Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Síða 27
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
27
munnmnmm
Sefur undir
hundinum sínum
Söngkonan
Mariah Carey,
sem kölluö hefur
verið hin hvíta
Whitney Hou-
ston, var nýlega
á fyrsta söng-
ferðalagi sínu í
Evrópu. Sex ár
eru liðin síðan
lag hennar, Plötur Mariah Carey
Vision of Love, hafa selsl' meira en
komst efst á vin- 75 m1i,NitTm ein,aka
, , , , um allan heim.
sældalistana 1
poppheiminum. Núna eru umsvifin
í kringum Carey orðin allsæmileg.
Plötur hennar hafa selst í 75 milljón-
um eintaka og af nýjustu plötu
hennar, Daydream, hefur Fantasy
komist inn á flesta vinsældalista.
Hægt er að fá talsverðar upplýs-
ingar um Carey á Intemetinu en
söngkonan samþykkir ekki allt sem
stendur um hana þar. Nýlega birti
tímarit viðtal við Carey sem tekið
var af Intemetinu. Viðtalið var hins
vegar falsað, að því er Carey heldur
fram i viðtali við Extra Bladet í Dan-
mörku. Hún segist annars vera illa
að sér í tölvumálum.
Söngkonan á þrjá ketti og þrjá
hunda, þar af tvo af tegundinni do-
bermann pinscher. Að sögn Carey er
annar þeirra villtur og hafa margir
ráðlagt henni að losa sig við hann.
„En ég get það ekki því ég er sú eina
sem skilur hann. Hann er vanur að
sofa ofan á mér því hann fékk að
gera það þegar hann var hvolpur.
Þetta er svolítið erfítt núna þegar
hann er orðinn stór.“ Að sögn Carey
er eiginmaður hennar, Tommy Mot-
tola, lítt hrifinn af hundinum.
q\it milli hlrrilfc
V.
X
Smáauglýsingar
brosað
ACompAirHOiman
Loftpressur
og fylgihlutir
Skútuvogi 12, s. 581 2530
Getur loksins
Bandaríska stúlkan Chelsey
Thomas, átta ára, hefur átt undar-
lega ævi á mælikvarða flestra því að
hún fæddist með sjaldgæfan galla
sem gerir það að verkum að hún
getur hvorki brosað né hlegið, hvað
þá sýnt tilfinningar sínar á annan
hátt, og svo á hún erfltt um mál.
Chelsey hefur nú gengist undir
nokkrar aðgerðir sem gera henni
nú kleift að brosa.
Þegar Chelsey fæddist átti hún í
erfiðleikum með að andardrátt og
sjúga hrjóst eða drekka úr pela og
varð næstum hungurmorða því að
læknamir skildu ekkert hvað gekk
að baminu. Hún var nokkmm sinn-
um flutt á sjúkrahús í snarhasti og
vakin til lífsins og fékk svo næringu
gegnum slöngu.
Læknarnir uppgötvuðu smám
saman að Chelsey vantaði vöðva í
andlit, hún átti í erflðleikum með að
hreyfa augun auk þess sem hendi
hennar var vansköpuð og fingumir
fastir saman. Þegar Chelsey var
tveggja ára tilkynntu læknamir að
hún myndi aldrei getað talað. Þess-
ir spádómar hafa þó ekki ræst.
Chelsey var send til talmeina-
fræðings, sem kenndi henni að tala
neðan úr hálsinum, og hún lýsti því
yflr við foreldra sína eitt sinn er
hún var að horfa í spegil að mest af
öllu langaði sig til að geta brosað og
hlegið. Það skipti sig engu þó hún
yrði að gangast undir flóknar og
áhættusamar skurðaðgerðir.
Árið 1994 hittu foreldrar Chelsey
skurðlækninn í fyrsta skipti þar
sem hann útskýrði aðgerðimar fyr-
ir fjölskyldunni þar sem hún fékk
nýjan vöðva. Aðgerðirnar urðu að
vera mjög nákvæmlega unnar, hver
taug varð að vera rétt tengd og
hvert saumspor á réttum stað til að
aðgerðin heppnaðist. Chelsey hefur
gengist undir nokkrar skurðaðgerð-
ir síðustu árin og átt í erfiðri
sjúkrahússlegu en náð bata hægt og
sígandi.
Chelsey hefúr þó náð því stigi
núna að geta brosað en á enn langt
í land með að geta sýnt tilfinningar
sínar og kátínu með virkilega
breiðu brosi.
Chelsey Thomas fæddist meö galla sem geröi þaö aö verkum að hún gat
ekki brosað. Hún hefur nú gengist undir nokkrar skuröaðgeröir og getur nú
loksins brosaö veiku brosi.
HVAÐ
inDEPEDDEDCE 0 A V
„...einfaldlega of stórkostleg og heillandi skemmtun
til að þú megir missa af henni.“
A.I.MBL.21.JÚLÍ