Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Side 11
Ókomnir ÞRIÐJUDAGUR. 11 JÚNÍ
Fréttir
11
É
Fólksflutningabíll ranglega skráöur í bifreiöaskrá:
Rúta undir
fölsku flaggi
- krefjumst skýringa, segir fulltrúi tryggingafélagsins
GSM
GSM
gsmHISH
Samkvæmt lagabókstafnum er þessi Mercedes Benz 1319, árgerö 1975, alls
ekki sá sem hann er skráður vera, heldur annar og sjö árum nýrri bíll meö
allt ööruvísi vél, gírkassa, drif og hemla. DV-mynd GS
„Það var skipt um undirvagn og
settur nýrri en sá sem var og það er
verið að vinna að endurskráningu á
bílnum," sagði Gísli Friðjónsson,
framkvæmdastjóri hópferðabílafyr-
irtækis Hagvagna, við DV, en hóp-
ferðabíU fyrirtækisins sem hefur
númerið MA 099 er skráður í bif-
reiðaskrá sem Mercedes Benz 1319,
árgerð 1975, og eigandi Lýsing hf.
Gallinn er hins vegar sá að um er
að ræða svokallaðan grindarbíl þar
sem undirvagn og yfirbygging eru
sjálfstæðar einingar, en undirvagn-
inn með vél, drifbúnaði, hjólum og
hemlum telst vera sjálfur bíliinn.
Samkvæmt lagabókstafnum er því
þessi Mercedes Benz 1319, árgerð
1975, alls ekki sá sem hann er skráð-
ur vera, heldur annar og sjö árum
nýrri bíll með allt öðruvísi vél, gír-
kassa, drif og hemla. Sjálfsagt betri
bíll, en annar bíll.
Að sögn Gísla keyptu Hagvagnar
hópferðabílafyrirtæki fyrir ári síð-
an og fylgdi þessi bíll með í kaupun-
um og var þá búið að gera umrædd-
ar breytingar, trúlega árið 1994.
Bíllinn hefur allan þann tíma sem
liðinn er verið á skrá og farið gegn-
um skoðun a.m.k. tvisvar án þess að
skoðunarmenn tækju eftir að um
annan bíl væri að ræða.
Gísli segir að verið sé að vinna að
því að endurskrá bílinn, en einhver
vandkvæði séu á því að breyta
skráningunni og tengist það erfið-
leikum við að rekja um hvaða bíl sé
að ræða, hvort hann hafi verið af-
skráður o.fl í þeim dúr.
Karl Ragnars, forstjóri Bifreiða-
skoðunar, segir við DV að skoðun-
armenn athugi alltaf verksmiðju-
númer, sem greypt er í grind bóa,
og beri saman við það sem skráð er
í bifreiðaskrá. Dæmi séu um að
menn falsi þessi númer á einhvern
hátt af ýmsum ástæðum, og hugsan-
legt sé að svo hafi verið í þessu til-
felli.
Bíllinn MA 099 hefur verið
tryggður hjá Tryggingamiðstöðinni.
Ástrós Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri bifreiðatrygginga, segir að
bíllinn hafi verið settur í kaskó-
tryggingu árið 1993 og hafi Trygg-
ingamiðstöðin þá fengið hann mats-
skoðaðan hjá Nýju bílasmiðjunni.
Ástrós segir að tryggingafélögin fari
jafnan eftir hinni opinberu skrán-
ingu, þ.e.a.s. hvernig bíllinn er
skráður í bifreiðaskrá, þegar bilar
eru teknir í tryggingu eða trygging-
um breytt. „Ég mun nú hringja í
Bifreiðaskoðun og óska eftir því að
þeir taki þennan bO tO skoðunar og
láti mig síðan vita hvað eiginlega sé
þarna á ferðinni," sagði Ástrós.
-SÁ
GSM
GSM
GSM
GSM
Könnun Frjálsrar verslunar:
Ólafur Ragnar með 46 prósent
Samkvæmt nýlegri skoðanakönn-
un Frjálsrar verslunar nýtur Ólafur
Ragnar Grímsson 46 prósenta fylgis
þeirra sem afstöðu tóku tO forseta-
frambjóðendanna fimm. Pétur Kr.
• Hafstein kemur næstur með 23 pró-
senta fylgi, Guðrún Pétursdóttir
með 16 prósent, Guðrún Agnarsdótt-
( ir með 12 prósent og Ástþór Magn-
ússon með 3 prósent.
Úrtak Frjálsrar verslunar var 580
( manns og óákveðnir voru um 35
prósent. Þetta er svipuð niðurstaða
og í könnun blaðsins í maí nema
hvað Ólafur Ragnar og Pétur hafa
nálgst hvom annan í fylgi.
Frjáls verslun spurði jafnframt
um frammistöðu frambjóðenda í
þætti Stöðvar 2 í síðustu viku. Um
36 prósent aðspurðra sögðust hafa
séð þáttinn. Flestir töldu Ólaf Ragn-
ar hafa staðið sig best, eða 28 pró-
sent. Næst kom Guðrún Pétursdótt-
ir með 13 prósent, Pétur með 8 pró-
sent, Guðrún Agnars með 7 prósent
og Ástþór 4 prósent. Um 40 prósent
töldu engan hafa skarað fram úr i
þættinum.
Blaðið spurði jafnframt hver
hefði staðið sig verst í þætti Stöðvar
2. Flestir töldu Pétur hafa verið
lakastann, eða 14 prósent, 13 pró-
sent nefndu Ástþór, 8 prósent Ólaf,
6 prósent Guðrúnu P. og 4 prósent
Guðrúnu A.
-bjb
Ólafur Ragnar Grímsson og Guörún Katrín Þorbergsdóttir, kona hans, efndu
til kynningarfundar í Hellubíói á Hellu á Rangárvöllum sl. laugardagskvöld.
Yfir 50 manns mættu á fundinn en sama dag höföu þau verið á fundum á
Hvolsvelli og í Vík í Mýrdal. Hér sést Ólafur í kaffibollaspjalli viö Svavar Krist-
insson, verslunarmann á Hellu. DV-mynd Jón Þórðarson
„ ÓlafsQöröur:
Ovissa með
framtíðina
hjá Gliti
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég veit ekki hvort þessi fram-
leiðsla fer í gang að nýju. Það getur
verið erfitt að byrja á nýjan leik,“
segir Þorsteinn Ásgeirsson, forseti
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar, um það
hvort starfsemi muni hefjast að
nýju í keramikverksmiðjunni Gliti
sem Ólafsfjarðarbær keypti á sínum
tíma.
Seint á síðasta ári kom í ljós að
sölumálum fyrirtækisins hafði ekki
verið sinnt sem skyldi og mikill lag-
er hlaðist upp hjá fyrirtækinu.
Framleiðslu var því hætt tímabund-
ið a.m.k., en eins og Þorsteinn segir
er óvíst hvort hún hefst að nýju.
-gk
GSM
GSM
Eftirtalin lönd í Evrópu veita
íslendingum möguleika á að nota GSM:
Austurríki, Belgía, Bretland, Danmörk, Eistland, Finnland
Frakkland, Grikkland, Holland, írland, Lettland, Litháen,
Luxemborg, Noregur, Portúgal, Spánn, Sviss, Svíþjóð,
Tyrkland, Ungverjaland, Þýskaland.