómasdóttur, systur
Margrétar, langömmu Einars
Benediktssonar sendiherra.
Sigurður Helgi Pétursson
Panasonic
hljómtækjasamstæða SC CH72
Samstæða með 3diska spilara,
kassettutæki, 140W.surround
magnara, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
BRAUTARHOLTl OG KRINGLUNNI
Sigurður Helgi Pétursson, hér-
aðsdýralæknir í Austur-Húnavatns-
sýslu og bóndi á Grund, til heimilis
að Merkjalæk í Svínavatnshreppi í
Austur-Húnavatnssýslu, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp til átta ára aldurs, að
Hurðarbaki í Kjós 1954-55 og átti
síðan heima í Austurkoti í Flóa til
1972.
Sigurður lauk landsprófi á Sel-
fossi 1962, stúdentsprófi frá ML 1966
og prófi í dýralækningum við Dýra-
læknaháskólann í Ósló 1971.
Sigurður hóf dýralækningar 1972,
fyrst við afleysingar á nokkrum
stöðum á landinu og var þá m.a. I
hálft ár í Búðardal en 1973 var hann
skipaður héraðsdýralæknir í Aust-
ur- Húnavatnssýslu og hefur starf-
að þar síðan.
Sigurður festi kaup á jöröinni
Grund í Svínadal 1993 og rekur þar
kúabú samhliða dýralæknisstarf-
inu.
Sigurður var formaður Tónlistar-
félags Austur-Húnavatnssýslu í
nokkur ár, situr í skólanefnd Tón-
listarskóla Austur-Húnavatnssýslu,
er formaður sóknarnefndar í Auð-
kúlusókn frá 1983, organisti í Auð-
kúlukirkju frá 1990 og situr í stjórn
Vélsmiðju Húnvetninga.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 14.12. 1975
Ragnhildi Þórðardóttur, f. 12.11.
1951, húsfreyju. Hún er dóttir Þórð-
ar Þorsteinssonar og Guðrúnar
Jakobsdóttur, bónda og húsfreyju á
Grund í Svínadal.
Börn Sigurðar og Ragnhildar eru
Guðrún Valdís Sigurðardóttir, f.
24.3. 1976, nemi við MA; Pétur
Magnús Sigurðsson, f. 9.3. 1979,
nemi við MA.
Systkini Sigurðar eru Magnús
Pétursson, f. 14.9. 1940, málvísinda-
maður og prófessor við háskólann 1
Hamborg; Ólafur Pétursson, f. 20.5.
1943, efnaverkfræðingur og for-
stöðumaður mengunarsviðs Holl-
ustuverndar ríkisins; Margrét Pét-
ursdóttir, f. 11.3. 1948, búsett á Sel-
fossi; Jórunn Pétursdóttir, f. 28.3.
1949, bankastarfsmaður í Reykja-
vík.
Uppeldissystir Sigurðar er Guð-
rún K. Erlingsdóttir, f. 13.4. 1956,
húsmóðir og dagmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar eru Pétur
Magnús Sigurðsson, f. 15.6. 1907,
mjólkurfræðingur og fyrrv."bóndi í
Austurkoti í Flóa og síðar safnvörð-
ur á Selfossi, og k.h., Sigriður Jóna
Ólafsdóttir, f. 31.7. 1912, húsfreyja.
Ætt
Bróðir Péturs Magnúsar var Jón
Norðmann hrl. Pétur er sonur Sig-
urðar Helga, kaupmanns á Siglu-
firði, b. í Fremstagili og verslunar-
manns á Blönduósi, bróður Jó-
sefinu, móður Sigurðar Nordals
prófessors og Jóns Eyþórssonar
veðurfræðings. Önnur systir Sig-
urðar Helga var Katrín, langamma
Þuríðar óperusöngkonu og Einars
miðaldafræðings Pálsbarna. Sigurð-
ur Helgi var sonur Sigurðar, b. í
Gröf í Víðidal og smiðs á Blöndu-
ósi, Helgasonar og Guðrúnar, syst-
ur Margrétar, móður Jóns Þorláks-
sonar forsætisráðherra. Önnur
systir Guðrúnar var Katrín, amma
Katrínar Viðar, móður Drífu Viðar
rithöfundar og Jórunnar Viðar tón-
skálds, móður Katrínar Fjeldsted
læknis. Guðrún var dóttir Jóns,
prests á Undomfelli, Eiríkssonar og
Bjargar Benediktsdóttur Vídalín,
systur Ragnheiðar, ömmu Einars
Benediktssonar, skálds og sýslu-
manns.
Móðir Péturs Magnúsar var Mar-
grét, systir Hafsteins, b. á Gunn-
steinsstöðum, og Magnúsar, læknis
á Hólmavík og í Reykjavlk. Margrét
var dóttir Péturs, b. á Gunnsteins-
stöðum, Péturssonar og Önnu Guð-
rúnar Magnúsdóttur, b. í Holti í
Svínadal, Magnússonar.
Sigríður Jóna er dóttir Ólafs, b. í
Efra-Haganesi í Fljótum, Jónsson-
ar, og Jórunnar Stefánsdóttur, b. í
Haganesi, Jónssonar.
Sigurður er að heiman á afmælis-
daginn.
■(-IjaetaiTS (oakkii' sendi ég eettingjwm og viniAm sem
glöddu mig með keimsókmAmy kv eðjum og gjöj-um á
átteæðisal-maeli mmui )pann 7. maes sl.
Kær kveðja
s iguttðuu Sae-muFAdssouv
jrá S+óm-A^ö^k
ú\re.v\sásve.g'i 58
Sigríður Friðríkka Þórhallsdóttir
Alternatorar - ný gerð
í stærðum 24, volt 90 amper, JIðfffffS)
12 volt, 130 amper.
Aðalkostir:
jff Kolalausir
Helmingsafköst í
jy Sterkbyggðari
* Líftími miklu lengri
jjL Miklu meiri afköst
Einkaumboð fyrir Challenger
BÍLARAFHF.
Borgartúni 19 • sími 552 4700.
Fyrirliggjandi með réttum festingum fyrir
M. Benz, Scania, Volvo,Man, Leyland, Daf ofi.
leysir vandamál margra
Einnig startarar i alla vöru- og rútubíla
Sigríður F. Þórhallsdóttir, hús-
móðir og verslunareigandi, Brim-
hólabraut 1, Vestmannaeyjum, er
fertug í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist á Höfn í Horna-
firði, ólst þar upp og stundaði sitt
nám. Samhliða húsmóðurhlutverk-
inu hefur hún stundað ýmis al-
menn störf, m.a. hjá KASK á Höfn
í Hornafirði, Hótelinu á Höfn, í
Vestmanneyjum hjá VSV, Frost-
veri og fleiri.
Fjölskylda
Sigríður giftist 17.12. 1977 Eini
Ingólfssyni, f. 22.12. 1954. Foreldrar
hans: Ingólfur A. Guðmundsson, f.
27.7. 1909, d. 28.2. 1968, og Kristjana
Sigurðardóttir í Vestmannaeyjum,
f. 5.9. 1915.
Börn Sigríðar og Einis eru Þór-
hallur, f. 19.6.1973, kerfisfræðingur
TVÍ; Elena, f. 18.8. 1978, hár-
greiðslunemi; Einir, f. 13.5. 1983;
Sigurður, f. 12.8 1985; Ingólfur, f.
29.1. 1990.
Systkini Sigríðar: Margrét, f. 5.1.
1945, d. 14.1. 1995, maki Sigfús
Benediktsson vélgæslumaður;
Bjarni, f. 23.3. 1950; Sússanna, f.
23.2. 1952, maki Rúnar Jósefsson
sjómaður; Ásta Þórhalla, f. 21.4.
1960, sjómaður.
Uppeldisbróðir Sigríðar er Ásþór
Guðmundsson, f. 7.11. 1961, maki
Elín Helgadóttir húsmóðir.
Foreldrar Sigríðar: Þórhallur
Henriksson, f. 11.7. 1916, d. 7.11.
1964, og Ásta Bjarnadóttir, f. 19.10.
1924, verkakona frá Hornafirði, nú
búsett á dvalarheimilinu Sæborg á
Skagaströnd.
Ætt
Foreldrar Ástu voru Bjarni Eyj-
ólfsson bóndi, Hólabrekku, Mýrum,
Austur-Skaftafellssýslu, og k.h.,
Margrét Benediktsdóttir húsfrú.
Sigríður Friðrikka Þórhallsdóttir.
Foreldrar Þórhalls voru Henrik Er-
lendsson, læknir á Höfn í Horna-
firði, og k.h., Sússanna Henríetta
Friðriksdóttir.