Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 26
26
unUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 JjV
" sumarmyndasamkeppnin
Pessa skemmtilegu mynd af grænlenskri konu í Kulusuk tók Hans Þor-
steinsson.
Þessi mynd, sem mætti kalia Góöar vinkonur, var tekin af Ásdísi Ársæls.
Sumarmyndasamkeppni DV:
Glæsileg verðlaun fyrir bestu myndirnar
Sumarmyndasamkeppni
DV og Kodakumboðsins er í
: fullum gangi og fjölbreytileg-
ar og skemmtilegar myndir
lesenda streyma inn. Haldið
verður áfram að taka við
myndum fram á haust og því
er tilvalið að festa á filmu
ýmislegt sem fyrir augu ber á
ferðalaginu um landið.
Stórglæsileg verðlaun eru í
boði fyrir bestu myndimar.
Fyrstu verðlaun eru ferða-
vinningur fyrir tvo með Flug-
leiðum til Flórída. Önnur
verðlaun era Canon EOS 500
myndavél með 35 mm linsum
að verðmæti 45.900 krónur.
Þriðju verðlaun eru Canon
Prima Super 28 V myndavél
að verðmæti 33.900 krónur.
Fjórðu verðlaun eru Canon
Prima Zoom Shot myndavél
að verðmæti 16.900 krónur.
Fimmtu verðlaun eru Canon
Prima AF-7 að verðmæti 8.900
krónur og sjöttu verðlaun eru
Canon Prima Junior DX að
verðmæti 5.990 krónur.
í dómnefnd sumarmynda-
samkeppninnar eru Gunnar
V. Andrésson og Brynjar
Gauti Sveinsson, Ijósmyndar-
ar á DV, og Halldór Sighvats-
son frá Kodakumboðinu.
Frestur til að skila inn
myndum rennur ekki út fyrr
en í lok ágúst. Áhugaverðar
myndir verðar birtar reglu-
lega í helgarblaði DV fram á
haust og taka þær þátt í úr-
slitum. Æskilegt er að
sendendur merki myndir sín-
ar með nafni og heimilisfangi
og segi stuttlega frá myndefn-
inu. Senda má fleiri en eina
mynd.
Utanáskriftin er:
Skemmtilegasta
sumarmyndin
DV, Þverholti 11.
105 Reykjavík.
Trausti Tryggvason tók þessa Ijósmynd á Spáni af götudúfum í Sevilla.
Þessa sérstæöu mynd af andliti í baöi tók Ósk Davíösdóttir.
Gíslína Ágústsdóttir, sem tók þessa mynd í Ijósaskiptunum, nefnir hana Sólfara.
Tívolí heitir þessi líflega mynd sem tekin var á hafnarbakka í Reykjavík. Myndasmiöur er Hans
Þorsteinsson.