Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1996, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1996, Síða 31
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 fréttir39 Fátt hefur meira verið talað um síðustu daga en úrslitaleikinn á íslandsmótinu í knattspyrnu á milli Akraness og KR á Akranesi á morgun, sunnudag. Spennan um titilinn hefur ekki verið jafn mikil í háa herrans tíð og þarf fara allar götur til árs- ins 1972 til finna hlið- stæðan leik sem sker úr um hvaða lið hreppi íslandsmeist- aratitilinn í knatt- spymu 1996. Að vísu háttar málum svolítið öðruvísi nú en fyrir 24 árum. Leikurinn á Akra- nesi er ekki bara eina viðureignin sem skipt- ir máli heldur er sama uppi á teningnum i öll- um hinum fjórum leikjum síðustu um- ferðar mótsins. Staðan er nefhilega sú að fjög- ur lið gera allt það sem í valdi þeirra stendur til að forðast fall í 2. deild. í dag, laugar- dag, kemur í ljós hvaða lið halda sér áfram í 1. deild en tvö þeirra af ijórum, sem heyja baráttuna um áframhaldandi veru í 1. deild, þurfa að lok- um að bíta í það súra epli að falla niður um deild. Helgin er engu lík í knattspym- unni og það hefur liklega fáa órað fyrir því að úrslit myndu ekki ráð- ast á toppi og botni deildarinnar fyrr en í lokaumferðinni. Spennan er jú það sem allir sækjast eftir og hana vantar ekki að þessu sinni. Það er óhætt að segja að tímabil knattspymumanna þetta árið kveðji með miklum hamagangi. Ekki geta ailir sigrað þótt það sé markmiðið hjá öllum sem taka þátt í íþróttum af einhverri alvöru. Þegar helgin er að baki verður ljóst að sumir gráta af gleði en aðrir gráta yfir ósigrinum. Akurnesingar og KR-ingar hafa fylgt hvorir öðram eins og skugginn frá því að boltinn fór að rúlla sl. vor eins og glöggt kemur fram í grafinu hér til hliðar. Menn minnast varla eins mikillar spennu í gegnum tíð- Slagurinn um 1. sætið ma. í upphafi mótsins var það tilfínn- ing knattspyrnuáhugamanna að þessi félög myndu að öllum líkind- um herjast um titilinn. Það hefur orðið reyndin og ætti að koma fæst- um óvart þegar mannskapurinn, sem þessi lið húa yfir, er skoðaður. I liðunum báðum er að finna marga af hestu knattspymumönnum lands- ins. Eins og allar vita hafa Skaga- menn hin síðustu ár borið ægis- hjálm yfír önnur lið en því til stað- festingar hefur liðið unnið íslands- meistaratitlinn fjögur ár í röð. Er 28 ára bið KR-inga loks á enda runnin? KR-ingar hafa á hinn bóginn ekki unnið titilinn í 28 ár. Mönnum þar á bæ finnst því svo sannarlega Fréttaljós Jón Kristján Sigurifsson vera kominn tími til að bikarinn eft- irsótti fái að verma eina hilluna í bikarsafni félagsins næsta árið vest- ur í Frostaskjóli. KR-ingar hafa síð- ustu ár lagt grunninn að stöðu sinni í islenskri knattspyrnu sem hún er í dag. Starfið í yngri flokkunum hef- ur verið öflugt og yngri og óreyndir leikmenn hafa í auknum mæli öðlast meiri reynslu í meistara- flokki. Enn fremur hafa leikmenn verið fengnir annars staðar frá til að styrkja liðið eftir bestu getu. Lúkas Kostic var ráðinn þjálfari fyr- ir yfirstandandi tímabil og hefur hann haldið liðinu á sömu braut og fyrirrennari hans, Guðjón Þórðar- son, sem nú er við stjórnvölinn uppi á Skaga. KR-ingar hafa unnið sigur í Mjólkurbikarnum tvö ár í röð en herslumuninn hefur vantað á ís- landsmótinu. Áhangendur KR bíða eflaust allir með öndina í hálsinum eftir stóra deginum á Akranesi á sunnudag. Liðin tvö standa svo til hnífjöfn upp á kommu ef svo er hægt að komast að orði. Það sem skilur þau að er markamunurinn þar sem KR-ingar hafa vinninginn sem nemur einu marki. Jafnara get- ur þetta varla verið. Guðjón Þórðarson hefur náð frá- bærum árangri á ferli sínum sem þjálfari. Glæsileg þjálf- arasaga hans hófst á Ak- ureyri þegar hann stýrði KA-mönnum til sigurs á fslandsmótinu 1989. Fannst mörgum það kraftaverk en sýndi svo ekki var um villst að hér fór þjálfari sem kunni sitt fag. Þetta var aðeins byrjunin og framhaldið þekkja allir sem fylgst hafa með íslenskri knatt- spymu síðan. Það hefur verið Guðjóni til tekna að efniðviðurinn, sem hann hefur úr að spila á Skaganum, er að mestu byggður upp á heima- mönnum. Þegar Akranes kemur upp i hugann hjá fólki er knattspyrnan umsvifa- laust tengd við bæinn. Sumir hafa gengið svo langt að segja að á Akra- nesi vaxi knattspymu- menn á trjánum og þeg- ar sú líking er skoðuð nánar er sannleikskom í henni. Ofan af Skagan- um hafa komið fram í sviðsljósið frábærir knattspyrnumenn svo það er engin furða að ÍA- liðið hafi verið í fremstu röð eins og raun ber vit- ini. Eftirvænting fyrir úr- slitaleiknum er ekki síð- ur á meðal leikmanna. Taugaspennan hlýtur að stigmagnast eftir sem nær dregur leiknum. Draumur knattspyrnuáhugamanna að sjá hreinan úrslitaleik á íslands- mótinu hefur verið uppfylltur. Hvernig svo sem lyktir leiksins verða verður þessi atburður ávaUt ofarlega í minningunni. Það er því von allra að fram fari drengilegur leikur þar sem markmið beggja liða verður sama. Liðin er svo áþekk að getu að ómögulegt er að spá fyrir um úrslitin. Tölfræði liðanna i um- ferðunum á undan er áþekk þegar hún er skoðuð. KR-ingar hafa skorað flest sín mörk frá 46.- 60. mínútu en Skaga- menn frá 61.-75. mínútu. Ríkharður Daðason er markahæstur KR-inga í deildinni með 13 mörk og Bjarni Guðjónsson hefur skorað 11 mörk fyrir ÍA. Á morgun er öruggt að hjörtu áhangenda eiga eftir að slá hraðar en þau gera dagsdaglega. * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Fyrirtæki - skólar - stofnanir - félagasamtök - klúbbar - starfsmannafélög Upplýsingar og pantanir alla virka daga og laugardaga ísíma: 557-9119 GSM: 898-3019 Upplýsingar: Miðlun - Gula línan: 562-6262 Einnig uppl. á Internetinu: http://www.midlun.is/gula/ Ferdadiskotekið-Rocky Takið eftir Ferðadiskótekið Rocky er tekið til starfa á ný með nýjum, vönduðum og glæsilegum hljómtækjum sem ætluð eru til nota fyrir skemmtanahald í samkomuhúsum og í veislu, og veitingasölum fyrir: árshátfðir, einkasamkvæmi, þorrablót, skólaböll, sveitaböll, afmælis- og brúðkaupsveislur, starfsmannafagnaði og alia almenna dansleiki. í boði er mikið úrval af fjölbreyttri danstónlis íslenskri og erlendri, fyrir alla aldurshópa. ATH. Sjá smáauglýsingar DV mánud., fimmtud. og laugard. í dálknum Skemmtanir og upplýsingar hjá Gulu línunni. nzzzmzzzzzzi DISKÓTEKARC Grétar LaufdaI FERÐADISKOTEKIÐ - ROCKY R ^ MÉUÉUÉUlUMMÉUfeyðke * ■K * * * ■K ■K ■K ■K ■K ■K ■K ■K * ■K ■K •K * ■K ■K * ■K ■K ■K ■K ■K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.