Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚS'l' 1996
Woody Harrelson gerir það gott í Hollywood:
„Ég var nokkuð hissa þegar Oli-
ver Stone kallaði mig á sinn fund og
bað mig að fara með aðalhlutverkið
í Natural Born Killers á móti Juli-
ette Lewis. Það fyrsta sem ég sagði
þegar ég kom heim til hans var: Af
hverju ég? Hann svaraði að bragði:
Af því að ég sé ofbeldi í þér,“ sagði
hinn 34 ára gamli Woody Harrelson
eða Woody í Staupasteini, eins og
margir þekkja hann.
Woody nýtur nú vaxandi vin-
sælda sem leikari eftir fljúgandi
start í Staupasteini þar sem hann
fór með hlutverk hins heimska bar-
þjóns, Woody Boyd. Leikur hann að-
alhlutverkið í Kingpin, sem Sam-
bíóin frumsýna um þessa helgi.
Hans fyrsta alvöruhlutverk var í
svipuðum stíl er hann lék í mynd-
inni Doc Hollywood. Það var svo
ekki fyrr en í myndinni White Men
Can’t Jump sem hann sýndi hvað í
honum bjó. Nú hefur hann jafnvel
skotið Ted Danson ref fyrir rass og
er mun eftirsóttari á hvíta tjaldinu
en hann. Sagt er að hann fái 3 millj-
ónir Bandaríkjadala (195 milljónir
ísl. króna) eða meira fyrir hverja
mynd sem hann leikur í.
Ekki áhyggjur af ímynd
„Woody hefur aldrei áhyggjur af
því að tapa niður einhverri ímynd.
Hann einfaldlega gerir það sem gera
þarf. Hann hefur ekki minnstu
áhyggjur af því hvort áhorfendum
komi til með að líka við hann í ein-
hverju hlutverki. Hann er alveg
laus við það,“ sagði James L.
Brooks sem leikstýrði honum í
einni myndinni.
Innsæi Olivers Stones varð tU
þess að Woody lék sitt besta hlut-
verk til þessa í myndinni Natural
Born KiUers. Þar leikur hann fjöl-
miðlasjúkan fjöldamorðingja og fer
á kostum. E.t.v. tók Oliver sénsinn á
því að Woody hefði erft eitthvað af
skapferli föður síns en hann var
fangelsaður þegar Woody var sjö
ára gamaU fyrir að hafa banað
manni gegn greiðslu.
Faðir hans morðingi
Woody ólst upp í Midland i Texas
og var hið ofvirka miðjubarn en
hann átti einn eldri bróður og einn
yngri. Tíu árum eftir að faðir hans
banaði manni gegn greiðslu var
hann fangelsaður á ný, og nú tU
frambúðar, fyrir að hafa banað
dómara í Texas. Synir hans vissu
ekki betur en hann hefði bara farið
að heiman en eftir þetta flutti móð-
ir þeirra með bræðurna til Ohio.
Það var þar, í bókasafni skólans,
sem framtíð leikarans var ráðin.
Ferillinn ráðinn
Woody hafði náð góðum tökum á
því aö herma eftir Elvis og dag einn
í kennslustofunni hvöttu vinir hans
hann til þess að herma eftir Elvis og
sýna hinum í bekknum. Eftir nokk-
ur mótmæli lét hanr. sig hafa það,
Sam-bíóin:
Tveir skrýtnir
og einn verri
Tveir skrýtnir og einn verri (Kingpin) er gamanmynd í farsastíl. Aðal-
persónan er Roy Munson sem Woody Harrelson leikur. Hann þótti á árum
áður bestur allra keUuspilara og var ófeiminn við að svindla á öðrum tU
að halda sér á toppnum. En það kom að því að hann var tekinn í landhelgi
og gerður útlægur úr keUukeppni. Sá sem fór svona Ula með hann var að-
alkeppinauturinn, Emie McCracken (BUl Murray).
Sautján árum síðar er Munson orðin samnefnari fyrir alla þá sem geng-
ur illa í keUunni og vinnur hann fyrir sér sem sölumaður og að sjálfsögðu
selur hann keUubolta. Eitt sinn þegar hann er á söluferðalagi rekst hann
á Ishmael (Randy Quaid) sem býr meðal Amish-fólksins í Pennsylvaniu. Is-
hmael er undramaður í keUu og Munson tekur hann að sér. Nú er stund
hefndarinnar runnin upp. Þeir félagar ferðast nú saman þvert yfir Banda-
ríkin og eins og vænta má verður sú ferö hin kostulegasta.
Auk þeirra Woody Harrelsons, BUls Murrays og Randys Quaids leikur í
myndinni Vanessa Angel. Leikur hún stúlku sem þeir félagar taka upp í á
leiðinni tU Reno. Sú kann ýmislegt fyrir sér sem ekki þolir dagsins ljós.
Þeir sem gera Kingpin em þeir sömu og gerðu Dumb and Dumber. Pet-
er FareUy var í leikstjórasætinu og bróðir hans, Bobby, var framleiðandi.
Nú eru þeir báðir skrifaðir sem leikstjórar. Þeir bræður hafa starfað sam-
an lengi og skrifað í sameiningu fimmtán handrit. Þá hafa þeir einnig
skrifað fyrir hinn vinsæla sjónvarpsþátt, Seinfeld. Bræðurnir ólust upp á
Rhode Island og lauk Peter námi í bókmenntum frá Columbia háskólan-
um. Hann hefur skrifað eina skáldsögu, Outside Providence, og er aö
vinna að nýrri bók sem á að heita Danke Doheny.
Þeir bræður voru búnir að strögla lengi áður en árangurinn kom með
Dumb and Dumber sem var ein vinsælasta kvikmynd ársins 1994. Þeir
höfðu úr mörgu að velja en ákváðu að slá til með Kingpin en þeir skrifuðu
ekki handritið. Þeir bræður og Woody Harrelson hafa þekkst í tíu ár og á
tímabili leigðu Woody og Peter saman herbergi, því þótti þeim sjálfsagt að
endurnýja kynni sín og starfa saman.
Harrelson segir það hafa verið nýja reynslu fyrir sig aö vinna með
tveimur leikstjórum við sömu mynd en segir samvinnu brærðanna það
mikla að það hafi ekki komiö að sök. Bill Murray segir: „Það er stórkost-
legt að vinna með tveimur leikstjórum. Þegar mér líkaði ekki hvað annar
sagði tók ég ekkert mark á honum og sneri mér að hinum og spurði hvað
ég ætti að gera.“ Þessu svarar Bobby Farrelly: „Þetta er bölvuð vitleysa i
honum, hann fór ekki eftir neinu sem við sögðum honum að gera.“
-HK
stökk upp á borð og söng með til-
þrifum við góðar undirtektir skóla-
félaganna. Fólk klappaði og dillaði
sér í takt við sönginn. „Það var
stelpa þar, þú hefðir átt að sjá hana,
hún hét Robin Rogers. Hún var
langsætust, mjög vinsæl og var á
föstu með einni af íþróttastjömum
skólans. Sú staðreynd að hún skyldi
svo mikið sem tala við mig var stór-
kostleg. Hún gekk til min og sagði
rétt si svona: Þú ættir að leggja leik-
list fyrir þig,“ sagði Woody dreym-
inn á svip. Svo bætti hann við:
„Ætli Robin Rogers gruni hversu
þungt orð hennar vógu.“
Sáttur við aukahlutverk
Margir segjast alltaf vorkenna
karakternum sem Woody leikur á
hvíta tjaldinu, hann sé eitthvað svo
aumkunarverður útlits. Það er þó
erfitt að vorkenna einhverjum sem
þénar 195 milljónir fyrir að leika í
einni kvikmynd. Staöreyndin er sú
að Woody finnst ekkert verra að
vera annar af tveimur aðalleikurum
eða leika sterkt aukahlutverk. „Ég
kunni vel við mig í Staupasteini.
Mér finnst gott að leika mikilvægt
aukahlutverk. Á vissan hátt hef ég
líka gaman af því að vera aðalleik-
arinn en ég vil þó heldur vera á
skjánum u.þ.b. helming tímans sem
myndin er sýnd. Á þann hátt áttu
ekki á hættu að áhorfendur venjist
þér. Þú kemur inn í þriðju hverri
senu og átt þá kost á því að stela
senunni,” sagði Woody.
IKOLABIO
A miðnætti, fínnmtudaginn 15. ágúst
í 5 kvikmyndahúsum samtímis.
FORSALA hafin:
Opft tii kk 22 öíj kvöJd