Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1996, Side 36
N G A L«TT« til mikjls að yinflð \y Mánudagur 10.6/96 ®©@ KIN FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 11. JUNI 1996 2V2 árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás við Hjarðarhaga í febrúar: Stakk mann þrisvar sinnum í amfetamínvímu - réðst í félagi við þrjá aðra á fórnarlambið, skallaði og kýldi í andlit Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur dæmt Kristmund Örlygsson, 25 ára Kópavogsbúa, í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa stungið 27 ára karlmann þremur hnífstungum, skallað hann í andlit og veitt honum mörg hnefahögg í samkvæmi í íbúð við Hjarðarhaga að morgni sunnudagsins 11. febrú- ar siðastliðins. Eitt hnífslagið gekk inn í mitt hægra nýrað og gekkst hann undir aðgerð á Borg- arspítalanum. Samkvæmt ákæru komst maðurinn í lífshættu vegna árásarinnar. Kristmundi er einnig gert að greiða fórnarlambinu tæpa hálfa milljón króna í miska- og skaðabætur. Kristmundur var ákærður fyrir tilraun til manndráps en dómurinn taldi sönnur ekki hafa verið færðar á að ætlun hans hafi verið að bana umræddum manni. Hann kvaðst hafa unnið verkið í einhvers konar brjálæði undir áhrifum am- fetamíns, áfengis og svefnlyfja. Aðdragandi árásarinnar var sá að mennimir tveir fóru í leigubíl að Hjarðarhaga aðfaranótt sunnu- dagsins og varð þeim þá sundur- orða. Þegar komið var á staðinn hringdi Kristmundur í félaga sinn og bað hann um hjálp. Sá tók tvo menn með sér og þegar þeir komu á Hjarðarhagann réöust þeir i fé- lagi á fórnarlambið. Kristmundur stakk manninn í annan fótinn og tvisvar í bakið og kýldi hann með hnúanum og höfði í andlitiö. Eftir árásina tókst þeim sem fyrir henni varð aö komast út ásamt félaga sínum og komust þeir síðan á sjúkrahús. Sam- kvæmt upplýsingum læknis fyrir dómi þótti líklegt að maðurinn næði fullum kröftum á ný á 5-8 vikum. Dómurinn taldi „ekki alveg óhætt að slá því föstu“ að Krist- mundi hefði verið Ijóst að fórnar- lambið hlyti langlíklegast bana af atíögunni. Á þeim forsendum var hann sýknaður af tilraun til manndráps en þess í stað sakfelld- ur fyrir stórfellda líkamsárás. Auk skaðabótanna er Krist- mundur dæmdur til að greiða 235 þúsund krónur í málsvarnar'- og saksóknaralaun. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 23. febrúar og dregst sá tími sem liðinn er frá hinni dæmdu fangelsisrefsingu. -Ótt Frambjóðandi í hættu . Hurð hrökk upp á leiguflugvél sem Pétur Kr. Hafstein og kona hans Inga Ásta voru í yfir Snæfells- jökli á laugardaginn. Með þeim voru einnig sonur þeirra og vinur hans auk flugmannsins. Ferðinni var heitið á flugvöllinn á Rifi til fundahalda á Snæfellsnesi. Pétur náði taki á hurðinni og hélt henni aftur þar til lent var tíu mín- útum síðar og hættuástandið var af- staðið. -GK Grásleppuveiðar Akranesi: Ördeyða nú eft- ir metár í fyrra DV, Akranesi: T-----------------;----------- Grásleppukarlar á Skaganum eru ekki ánægðir þessa dagana með ver- tíðina. Að sögn þeirra er veiðin mjög léleg. Einn líkti vertíðinni nú við vertíðina 1994 sem var afspyrnu- slök. Mun fleiri grásleppukarlar stunda veiðar nú en á síðasta ári. Vertíðin þá var sú besta í 10 ár. Margir grásleppukarlar lögðu í mik- inn kostnað við báta sína við undir- búning vertíðarinnar og bjartsýni var mikil eftir hinn góða árangur á síðasta sumri. Sá kostnaður endur- greiðist ekki nú og sumir voru svo bjartsýnir á gang veiðanna á þess- ari vertíð að þeir tóku sér frí frá -^annarri vinnu. -DÓ Nú fer tími brúðkaupanna í hönd en að sögn Arnars Guðmundssonar hjá Blómaversluninni Laufási á Akureyri fara um 95% allra giftinga hér á landi fram á tímabilinu júní og fram í ágúst. Laufás var með sýningu í göngugötunni á Akureyri um helgina þar sem „brúðarpar" gekk um götuna og sýndi m.a. ýmsar gerðir brúðarvanda. DV-mynd gk L O K I Veðrið á mogun Víðast léttskýjað Á morgun verður vestan- og norðvestangola eða kaldi og víðast léttskýjað. Hiti verður 6 til 15 stig. Veðrið í dag er á bls. 36. Flosi ÍS 15: Hæg en örugg ferð til lands „Það verður ekki fyrr en komið er til lands sem við getum séð hvað er að. Þetta gengur allt hægt en ör- ugglega og það virðist engin hætta á að báturinn sökkvi," segir Helgi Hallvarðsson, yfirmaður gæslu- framkvæmda, en varðskipið Týr er nú á leið til lands með ísfirska sfld- arbátinn Flosa ÍS 15 i togi. í morgun voru skipin komin rétt inn fyrir landhelgismörkin en Flosi fékk mikla slagsíðu á sig á sunnu- dagskvöldið á síldarmiðunum í fær- eysku landhelginni. Er búist við skipunum til Austfjarða á morgun en þau hafa um 6 mUna ferð. Verið var að dæla sUd úr nóta- skipinu Berki NK yfir í Flosa þegar báturinn lagðist á hliðina. Get menn sér þess til að skilrúm hafi brostið. Áhöfnin af Flosa er öll utan skipstjórinn um borð í Berki. Hann er i varðskipinu. Börkur er væntan- legur til Neskaupstaðar i dag. -GK Brotist inn í mat- artímanum Brotist var inn í tölvufyrirtækið Tölvuval á Krókhálsi í matartíman- um í hádeginu í gær. Farið var inn um glugga og varningi stolið fyrir um tvær milljónir króna. Rannsóknarlögreglan fer með málið en í morgun hafði ekki tekist að hafa hendur í hári þjófsins eða þjófanna. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.