Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
13
Olyginn sagði...
...að ljóskurnar Caprice og
Tamara Beckwith hefðu verið meö-
al gesta á ljósmyndasýningu hjá
John nokkrum Swannell í Lundún-
um um daginn. Sýningin spannaði
yfir 20 ár en John þessi er best
þekktur íyrir tískuljósmyndir sín-
ar. Caprice og Tamara hafa eflaust
haft gaman af sýningunni því að
þær eru ekki óvanar að standa fyr-
ir framan myndavélarnar.
...Viktoría, krónprinsessa Svia,
væri á góðri leið með að giftast
krónprinsi Spánar, Felipe. Sögunni
fylgdi að Viktoriu og Felipe lægi á
að komast í hnapphelduna því að
þau ættu von á bami i júni. Þó að
þetta hafi komið fram í þýska blað-
inu Frau mit Herz eru þó fáir sem
leggja trúnað á fréttina enda þykir
það ekki par áreiðanlegt blað.
...að sífellt væru í gangi sögur um
að ofurfyrirsætan Elle Macpherson
væri í ástarsambandi með þekktum
mönnum, þar á meðal Kevin
Costner og Sean Penn. Nú þykir
hins vegar ljóst að Macpherson hef-
ur fundið „hann“, hún er alvarlega
ástfangin af sænskum bankastjóra
að nafni Arpade Buisson og eru þau
skötuhjú óaðskiljanleg. Macpher-
son eyddi vist sumarfriinu með
honum á St Tropez og svo fara þau
saman í búðir í New York.
...að gamla brýnið hún Tina Tum-
er, 56 ára, hefði slegið í gegn á tón-
leikum sem hún hélt í Moskvu um
daginn. Meðal þarlendra vakti furðu
hve vel gamla konan hefur haldið sér
og þá sagðist hún ekki hafa farið I
fegrunarað-
gerðir. Hún
hefði að vísu
átt í vandamál-
um með nefið
og farið í að-
gerð út af því.
Það hafi endað
með því að hún
hafi fengið nýtt
nef og hún sé
bara ánægð
með það.
...að forræðismál Roberts De Niro
og fyrrverandi vinkonu hans,
Toukie Smith, vegna tvíburanna
þeirra, Julians og Kendricks, hefði
endað í hatrömmum deilum og yrði
sennilegast ekki útkljáð nema fyrir
rétti. Skötuhjúin eignuðust tví-
burana á mjög
óvenjulegan
hátt því að þau
voru hætt
saman þegar
De Niro sam-
þykkti að gefa
sæði til að
frjóvga egg úr
Smith og svo
var önnur
kona fengin til
að ganga með
bömin.
Æfir fyrir hlutverk í El Zorro
Leikarinn kynæsandi Antonio
Banderas æfir nú á fullu fyrir
hlutverk sem hann ætlar að
leika í E1 Zorro. Hjónin eru stödd
á Marbella sem er nálægt Costa
del Sol á Spáni, æskustöðvum
Antonios, þar sem hann ætlar að
koma sér í gott form fyrir hlut-
verkið. Banderas ætlar að leika
sjálfúr bardagasenumar í mynd-
inni en hefur ekki hugsað sér að
nota staðgengil. Hann æfir af
kappi skylmingar, hjólreiðar og
lyftingar.
Á meðan er Melanie Griffith
í mömmuleik og dundar sér
með litlu dótturinni Steflu Car-
men. Ætlunin er að skíra litlu
dömuna fyrir jól. í síðustu
heimsókn fjölskyldunnar dvöld-
ust þau í stóru einbýlishúsi
sem nefnist La Gaviota og kem-
ur það vel til greina sem fastur
dvalarstaður þeirra. Hjónin
hafa sagt að þau langi tfl þess
að búa á Costa del Sol sex mán-
uði á ári.
Melanie Griffith hefur nóg aö gera
meö aö sinna litlu dóttur þeirra, Stellu
Carmen.
Antonio Banderas æfir skylmingar af
kappi þar sem hann ætlar sjálfur aö leika
bardagasenurnar í El Zorro.
I
V* GEISLADIS1C^^
JAPIS
-hljómar betur
BRAUTARHOLTI & KRINGLUNNI
SÍMI 562 5200
FJOLBREYTNIN ER I JAPIS
SONY MHC-771
ÞETTA ER HÚN! HLJÓMURINN ER
ÓTRÚLEGUR, 3. DISKA STÆÐA Á
FRÁBÆRU VERÐI
KR. 49.900
SONY CDP-XE300
5 STJÖRNU GEISLASPILARI
MEÐ FJARSTÝRINGU
KR. 18.800
SONY CCD-TR340
MYNDBANDSUPPTÖKUVÉL
MEÐ FJARSTÝRINGU 8mm
SKEMMTILEGA EINFÖLD
. KR. 54.900
PF>-— SONY MHC-991AV
> ÞESSI SLÆR ALLAR HINAR >
HEIMABÍÓSTÆÐURNAR ÚT, HUÓMUR
ER SÖGU RÍKARI
KR. 69.900
MY FIRST SONY
TÆKI FYRIR HRESSA KRAKKA
FRÁ KR. 3.990
fyr SONY TA-VE100/SA-VE1Q0 ^
( HEIMABÍÓMAGNARI
Ý MEÐ 5 HÁTÖLURUM OG BASSABOXI
49.900.-