Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Page 13
JDV LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
13
Nýr formaður sameiginlegs íþróttafélags Reykjanesbæjar:
Rígurinn helst á milli félaganna
- segir Hjálmar Árnason, alþingismaður og formaður fþróttabandalags Reykjanesbæjar
DV. Suðumesjum:
„Hægt er að líta á stofnun banda-
lagsins sem síðasta liðinn í samein-
ingu sveitarfélagana. Samkvæmt lög-
um ÍSÍ má eitt íþróttabandalag starfa
í hverju sveitarfélagi. Allt síðasta ár
hefur verið unnið mjög ötullega af
háifu stjórna og formanna íþróttafé-
lagana hér í sveitarfélaginu að und-
irbúningi þessa bandalags. Þetta er
viðkvæmt mál, tilfmningamái. Ég
held að ástæða sé til þess að hrósa
formönnum félagana fyrir mjög
skynsamlegan og góðan undirbún-
ing,“ sagði Hjálmar Ámason alþing-
ismaður sem var nýlega kosinn for-
maður íþróttabandalags Reykjanes-
bæjar.
„Þetta þýðir ekki samruna íþrótta-
félaga. Það verður sama spennan og
sami rígurinn milli félaga í körfubol-
taleikjum milli Njarðvíkinga og Kefl-
víkinga en saman yrðu þau í íþrótta-
bandalagi í sama sveitarfélagi.
íþróttabandalag er myndað af þeim
íþróttafélögum sem starfa hér í bæj-
arfélaginu og þau eiga sér fulltrúa i
stjóm eða varastjóm. Bandalagið er
ekki beinn framkvæmdaraðili held-
ur reynir að koma í veg fyrir að það
verði árekstrar á milli félaga og
raunar að skipuleggja megindrætti
íþróttastarfs í bæjarfélaginu þannig
að kraftur nýtist sem allra best.
Framkvæmdaraðilinn er svo ein-
stöku íþróttafélög.“
Hlakkar til starfa
„Ég hlakka mjög til að starfa með
því ötula fólki sem er í stjóminni og
veit að formennskan verður mjög
þægileg því að þetta er svo duglegt
fólk sem þar situr, fulltrúar félag-
anna.
í fyrsta lagi hefur verið sett að
markmiði að efla heilbrigt íþrótta-
starf í bæjarfélaginu og þá fyrir alla,
ekki bara keppnisíþróttir heldur líka
almenningsíþróttir. Fulltrúar
íþróttafélagana hér á svæðinu reyna
að setja niður hver sé þörfin og
hvemig aðstaðan til þess að stimda
íþróttir er í bæjarfélaginu, jafnt
keppnisíþróttir sem aðrar almenn-
ingsíþróttir. Ætlunin er að setja nið-
ur langtímamarkmið og reyna að ná
samstarfi við bæjaryfirvöld um kerf-
isbundna og markvissa uppbyggingu
á íþróttamannvirkjum og iþróttaað-
stöðu.
í öðm lagi að kynna og efla íþrótt-
imar á heilbrigðum grund-
velli og þar er ýmislegt
í bígerð. í þriðja
lagi er uppeldis-
hlutverk íþrótta-
hreyfíngarinnar.
Til allrar ham-
ingju em æ fleiri
unglingar og böm
sem snúa sér að
íþróttum og það
sýnir sig að mark-
viss íþróttaiðkun
bama og unglinga
dregur úr óheil-
brigðu lífemi. Að
þvi leyti gegnir
íþrótta-
hreyfmgin uppeldishlutverki á sama
hátt og skólar, tómstundaráð og
fleiri aðilar.
Eitt af þeim stóm markmiðum
sem við höfum rætt og viljum vinna
ötullega að er að leiða saman alla þá
aðila sem sinna í rauninni uppeldi
barna. í dag er það því miður þannig
að aðilar eins og heimili, skólar,
íþróttahreyfmg og tómstundaráð
vinna alltof einangrað. Þessir aðilar
tala alltof lítið saman. Við vitum að
margir unglingar hafa mikinn metn-
að fyrir því að ná árangri í íþróttum.
Aðrir hafa áhuga á að ná árangri í
skóla og svo framvegis. Okkur finnst
mikilvægt að einstaklingurinn nái
árangri á öllum sviðum; til þess að
svo megi verða þá þurfa þessir aðil-
ar allir að tala saman. Það er eitt
sem við viljum vinna að og setjast
niður með fúlltrúum nemendafélag-
anna, foreldrafélaga, skóla, kirkju,
tómstundarráðs, lögreglu og svo
framvegis til þess að sefja okkur ein-
hver markmið að hverju við viljum
vinna með hagsmuni einstaklingsins
i huga. Þetta tengist líka þeim mikla
vágesti sem eru vímuefni og vaxandi
áfengisneysla meðal barna og ungl-
inga og þessi uppeldisþáttur á að
gegna því mikilvæga hlutverki að
virka sem forvöm. Vímuefni eru
eins og við vitum að verða einn
mesti vágestur meðal þjóðarinnar og
þar verða allir aðilar að taka hönd-
um saman og íþróttahreyfmgin get-
ur og vill gegna þessu mikilvæga
hlutverki á því sviði.“
Hjálmar segist alla tíð hafa haft
áhuga á íþróttum. Hann æfði sem
ungur maður knattspymu í Kópa-
voginum með Breiðabliki og átti
skráðan leik í íslandsmóti þar. Hann
lék knattspymu með oldboysliði FH
meðan hann kenndi og bjó í Hafnar-
firði. Þar starfaði hann mikið með
handknattleiksdeild FH og er í hand-
boltanum bullsjóðheitur FH- ingur
og á mjög erfitt þegar Keflavík og FH
leiða saman hesta sína í knattspymu
en þá heldur hann með báðum liðun-
um.
Formaður
FH í körfubolta
„Kennararnir í Flensborg í Hafii-
arfirði, þar sem ég kenndi, æfðu
körfubolta tvisvar í viku og ákváðu
að taka þátt í firmakeppni KKÍ. Ein-
ar Bollason, samkennari minn og
góður vinur, var aðaldrif-
fjöðrin í þessu. Þama
vom einnig Geir Hail-
steinsson, Ingvar
Viktorsson, núver-
andi bæjarstjóri,
og fleiri góðir
menn. Einar
hringdi inn á KKÍ
til að tilkynna þátt-
töku þeirra í firma-
keppni. Þetta hefur
verið í kringum 1975. Þá
var gerð sú krafa að þeir
yrðu að vera í nafhi einhvers
félags. Ekki gátu þeir farið
sem Haukamenn því þeir
Hjálmar Árnason alþingismaöur var nýlega kosinn formaöur íþróttabanda-
lags Reykjanesbæjar. DV-myndir ÆMK
vom með sitt lið. Einar sagði að við
færum í nafhi FH og þá var ekki til
körfuboltadeild. Hann stofhaði hana
í símtalinu. Þá var honum sagt að
það yrði jafnframt að tilkynna um
formanninn. Einar er afskaplega
stríðinn maður og röskur. Ég sat við
hliðina á homun og ég sá að færðist
ægilegt glott yfir andlit Einars. Hann
tilkynnti að formaður deildarinnar
væri Hjálmar Ámason og þar með
var ég kominn á bólakaf í íþróttir.
Við tókum þetta starf mjög alvarlega
og er skemmst að segja frá því að hið
sigursæla lið FH í körfubolta vann
firmakeppnina. Einar Bollason var
þá landsliðsþjálfari og þurfti að
gegna sem slíkur skyldum við að út-
breiða íþróttina og fór meðal annars
vestur í Ólafsvík til að kynna körfu-
bolta í litlum sal þar. Hann nennti
ekki að fara einn svo hann dró hið
sigursæla lið meö sér og þar var leik-
inn fyrsti opinberi leikur i Ólafsvik.
Einar skoraði 66 stig í þessum leik
og þess þarf ekki að geta að hið sig-
ursæla lið FH vann leikinn með
miklum mun.
Ein af ástæðum þess að deildin
lagðist niður var að formanninum
leiddist heldur körfubolti. Síðan
fluttist ég til Suðumesja og fór þá að
kynnast og hafa áhuga á körfubolta.
Eins og ég var mikill handboltaaðdá-
andi meðan ég bjó i Hafnarfirði þá er
ekki hægt að komast hjá því að fá
áhuga á körfubolta búandi á Suður-
nesjum með þessi þijú topplið í ís-
lenskum körfubolta hér á Suðumesj-
um.“
Varð að taka afstöðu til
FH eða Hauka
í Flensborg þurfti Hjálmar að taka
afstöðu með annaðhvort FH-ingum
eða Haukum. Vinir hans, Geir Hall-
steinsson og Ingvar Viktorsson, sáu
til þess að hann gerðist FH-ingur.
„Ég held að ég hafi séð hvem ein-
asta leik með FH í handbolta í fjögur
ár hvar á landinu sem hann var leik-
inn. Ég gaf einnig út blöð fyrir FH og
hugsa enn þá með sælu til þess tíma,
allt sjálfboðastarf og hvað menn gáfu
mikið af sér í stemninguna í kring-
um þetta. Húmorinn og félagskennd-
in var mikil.
Þegar fulltrúar félaganna leituðu
til mín um að taka að mér for-
mennskuna í bandalaginu þá féllst
ég á það að vandlega ihuguðu máli
að taka upp þráðinn sem frá var
horfið með starfi sem ég sinnti í
Hafnarfirði fyrir iþróttahreyfinguna
þar, þrátt fyrir mikið annriki í mínu
starfi. Að fá að upplifa þessa
skemmtilegu stemningu sem fylgir
íþróttastarfi og því miður er svona
sjálfboðastarf í þjóðfélaginu á undan-
haldi,“ sagði Hjálmar Ámason.
-ÆMK
Sturtuklefar
sturtuhorn
og hreinlætistæki
TILBOÐ
Baðsett kr. 21.000 stgr.
Innifalið í tilboði:
SambyggtWC m/harðri setu.baðkar 170x70
cm, handlaug á vegg 55x45 cm.
ATH. Sami framl. á öllum stykkjum tryggir sömu
áferð og lit.
Bogahorn, 80x80 cm eða
90x90 cm.Sveigt og hert
öryggisgler, þverröndótt,
segullæsingar á hurðum.
Verðfrákr. 23.800 stgr.
Heill sturtuklefi, 80x80 á kant,
með botni, vatnslás, segul-
læsingu á hurð, blöndunar-
tæki og sturtubúnaði.
Verð kr. 29.800 stgr.
Sturtuhorn, hert 4 mm
öryggisgler, matt eða röndótt
Stærðir 69 til 90 cm á kant.
Verð frá kr. 14.750 stgr.
Sturtuhurðir, heil opnun,
segullæsing, hert 4 mm
öryggisgler, þverröndótt.
Stærðir 76 til 90 cm.
Verðfrákr.l 2.900 stgr.
Sturtuhorn, heil hlið og heil
opnun, hert 4 mm öryggisgler,
segullæsing á hurð,
þverröndótt. Stærðir 80x80
eða 90x90 á kant.
Verðfrákr. 18.700 stgr.
Sturtuhurðir, 3 skiptar renni-
hurðir, hert 4 mm öryggisgler,
matt eða þverröndótt, segullæs-
ing, stærðir 76 til 90 cm.
Verðfrákr. 16.200 stgr.
WC með stút í gólf eða vegg, hörð seta fylgir. Verð frá kr. I 1.450 stgr.
Sturtubotnar í stærðum frá 70 til 90
cm á kant. Emilerað stál.
Verð frá 2.990,- stgr.
Hanndlaugar á vegg, nokkrar
stærðir og gerðir.
Verð frá kr. 2.630 stgr.
Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin) • Sími 588 7332
Sturtubotnar, rúnnaðir. 80 til 90 cm á kant
Akrflplast eða emilerað stál.
Verð frá kr. 7.660 stgr.
oP'Ð' A 9-1®
,ánU«H°í\ó-\*