Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
47
Varnir gegn sjúkdómum á ferðalagi:
..»
Aldrei of varlega farið
Eftir því sem tækninni fleygir
fram minnka vegalengdir í veröld-
inni og ferðamenn fara í auknum
mæli til fjarlægra staða í heimin-
um. Fyrir fáeinum áratugum þótti
það töluvert ævintýri að komast í
ferð til Evrópu eða jafnvel Banda-
ríkjanna en nú er öldin önnur.
Ferðalög til V-Evrópulanda þykja
í dag ekki neitt tiltökumál og varla
umstalsverð. Ferðcimenn sækja í æ
ríkari mæli á fjarlægar slóðir og
vilja endilega kynnast framandlegu
umhverfí. Það er ágætt svo langt
sem það nær en lengri ferðalögum
fylgir meiri áhætta. Meiri líkur eru
á að ferðamaðurinn smitist af ein-
hverjum kvillum sem oft eru land-
lægir í þeim löndum sem heimsótt
eru.
Tölfræði
Með góðum öryggisráðstöfunum
er hægt að draga verulega úr líkum
á hvers konar smiti en þó verður
aldrei fullkomlega komið í veg fyrir
áhættuna. Alþjóðlegu samtökin
„International Society of Travel
Medicine" hafa gert kannanir á
tíðni slíkra tilfella.
Rannsóknir þeirra benda til þess
að ef tekið er slembiúrtak 100.000
ferðamanna sem bregða sér í viku-
langt ferðalag þá muni helmingur
þess hóps fá einhver einkenni sjúk-
leika í ferðinni eða á næstu dögum
á eftir. Um 8000 þeirra verða að leita
læknishjálpar, 5000 leggjast í rúmið
í ferðinni, 1100 verða algerlega
hjálparlausir um stund, 300 leggjast
á spítala, 50 þeirra verða fluttir
heim með flugi vegna veikindanna
og einn mun láta lífíð vegna veik-
inda. Þessar tölur verða þeim mun
hærri sem fjær er farið heimahög-
Það er hin skæða moskítófluga sem ber malaríu á milli manna. A rtiinni
myndinni er smásjármynd af berklabakeríunni.
nokkru eftir að flugi lýkur, sérstak-
lega ef flugið tekur langan tíma.
Flugfélög reyna yfirleitt að líkja eft-
ir súrefnisumhverfi sem búast má
við í 2000 metra hæð yfir sjávarmáli
og rakastiginu er einnig stjómað.
Notaðar em síur til að koma í veg
fýrir bakteríur.
Hins vegar svíkjast mörg flugfé-
lög, sérstaklega þróunarlanda, um
að skipta um síur og hafa önnur ör-
yggismál í lágmarki. Vegna þess er
loftið í mörginn flugvélum mjög
þurrt og í sumum tilfelliun alger
gróðrarstia fýrir bakteríiu-. Reyk-
ingar um borð og alkóhólneysla
gera menn enn viðkvæmari fýrir
bakteríum.
Ferðalög til fjarlægra landa eins og
Afríku auka mjög hættuna á smiti af
ýmiss konar sjúkdómum.
unum.
Mörgum nægir einfaldlega að
fara um borð í flugvél til að veikj-
ast. Algengt er að fá kvef eða flensu
SAS til
Litháens
SAS hóf flug frá
Stokkhólmi til Vilníus
í Litháen þrisvar
sinnum i viku í lok
októher. Flogið verður
á mánudögum, mið-
vikudögum og fostu-
dögum.
Ef fara skal til
Ástralíu
- er orðiö óþarfi að eyða mörgum
dögum í að híða eftir vegabréfsárit-
un, þökk sé nýju tölvukerfi sem
komið er i notkun. Ástralska inn-
flytjendaeftirlitið hefur komið sér
upp forriti sem gefur ferðaskrifstof-
um færi á að senda upplýsingar í
gegnum tölvu og fá svar umsvifa-
laust.
Ónæmi færist í vöxt
Ferðalangar ættu að spyrja sjálfa
sig að því hvort þeir séu tilbúnir í
flug og hvort einhver önnur heil-
næmari ferðaleið standi til boða ef
heislan er tæp fyrir. Hættan er held-
ur ekki að baki þegar fluginu lýkur
og margir sjúkdómsvaldar liggja í
leyni. í fjölmörgum löndum heims
eru malaría og berklar aftur orðin
að vandamáli.
Fúkkalyf vinna ekki lengur jafn-
vel á malaríu og áður því bakterían
hefur í mörgum tilfellum myndað
ónæmi. Flestir ferðamenn sem fara
á svæði þar sem gætt hefur malar-
iutilfeUa láta sprauta sig gegn veik-
inni og dugar það oftast tU. Þeir sem
hins vegar bregða sér í stuttar ferð-
ir segja oft við sjálfa sig að hættan
sé lítil sem engin og blekkja sig með
því að halda að stutt vera á góðu
hóteli geti engan skaðað. Malar-
íusmit kemur oftast af einu litlu biti
moskítóflugu. Moskítóflugan er svo
lítil að hún sést varla með berum
augum.
Malaría er stórvandamál í dag og
árlega eru greind yfir 200 miUjón til-
feUi. Þau eru ekki öU bundin við
Afríku, Asíu eða S-Ameríku. TU
dæmis eru tUgreind um 2000 tilfeUi
í Bretlandi á hverju ári, flest hjá
ferðamönnum sem koma frá útlönd-
um. Á síðustu 7 árum hafa 50
manns dáið úr malaríu í Bretlandi.
Berklar eru jafnvel enn hættu-
legri sjúkdómur en malaría. Berkl-
ar eru hættulegasti sjúkdómur ver-
aldar í dag og fleiri deyja af hans
völdum en úr hjartasjúkdómum eða
krabbameini. BerklatilfeUum fjölg-
ar ekki einungis í þróunarlöndum
heldur einnig á Vesturlöndum af
sömu ástæðum og malaríu. Fúkka-
lyfin eru í mörgum tilfeUum hætt að
verka.
Ferðamenn sem fara tfl austan-
tjaldslandanna fyrrverandi eða tU
Rússlands ættu að vera sérstaklega
á varðbergi því þar eru berklar aft-
ur orðnir að miklu vandamáli, svo
og ýmsir aðrir sjúkdómar, eins og
bamaveiki og mænusótt. Þeir ferða-
langar sem eru á höttunum eftir
kynlífsævintýrum setja sig í miklu
meiri hættu á að veröa fyrir sjúk-
dómssmiti. Þar er ekki einungis um
að ræða kynlífssjúkdóma því lifrar-
bólgusmit er einnig algengt við þær
aðstæður.
Fyrirbyggja vandann
Ferðamenn á leið á framandi
slóðir erlendis ættu að láta sprauta
sig gegn aUs konar kviUum áður en
þeir leggja í hann. Það getur vel ver-
ið að því fylgi heilmikið umstang en
það er ekkert á móti því umstangi
sem fylgir því að fá einhverja skæða
kviUa. Einnig er mjög mikUvægt að
vera vel tryggður gegn veikindum.
Að verða veikur erlendis, sérstak-
lega utan svæðis Evrópusambands-
ins, getur orðið feiknalega dýrt fyr-
ir viðkomandi. Ef tU dæmis þarf að
flytja veikan mann heim með flug-
vél verður að borga fyrir a.m.k. 3
sæti og einnig fyrir hjúkrunarþjón-
ustu og það eru svimandi háar upp-
hæðir. Það er því aldrei of varlega
farið.
Þýtt og endiu-sagt úr Business
og Condé Nast Traveler. -ÍS
Flugfélög
mótmæla
Félag sem samanstendur af
flestum flugfélögum heims mót-
mælti harðlega í síðasta mánuöi
þegar bandarísk yfirvöld komu í
veg fyrir reglugerð sem gerir
flugfélögum auðveldara að ganga
fljótt að samningum þegar greiða
skal fórnarlömbum flugslysa
skaðabætur. Félagið sagði
ákvörðunina ólöglega og óskyn-
samlega og hyggst kæra til
bandaríska samgönguráðuneyt-
isins.
Vegna verohækkana á olíu á
alheimsmörkuðum áforma mörg
flugfélög heims að hækka far-
gjöld sin. Flugleiðir hækkuðu al-
gengustu fargjöldin í millilanda-
flugi um 750-1000 krónur. Fjöl-
mörg evrópsk flugfélög áforma
hækkanir á næstu dögum og
heyrst hefur um væntanlegar
hækkanir hjá Lufthansa, Air
France og Svissair.
Lægri fargjöld
Alitalia
Á sama tima og evrópsk flugfé-
lög hækka fargjöld sín tilkynnir
Alitalia lækkanir á flestöllum
flugleiðum sínum í Evrópu.
Lækkunin gildir frá 6. nóvember
til 17. desember. Þær takmarkan-.
ir eru þó að kaupa verður tvo
miða fyrir fullorðna, fram og til
baka, og gista tvær nætur á
þriggja stjömu hóteli.
Ekkert gefið eftir
Lestarstarfsrnenn í Þýskalandi
fóru alveg út-af sporinu, ef svo
má að orði komast, þegar óprút-
tnir aðilar komu fyrir stórum
járnkrókum á köplum lestanna.
Talið er að hér hafi verið aö
verki aðilar úr samtökum gegn
kjamorku. Ekki urðu alvarleg
slys á fólki en einn lestarstarfs-
maður skarst illa á brotnu rúðu-
gleri þegar lestin sem hann
stjórnaði lenti illilega á einum
króknum. Aðgeröarsinnar í
ÍÞýskalandi hafa leikið þennan
leik áður, heft jámbrautir og lok-
að vegum.
■HMHfeHHllHiaiÍ