Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Síða 16
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 DV
i6 tllveran
Einbeitingin skín úr andlitum þeirra sem horföu á frumsýningu Brúöubílsins í síöustu viku. Úlfurinn kom á staöinn og reyndi aö ná grísunum þremur. Ekki er ólíklegt aö hann hafi einmitt veriö aö
veiöum þegar Ijósmyndari DV smeliti af. Brúöubíllinn sýnir tvisvar á dag alla daga vikunnar í júni og júlí og því ættu allir krakkar aö geta séö úlfinn, Lilla og aliar hinar skemmtilegu brúöurnar
bregöa á leik. DV-myndir GVA
Brúðubíilinn frumsýndi Bibi-di-babbi-di-bú í síðustu viku:
Börnin trúa brúðun-
um fyrir öllu
Hann var ekki alveg klár á litunum á boltunum en krakkarnir hjálpuöu til
þegar strákurinn lenti í vandræöum. í dótakassanum er fullt af dóti sem
krakkarnir fá aö sjá.
Sýningarnar
eru öllum opnar
Brúðubíllinn sýnir tvær sýningar í
sumar, Bibi-di-babbi-di-bú í júní og
Gaman á gæsló í júlí. Farið verður á
um 30 gæsluvelli báða mánuðina og
verður sýnt tvisvar á dag alla daga
vikunnar. Hver sýning tekur um 30
mínútur.
Bibi-di-babbi-di-bú segir frá Geira
grallara sem sýnir krökkunum í dó-
takassann sinn og þar kennir margra
grasa. Trúöurinn Dúskur segir
krökkunum söguna af Úlfln
um og grisunum
þremur, Skrúbb-
urinn baöar
Lilla og sung-
ið er um dýrin í
Afríku.
Margar brúður koma fram, gamlir
kunningjar og einnig nýir vinir
bamanna, hanskabrúður, stangar-
brúður og brúður sem leikaram-
ir klæðast.
Leikstjóri sýningarinnar er
Sigrún Edda Björnsdóttir,
handrit og búningar em eftir
Helgu Steífensen, vísur sömdu
Jóhannes Benjamínsson o.fl.
og tónlistarstjórn er í höndum
Magnúsár Kjartanssonar. Þeir
leikarar sem ljá brúðunum
raddir sínar eru Júlíus Brjáns-
son, Vigdís Gunnarsdóttir, Pálmi
Gestsson, Sigrún Edda Björnsdóttir
og Helga Steffensen. Ásamt Helgu
stjórna Sigrún Erla Sigurðardöttir og
Frímann Sigurðsson brúðunum á sýn-
ingunni. Bílstjóri er Gylfí Einarsson,
tjöldin gerði Þórhallur Böðvar Jónsson
og Ingibjörg Jónsdóttir búningana. Upp-
tökustjóri er Pétur Hjaltested. Brúöu-
bíllinn starfar á vegum íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkurborgar og em
sýningarnar öUum opnar og aðgangur
ókeypis.
„Ég er búin að vera í þessu í sext-
án ár og þetta er aUtaf jafn gaman.
Sumar brúðumar lifa lengur en aðr-
ar og sumar eru búnar að vera með
mér nánast aUan tímann. Krakkam-
ir eru hreinskUnir og þeir liggja
ekkert á því ef þeim fmnst ekki
gaman. Eftir þetta langan tíma er ég
farin að vita nokkuð hvað þeim lík-
ar,“ segir Helga Steffensen en hún
hefur alla tíð samið handrit og búið
til brúður í BrúðubUinn. Tilveran
brá sér á frumsýningu BrúðubUsins
í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg í
síðustu viku.
Börnin taki þátt
Helga segir und-
irbún-
inginn fyrir frumsýning-
una hafa staðið síðan í janú
ar. Þá hafi hún sest niður tU
að skrifa handrit og búa tU
brúðurnar.
„Sýningin byggist á
því að börnin taki
þátt í þessu með okk-
ur. Það er mikUvægt að
passa upp á að þau séu
virk en samt vU ég ekki
að þau séu óróleg. Þau
tnega syngja með og svo
finna þau hvenær þau
eiga að kaUa og taka
virkan þátt.“
Helga segir börn áUt
frá tveggja ára aldri
koma á sýninguna og síð-
an aUur aldur þar fyrir
ofan. Hún segir þó Uesta
áhorfendurna koma frá
leikskólunum og af gæslu-
vöUunum.
Eins og gefur að skUja
byggist brúðuleikhús að
mestu upp á brúðum. í
- segir Helga Steffensen
Bibi-di-babbi-di-bú koma leikarar
fram í búningum en Helga segir
brúðurnar skipta mestu máli.
Þau treysta brúðunni
„Það sem skiptir mestu máli er að
brúðurnar höfða svo sterkt tU barn-
anna. Þau treysta þeim og segja
þeim aUt. Brúðan afhjúpar aUt sem
heitir feimni og hlédrægni," segir
Helga. Hún segir mestu hrekkju-
svínum oft á tíðum fallast hendur
þegar brúðurnar byrji að tala.
Að sögn Helgu frnnst börnunum
svo spennandi að sjá hversu dugleg
brúðan er. Hún geti aUt, flogið, kom-
ið ofan úr loftinu og gert svo margt
sem bömin geta ekki gert sjálf.
Helga segir það rosalega spenn-
andi.
„Hjá börnunum rennur
imyndunin og raun-
veruleikinn stundum
saman. Þau eru
kannski hrædd við
úlfínn en þegar
ég fer úr
honum
og sýni þeim að hann er bara tusku-
brúða verður aUt í lagi. Síðan fer ég
aftur í búninginn og þá verða böm-
in kannski hrædd að nýju. Þau lifa
sig svo mikið inn í sögurnar og það
er svo skemmtUegt,“ segir Helga
Steflensen.
-sv
Helga Steflensen held-
ur hér á Lilla en hann
hefur fylgt henni í,
fimmtán ár. Þótt hann
sé í raun oröinn svo
gamall á hann alltaf aö
vera fimm ára. Óþekkt-
aranginn vill ekki láta
baða sig en meö
hörkunni fæst hann til
aö þvo sér pínuiítiö í
Brúöubilnum.
• '