Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Síða 31
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
Fjölskylda á kafi í íþróttum:
Þetta er algjört brjálæði stundum
- segir Guðmundur Karlsson, sleggjukastari og þjálfari
KAPELLUBRAUN!
SÖNNUÖA
KL
U
b
Þaö getur stundum veriö erilsamt hjá þeim Guðmundi og Björgu.
„Það er ekkert óeðlilegt við það
að við veljum okkur félaga úr sport-
inu þvi við erum bæði „sportidí-
ótar“. Mesti tíminn fer í að vera á
æfíngum þannig að maður hittir
frekar fólk í íþróttunum,“ segir
Guðmundur Karlsson, íslandsmet-
hafi í sleggjukasti.
Hjónin Guðmundur Karlsson, ís-
landsmethafi í sleggjukasti og ís-
lands- og bikarmeistari meira og
minna síðustu tíu árin, og Björg
Gilsdóttir handboltakona hafa ekki
setið auðum höndum um ævina.
Þau hafa bæði verið á kafi í íþrótt-
um frá barnæsku og kynntust fyrir
fimmtán árum þegar bæði æfðu
handbolta með FH. Þau eru nú 32 og
33 ára, giftu sig fyrir þrettán árum
og eiga þrjár dætur, tólf, sjö og fjög-
urra ára gamlar, Ragnheiði Rósu,
Arnheiði og Heiðdísi Rún.
Guðmundur hefur æft handbolta
og fótbolta með FH upp í meistara-
flokk á báðum sviðum. Hann æfði
einnig frjálsar íþróttir frá þrettán
ára aldri og hefur einnig átt íslands-
met í kúlu, kringlu og spjóti. Sleggj-
an er seinni tíma mál hjá Guð-
mundi en hann þjálfar meistara-
flokk karla á Selfossi í handbolta og
rekur sportvöruverslun í Hafnar-
firði. Það gefur auga leið að oft hlýt-
ur fjölskyldan að þurfa á góðum
skipulagshæfileikum að halda þar
sem Björg hefur æft handbolta með
FH í mörg ár og meðal annars orðið
íslandsmeistari með liðinu. Björg
hefur þó að mestu leyti verið heima-
vinnandi síðan stelpumar fæddust
og segir það létta sér að komast á
æfingarnar.
Björg hefur æft handbolta frá níu
ára aldri og hefur æft stöðugt nema
rétt á meðan hún eignaðist börnin.
Hún byrjaði þó að æfa yfirleitt fjór-
um til sex vikum eftir barnsburð.
Björg var valin besti leikmaður árs-
ins 1999-1991, þá orðin tveggja
barna móðir.
sjö ára dóttirin, er einnig farin að
æfa. Stúlkurnar drekka handbolt-
ann í sig með móðurmjólkinni.
„Þetta er bara brjálæði stundum
því það er svo mikið að gera hjá
okkur. Elsta stúlkan okkar hefur
verið mjög almennileg og aðstoðar
okkur við að passa hinar tvær.
Reyndar eru þær öllu vanar því þeg-
ar við vorum í Þýskalandi spilaði
konan og ég þjálfaði. Ragnheiður
Rósa lá á maganum á mér í maga-
belti á meðan. Stelpurnar eru líka
orðnar vanar að fara með mömmu
sinni á æfingar. Það er engin leið
fyrir þær að komast hjá því að
verða íþróttakonur. Þetta heimili
snýst um sport því það er ekkert
annað sem kemur til greina. Við
höfum samt ekkert á móti því þó
þær geri eitthvað annað,“ segir
Guðmundur.
Reyndi að
drífa á markið
Tilviljun að
sleggjan var valin
„Ég byrjaði að kasta sleggju þeg-
ar ég var hættur öllum öðrum kast-
greinum. Það var meira tilviljun. Ég
eyðilagði á mér olnbogann og byrj-
aði að prófa þetta af forvitni. Ég var
of gamall til þess að geta keppt á
heimsklassa en gat náð ágætum ár-
angri á íslandi. Það er að vísu ekki
útséð á hvað ég stefni. Ég datt
reyndar út vegna meiðsla í sumar.
Ég er ekki búinn að ákveða hvort
ég byrja að æfa aftur því ég
hef ekki mjög mikinn
tíma,“ segir
Guðmund-
Fór í eróbikk
„Ég kann eiginlega ekki að hætta
að spila handbolta, ég prófaði það í
vetur og fór í eróbikk. Þá fór ég fjór-
um til fimm sinnum í viku því ég
þekki ekkert annað en vinna svona
mikið. Það var að sumu leyti mjög
þægilegt þegar ég var ekki að æfa
því þá var hægt að hafa heitan mat
á kvöldin. Ef ég
væri að vinna
frá átta til
fimm og
Guðmund-
ur líka ætt-
um við
erfitt með
að réttlæta
þetta. Ég er
alltaf
ur
Björg
segir
Björg bætir við að Ragnheiður
Rósa hafi einstaka boltatækni. Hún
sé yfirburðamanneskja í sínum
flokki. Hún var í burðarrúmi og
kom með á æfingar. Hún skaut á
mark þegar hún var tveggja eða
þriggja ára á æfingunum. Liðið beið
á meðan hún reyndi að drífa á
markið en hitti að sjálfsögðu ekki
því hún var of lítil. Hún var eina
barnið og ekkert því til fyrirstöðu
að hún væri með.
Hjónin eru sannfærð um að
íþróttir séu mjög uppbyggilegar og
góðar fyrir unglinga því það haldi
þeim frá rugli. Einn af kostunum
segir Björg vera að hún viti alltaf
nákvæmlega hvar elstu dóttur sína
sé að finna því hún umgangist aðal-
lega félaga úr handboltanum.
„Okkur hefur alltaf tekist að sigla
á milli skers og báru og ef erfitt var
að púsla saman einhverju leystum
við málin. Við eigum svo góða að.
Ragnheiður Rósa er svo vel upp alin
og hún stendur sig vel,“ segir Guð-
mundur.
Guðmundur og Björg ásamt dætrunum Ragnheiöi Rósu, Arnheiði og Heiödísi Rún.
DV-myndir JAK
ann hafa verið mikinn þegar hún
var að byrja að spila handbolta.
Stelpumar sem æfa í dag sleppa úr
æfingum ef þær ætla á skólaball.
Það kom aldrei til þegar Björg var
yngri. Þá mættu stelpurnar með
blautt hárið og íþróttatöskuna á
skólaböllin. Björg tók sér í fyrsta
sinn frí í vetur en ætlar að byrja á
fullu að æfa handboltann í haust.
þjálfunar og segist hafa ágætan
grunn og gæti í raun og veru einnig
tekið að sér þjálfun í frjálsum
íþróttum en hann lauk prófi frá
íþróttaháskóla í Köln. Á meðan
Guðmundur var við nám æfði Björg
handbolta með liði sem Guðmundur
þjálfaði. Hún saknaði handboltans
þegar hún tók sér frí. Það hefur þó
oft verið mikið að gera hjá fjölskyld-
unrii og stelpurnar eru orðnar al-
vanar að fara á æfingar með
mömmu sinni.
Elsta stúlkan, Ragnheiður Rósa,
æfir handbolta og er að sögn for-
eldranna mjög efnileg. Arnheiður,
heima á morgnana og þegar þær
koma úr skóla og leikskóla. Ég tek
þær líka oft með mér á æfingar. Ég
er mjög mikið með þeim þannig að
það breytir engu þó ég fari í tvo
tíma á kvöldin. Stelpunum finnst oft
gaman á æfingum með mér en fer
að líða að vori eru þær orðnar
þreyttar á því. Ég tek þær ekki með
þegar ég fer að keppa því þá vil ég
vera í friði. Ég ætla að byrja að æfa
á fullu í haust," segir Björg.
I poka á maganum
Guðmundur er menntaður á sviði
Shell
Rally-Cross