Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 13 Þjóðaratkvæðagreiðslur í málefnasnauðri kosningabar- áttunni er það ánægjulegt að þjóð- aratkvæðagreiðslur eru eitt af þeim fáu málefnum sem rædd eru af einhverju viti. Að vísu tengist þessi umræða nokkuð 67. grein stjómarskrárinnar sem gefur for- setanum rétt til að neita að skrifa undir lög og vísa þeim til þjóðarat- kvæðis. Frambjóðendur deila um hvernig beri að skýra þessa grein eða hvort, og þá hvernig, nýta beri þessa heimild. Umræðan hefur sem betur fer einnig snúist um gildi þjóðarat- kvæðagreiðslna almennt og virð- ast frambjóðendur allir sammála um það að setja beri almenna lög- gjöf - jafnvel ákvæði í stjórnar- skrá - sem veita borgurunum rétt til þess að krefjast þjóðaratkvæða- greiðslna ef ákveðinn hluti kjós- enda fer fram á það. Guðrún Agn- arsdóttir hefur sérstaklega gert þetta atriði að stóru máli í sinni kosningabaráttu. Vaxandi vinsældir Stjórnmálamönnum er, almennt talað, illa við þjóðaratkvæða- greiðslur; sérstaklega ef þeir eru í stjórn. Þetta gildir ekki bara um ísland, heldur er hér um alþjóðlegt fyrirbæri að ræða. Vegna sérstakrar lýðræðishefð- ar í Sviss sker það land sig úr hvað þjóðaratkvæðagreiðslur varðar, en um helmingur allra þjóðaratkvæðagreiðslna í heimin- um hafa farið fram í Sviss. Síðustu tvo til þrjá áratugina hafa þjóðar- atkvæðagreiðslur færst í vöxt á Vesturlöndum og má þar nefna sum ríki Bandaríkjanna (til dæm- is Kaliforníu) og Ítalíu - en þar gegndu þjóðaratkvæðagreiðslur miklu hlutverki við að knýja fram róttækar stjórnkerfisbreytingar. Lýðræðislegur réttur Lýðræðislegast væri auðvitað að taka ákvarðanir um sameigin- leg mál þannig að allir greiddu um þau atkvæði. f flóknu nútímasam- félagi er þetta ekki mögulegt, þó að nútíma tölvutækni geri það í sjálfu sér kleift að setja atkvæða- hnappa inn á hvert heimili. Full- trúalýðræði felst í framsali valds til kosinna fulltrúa; þetta framsal er tímabundið og alls ekki algjört. Kjallarinn Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur Það er því sjálfsagt - og í samræmi við lýðræðishugmyndir okkar - að útkljá sameiginleg mál með tleiri aðferðum en fulltrúakosningunni einni saman. Meginrökin fyrir þjóöarat- kvæðagreiðslum eru þvi þau að þær eru taldar lýðræðislegur rétt- ur fólks að taka beina og milliliða- lausa ákvörðun um tiltekin mál. Önnur mikilvæg ástæða er sú að ákvörðun sé svo mikilvæg að hún öðlist ekki lögmæti í hugum fólks nema um hana sé greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem dæmi má nefna ESB-aðild. Þriðja ástæðan er sú að stjóm- málamenn treysti sér ekki til að taka ákvörðun í málinu og losi sig undan þeim kaleik með þjóðarat- kvæðagreiðslu. Fjórða ástæðan er að málið sé þess eðlis að það liggi þvert á tlokka, gjarnan á sviði við- kvæmra siðferðislegra deilumála. Hér má nefna skilnaðarlöggjöf og fóstureyðingarlöggjöf í kaþólskum löndum og áfengisútsölur í ís- lenskum bæjarfélögum. Er ekki annars kominn tími til að íslendingar greiði atkvæði um fleira en hvort selja megi brenni- vín í bænum? Birgir Hermannsson „Síðustu tvo til þrjá áratugina hafa þjóðaratkvæðagreiðslur færst í vöxt á Vesturlöndum... “ segir Birgir m.a. í grein- inni. „Stjórnmálamönnum er almennt talað illa við þjóðaratkvæðagreiðslur; sérstaklega ef þeir eru í stjórn. Þetta gildir ekki bara um ísland, heldur er hér um alþjóðlegt fyrirbæri að ræða.“ Nýsköpun í ráðgjöf Gagnrýna verður framkvæmd laga um fjöleignarhús og gerð eignaskiptasamninga. Reglur og aðferðir eru svo flóknar og lang- sóttar að til vandræða horfir og standast ekki faglega gagnrýni. Þær eru óhóflega dýrar fyrir hinn almenna húseiganda og munu kosta almenning hundruð millj- óna. Þá munu þær valda ruglingi og óvissu í stærðarskráningu í áratugi. Ófaglegar aðferðir Hér eftir miðast eignarhlutar fasteigna í tjöleignarhúsum við svonefnt nettórúmmál eigna. Um langt skeið hefur útreikningurinn miðast við flatarmál. Við mats- störf húseigna er viðurkennt að miða beri útreikninga við gólfflöt. Það gildir um verðmæti, fram- kvæmdakostnað, leiguverð og fleira. Notkun rúmmáls hefur lagst af í matsstörfum á undan- förnum áratugum, nema í sértil- fellum, vegna þess að nytsemi eigna ræðst af gólffletinum. Til dæmis vex notagildi 100 m2 skrif- stofu um allt að helmingi ef gólf- flötur hennar stækkar í 200 m2. Hins vegar eykst notagildið ekki þó lofthæðin aukist úr 3,5 metrum upp í 4,0 metra og rúmmálið sem því nemur. Notagildi íbúða ræðst aðallega af gólffleti og herbergja- fjölda. Aukin lofthæð mun nú auka hlutdeild íbúða i sameigin- legum kostnaði. Þá eru í reglunum þættir umreiknaðir í ímyndaðar stærðir sem ekki þykir til fyrir- Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræöingur myndar í matsstörfum. Svalir eru til dæmis umreiknaðar í „rúm- mál“ sem bætt er við raunverulegt rúmmál íbúðarinnar. Ósamræmi í stærðum í áratugi Nú verða skilgreindar margar stærðir sem lýsa fermetrastærð fasteignar. Nettóflatarmál og brúttóflatarmál hafa hlotið nýja merkingu gjörólíka því sem fólk hefur vanist. Þá er skilgreint inn- rými og helsti mælikvarði á stærð fasteignar verður „birt flatarmál". Nýju stærðimar em ólíkar þeim sem í dag eru skráðar í fasteigna- skrá og eiga að koma í stað þeirra. í skránni eru nú á annað hundrað þúsund fasteignir með eldri stærð- ir. Varlega áætlað liggur 50 mann- ára vinna í útreikningi þeirra. Stærðirnar þarf nú að endur- reikna og skrá „birt flatarmál" í staðinn. Á meðan endurreikning- urinn varir koma bæði nýju og gömlu stærðirnar fyrir í fasteigna- skrá. Miðað við fengna reynslu mun það taka yfir 20 ár (rétt). Á meðan verða tvær óskyldar stærð- ir í opinberum skrám. Fasteigna- salar taka úr fasteignaskrá stærð- ir til upplýsingar fyrir kaupendur. Þeir verða þá að útskýra hvort 210 m2 raðhús samkvæmt „gömlu máli“ sé stærra en 190 m2 hús eft- ir „birtu flatarmáli". Dýrt fyrir almenning Hinar nýju reglur verða eigend- um húsnæðis dýrar. Útreikningur eignarhluta er orðinn svo flókinn að miklu lengri tíma tekur að finna þær en áðmv Reglurnar eru auk þess svo ólikar þeim sem áður giltu að eignarhlutar breytast nær alltaf við endurskoðun. Margir munu því krefjast breytinga á gild- andi samningum. Gerð allra yfir- lýsinga er eftir 1. júní í höndum þrjátíu manns sem hlotið hafa leyfi. Ýmsir þeirra hafa með því skapað sér starfsgrundvöll í nokk- ur ár. Þó greinarhöfundur sé í þessum hópi hlýtur hann að vekja athygli á þeim óhóflega kostnaði sem velt er á eigendur. Auk kostn- aðar við gerð eignaskiptayfirlýs- ingar bera eigendur kostnað við útreikning stærða sem eru eigna- skiptunum algjörlega óviðkom- andi. Nú þarf nefnilega að skila byggingarfulltrúa flatarmáli allra útveggja, glugga og útidyra á hús- inu! Hinar nýju reglur munu kosta fasteignaeigendur 100-200 milljónir á næstu árum. Ágætur maður sagði í gamni þegar hann var spurður hvers vegna þetta væri svona flókið; „í síðustu þing- kosningum voru gefin fyrirheit um 15 þúsund ný störf fyrir alda- mót. Hér er komið til móts við tæknimenn." Lögin um fjöleignar- hús og framkvæmd þeirra er lík- lega ákveðin tegund nýsköpunar! Stefán Ingólfsson „Hér eftir miðast eignarhlutar fasteigna í fjöleignarhúsum við svonefnt nettórúm- mál eigna. Um langt skeið hefur útreikn- ingurinn miðast við flatarmál. Við mats- störf húseigna er viðurkennt að miða beri útreikninga við gólfflöt.“ Með og á móti Pétur Blöndal, þingmaður og stærðfræðingur. Ný lög um flatan 10 pró- senta fjármagnstekjuskatt Kostir upp- hefja ókosti „Ég hef ýms- ar efasemdir um skattlagn- ingu, sérstak- lega á vöxtum, þar sem sparn- aður lands- manna er mjög litill auk þess sem verðbætur eru skattlagðar en þær eru ekki tekjur. Hins vegar tókst að ná fram í þessu frum- varpi ákveðinni samræmingu á milli fjármagnstekna þannig að ofsköttunin á söluhagnaði hluta- bréfa, af arði og leigu leggst af. Núna eru tekjur af þessum form- um skattlagðar eins. Það sem er eftir að gera er að lækka og jafna eignaskattlagn- inguna, sem enn er miklu hag- stæðari á bankainnistæðum og spariskírteinum. Ég tel að þessi aðstöðujöfnun hætti að stýra fjármagni frá atvinnulifinu til ríkisins og bankanna og muni gera það að verkum að fólk mun í auknum mæli fjárfesta í hluta- bréfum. Því er a.m.k. ekki refsað fyrir það lengur. Þetta mun styrkja eiginfjárstöðu íslenskra fyrirtækja þannig að þau geti betur staöist áfoll en þau hafa gert til þessa. Margir hafa tengt saman at- vinnutekjur og fjármagnstekjur. Þar er þó reginmunur á. Stór hluti vaxta er td. verðbætur, sem ekki eru tekjur, í leigunni er fólginn kostnaður og í tekjum af hlutabréfum er verið að skatt- leggja tapsáhættu. Kostir þessa frumvarps uppheija ókostina." Gefa eigna- fólki „Lengi hefur laimafólk kraf- ist þess að komið verði á Oár- magnstekju- skatti þannig að tekjur af fjármagni verði skatt- lagðar eins og tekjur af launavinnu. Einvörðungu yrði raunávöxtun fjárins skattlögð og um þessa tekjur myndu gilda svipaðar reglur um skattleysismörk og launatekjur. Þannig yrði smá- sparendum hlíft en stórefnafólk látið greiða til samfélagsins. Um þetta kom fram frumvarp á þingi en fékkst ekki afgreitt. Þess í stað voru samþykkt lög um að skattleggja alla vexti um 10% en á sama tíma voru skattar af arði og söluhagnaði lækkaöir úr 42-47 prósent niður í 10 pró- sent. Þetta gefur efnaðasta hluta þjóðarinnar mörg hundruð millj- ónir króna í aðra hönd. Ekki nóg með þetta, því á meöan skatt- frelsismörk launamannsins eru um 750 þúsund á ári verða skatt- frelsismörk einstaklings, sem að- eins hefúr tekjur af fjármagni og eignum, um 3 milljónir króna. Lögin gefa þannig stóreigna- fólkinu stórkostlega forgjöf. Það fólk heíði líka helst viljað losna við að greiða 10% skatt á vexti en skattalækkanirnar vega upp á móti þeirri sorg. Enda er glatt á hjalla í kauphöllinni eftir sam- þykkt laganna." -bjb Ogmundur Jónas- son, þlngmaður og formaður BSRB.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.