Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1996, Síða 6
6
útlönd
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 ijV
stuttar fréttir
Finni fagnar
Paavo Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, fagnar áform-
um NATO um að taka sem flest-
1 ar þjóðir inn í friðarsamstarf
I sitt.
Bildt aftur heim
Carl Bildt,
fyrrum for-
sætisráðherra
Svíþjóðar,
hefur í hyggju
að snúa sér
aftur að
sænskum
stjómmálum
I á næsta ári, að sögn blaðsins
| Göteborgs Posten. Bildt hefur að
1 undanfómu verið sáttasemjari í
■ Bosníu.
Mafíufjársjóður
Lögreglan á Sikiley hefur
I grafið upp mikinn fjársjóð gulls
og gersema í eigu mafíuforingj-
ans Salvatores Riinas sem situr
I inni.
Skoskur tígur
Leiðtogi flokks skoskra þjóð-
ernissinna sagði í gær að sjálf-
stætt Skotland gæti orðið efna-
hagstigur Evrópu og vísaði í því
{ sambandi á hagvöxt á írlandi.
Ekki tilbúin í NATO
Eystrasaltslöndin eru ekki til-
búin til að gerast aðilar að Atl-
antshafsbandalaginu, að sögn
Perrys, landvarnaráðherra
Bandaríkjanna.
FFH á leiðinni
Erich von Daeniken, sem er
þekktur fyrir bækur sínar um
heimsóknir geimvera fyrir þús-
undum ára, sagði að stórir fljúg-
andi furðuhlutir væru væntan-
legir til jarðar á næsta áratug.
Níu fórust
Níu manns, þar af fimm börn,
fórast þegar skriður féllu úr
kletti einum í vesturhluta Ástr-
alíu. Hópurinn sem varð fyrir
grjótinu var að horfa á brim-
brettakeppni.
Pakistan viðurkennir
Stjórnvöld i Pakistan voru ein
um aö viðurkenna nýja stjórn
íslamskra uppreisnarmanna
á sem tóku völdin í Afganistan i
I gaer.
Stöndum saman
Alain
Juppé, for-
sætisráð-
herra Frakk-
lands, hvatti
samsteypu-
stjórn sína til
að snúa nú
bökum sam-
I an á sama tíma og upplýst var
að atvinnuleysi væri meira en
I nokkra sinni fyrr.
Ekki talið aftur
Yfirumsjónarmenn kosning-
anna i Bosníu höfnuðu í gær
meðmælum um að atkvæði yrðu
talin aftur. Reuter
Kauphallir erlendis:
Met í Frankfurt
og Hong Kong
Hlutabréfavísitölur í helstu kaup-
höllum heims komust á skrið í vik-
unni og í þremur þeirra voru sögu-
leg met slegin. Dow Jones í New
York fór í 5894 stig sl. mánudag og
núna á fimmtudaginn fuku met í
Frankfurt og Hong Kong.
DAX-30 vísitalan í Frankfurt
skaust í 2666 stig einkum vegna já-
kvæðra afkomufrétta af stóram fyr-
irtækjum og væntinga af markaðn-
um næstu vikur. Hang Seng vísital-
an í Hong Kong fór í 11636 stig á
fimmtudag.
Bensínverð á heimsmarkaði hef-
ur sveiflast upp og niður í vikunni
eftir að ró komst á ástandið í írak.
Verð á kafii og sykri á heims-
markaði hefur hríðlækkað að und-
anfomu vegna offramboðs. -Reuter
Heimsbyggðin hefur áhyggjur af átökum ísraela og Palestínumanna:
Þjóðaleiðtogar
hvetja til friðar
Leiðtogar þjóða heimsins fóru
fram á það við oddvita fsraels og
Palestínumanna í gær að þeir hitt-
ust til að binda enda á blóðbaðið
sem varð vegna fomleifauppgraftar
ísraelsmanna í gamla hverfinu í
Jerúsalem. Sumir embættismenn
létu jafnvel í það skína að þeir ótt-
uöust að styrjöld brytist út.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, sentu nær samhljóða
bréf til Benjamins Netanyahus, for-
sætisráðherra ísraels, og Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna,
þar sem þeir voru hvattir til að
reyna að stilla til friðar á Vestur-
bakkanum og Gaza.
Bandarísk stjórnvöld sögðu ísra-
elum og Palestínumönnum að of-
beldinu yrði að linna. Bill Clinton
forseti kom sér hjá því að fordæma
ísraelsmenn beint út en hvatti
deiluaðila til að stöðva ofbeldið og
„forðast óþarfa ögrandi aðgerðir".
Heimildarmenn meðal stjómarer-
indreka sögðu að Netanyahu hefði
hafnað beiðni Warrens Christoph-
ers, utanrikisráðherra Bandaríkj-
cmna, um að loka umdeildu jarð-
göngunum nærri Al-Aqsa mosk-
unni, einu helgasta véi múslíma,
sem urðu kveikjan að verstu bar-
dögum milli Palestínumanna og
fsraela frá því friðarsamningarnir
voru gerðir árið 1993.
ísraelskar hersveitir drápu þrjá
Palestínumenn og særðu fimmtíu
við moskuna í gær, á þriðja degi
óeirðanna.
Á Vesturbakkanum og Gaza var
skotið úr byssum og grjóti kastað,
þrátt fyrir að palestínska lögreglan
reyndi að hafa hemil á mótmælend-
um og ísraelsmenn væru með skrið-
dreka og aukinn liðsafla.
-Reuter
mwi
ísraelskir hermenn taka sér stöðu í átökunum við palestínska mótmælendur á Vesturbakkanum í gær. Tugir manna
hafa fallið í átökum síðustu daga. Símamynd Reuter
Fjórar þýskar stúlkur struku að heiman:
Voru orðnar hundleiðar á
tiltektinni og skólanum
Fjórar þýskar stúlkur, sem ákaft
hafði verið leitað að eftir að þær
hurfu að heiman, sögðu lögreglu í
gær að þær hefðu beðið karlmann
um að aka sér á brott þar sem þær
hefðu verið orðnar leiðar á að taka
til og fara í skólann.
Stúlkurnar hurfu síðastliðinn mið-
vikudag, aðeins tæpri viku eftir að
sjö ára stúlku var misþyrmt kynferð-
islega og hún síðan myrt í þorpi einu
í Bæjaralandi. Óttast var að bama-
níðingar hefðu rænt stúlkunum.
Rúmlega eitt hundrað lögreglu-
þjónar, bæði í Þýskalandi og Holl-
andi, leituðu stúlknanna og höfðu
þyrlur sér til aðstoðar. Hollenska
lögreglan hafði síðan upp á þeim í
bænum Oostburg í gær og handtók
45 ára gamlan Þjóðverja vegna
grans um að hann hefði numið þær
á brott.
En stúlkumar, tólf ára tvíburar
og vinkonur þeima, tíu og ellefu
ára, sögðu rannsóknarlögreglu-
manni að þær hefðu beðið manninn
um að fara með sig í burtu af því að
þær voru orðnar hundleiðar á til-
tekt og skólagöngu.
Lögregla fann klámblöð og nektar-
myndir af börnum í hjólhýsi manns-
ins nærri Köln. Maðurinn, sem eitt
sinn bjó með móður tvíburanna,
sætti rannsókn árið 1994 vegna
gruns um kynmök við böm en hann
var ekki ákærður. -Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
Dow Jones
560cjr'
1
5400
5868,85
J J A S
200
\yv-/
150 $/t
216
J J A S
11600m Hang Seng [J
11200 y
losocí/
11636,13
j J A S
=rmi=!
Rússar meta
hreinskilni
Jeltsíns mikils
Flestir
Rússar styðja
þá ákvörðun
Borísar
j| Jeltsíns for-
seta að segja
hreinskilnis-
lega frá
' heilsufari sinu
og viðurkenna að hann þurfi að
gangast undir hjartaaðgerð.
[Skoðanakönnun sem virt stofn-
un á þvi sviði stóð fyrir leiddi í
Ijós að 60 prósent kjósenda báru
lof á ákvörðun Jeltsíns en sautján
prósent voru henni ekki fylgj-
1 andi. Aðrir höfðu ekki afgerandi
skoðun á málinu eða stóð á sama,
Iað sögn Interfax fréttastofunnar.
Áformað er að gera aðgerðina á
Jeltsin eftir sex til tíu vikur.
Ofbeldisglæpir á
uppleið í Eng-
landi og Wales
Glæpum hefur fjölgað í
Englandi og Wales í fyrsta sinn í
I tvö ár og er mesta aukningin í of-
I beldisglæpum eins og líkams-
Íárásum og nauðgunum. Innan-
ríkisráðuneytið segir að glæpum
hafi í heild fjölgað um 0,4 prósent
á tólf mánaða tímabili sem lauk í
júní í sumar. Ofbeldisglæpum
fjölgaði um tíu prósent.
Á næsta tólf mánaða tímabili á
undan fækkaði glæpum hins veg-
ar um fimm prósent og fimm og
hálft prósent þar á undan.
Næsta víst þykir að þessi tíð-
indi muni koma ríkisstjórn
Johns Majors illa en stjórnmála-
menn hafa mjög verið uppteknir
af baráttunni gegn glæpum að
undanförnu og ætla má að hún
verði ofarlega í huga kjósenda
f þegar kosið verður til þings á
jnæsta ári.
Danir ekki fylgj-
andi sameigin-
legri mynt ESB
DV, Kaupmannahöfn:
Riflega 62 prósent dönsku
i þjóðarinnar vilja halda því til
streitu að taka ekki þátt í sam-
| eiginlegri mynt Evrópusam-
bandsins. Þetta kemur fram í
nýrri Sonar-könnun fyrir
Jyllands-Posten. Niðurstaðan
j kemur nokkuð á óvart en að und-
jj anfómu hafa þekktir stjórnmála-
; menn eins og Uffe Ellemann-Jen-
sen og Ritt Bjerregaard barist
fyrir þátttöku Dana og nýrri
þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Margir telja að sfjórnmála-
menn hafi svikið kjósendur þeg-
ar við efndum til nýrrar þjóðar-
Iatkvæðagreiðslu árið eftir hið
fræga „nei“ 1992,“ segir efna-
hagsmálaráðherrann Marianne
Jelved og segir könnunina sýna
klárt að málið sé ekki á dagskrá
í bráð. Danir hafi i engu breytt
afstöðu sinni frá síðustu þjóðar-
atkvæðagreiðslu. -pj
Fyrrum njósnari
sver af sér
morðið á Palme
Craig Willi-
; amson, fyrr-
um njósnari
kynþáttaað-
skilnaðar-
stjómarinnar
í Suður-Afr-
íku, vísaði í
gær á bug
fúllyrðingum fyrram félaga síns
um að hann hefði lagt á ráðin um
morðið á Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, árið 1986.
„Þetta er algjör klikkun. Það
er nóg að svara til saka fyrir það
sem við gerðum en þetta er fá-
ránlegt. Það var talað um þetta í
I sænsku blaði fyrir sex árum en
| ég neitaði því þá og geri enn,“
i sagði Williamson. -Reuter