Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1996, Page 41
57
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 1996
Dublinarferð fyrir eldri borgara:
r
Verslunarferðir íslendinga til ná-
grannalandanna þegar nær dregur
jólum eru löngu orðnar fastur siður
í lífsmynstri margra íslendinga.
Ferðin er einnig kærkomin tilbreyt-
ing til að komast burt frá amstri
hversdagsleikans á þeim tíma sem
skammdegið fer hvað verst í fólk.
Fólk á öllum aldri lætur eftir sér
ferðir sem þessar enda eru þær á
mjög hagstæðu verði hjá ferðaskrif-
stofunum.
Samvinnuferöir-Landsýn hafa um
nokkurra ára skeið starfrækt ferða-
klúbbinn Kátir dagar - kátt fólk fyr-
ir þá sem eru orðnir 60 ára eða
eldri. Á hans vegum er nú skipulögð
ferð í desembermánuði fyrir með-
limi klúbbsins.
Þriðja ferðin
„í fyrra fórum við fjórar ferðir til
Dublin með Kátu fólki - kátum dög-
um og var jafnan upppantað í þær.
Nú erum við með svo stóra vél að
við getum tekið stærri hópa í einu
og fórum um daginn í 90 manna ferð
á vegum klúbbsins. Eftirspumin í
þessar ferðir er jafiivel enn meiri í
ár en í fyrra, 90 manna feröin var
númer tvö í haust og nú stefnum við
að þriðju ferðinni dagana 12.-15.
desember. Hún er farin vegna þess
að i 90 manna ferðina komust ekki
eins margir og vildu og við erum að
reyna að koma til móts við þá sem
misstu af þeirri ferð,“ segir Ásthild-
ur Pétursdóttir fararstjóri.
Þessar ferðir hafa verið mjög vin-
sælar vegna þess hve ódýrar þær
eru. Verð á mann í tvíbýli er tæpar
26.000 krónur og þar er búið að slá
af um 5-6.000 krónur fyrir klúbbfé-
laga.
„Dagskráin í þessum ferðum er
mjög fjölbreytt.
Fyrsta kvöldið verð-
ur kynningarfundur.
Fólki er boðið upp á
Irish coffee og fund-
urinn einkennist af
glensi og gamni. Síð-
an erum við með
bingó, kráarölt og
skipuleggjum ferðir í
hina skemmtilegu
tveggja hæða strætis-
vagna borgarinnar.
Það kemur stundum
svipur á vagnstjórana
þegar við komum
Verðlag í verslunum f Dublin er meö því lægsta
sem gerist.
með 60-70 manna hópa á eina bið-
stöðina en það hafa samt aldrei
skapast vandræði. Strætisvagnamir
eru það rúmir að þeir hafa alltaf
tekið allan hópinn.
í ferðum okkar til Dublin er alltaf
skipulögð ein ferð á írska krá þar
sem er ekta Irsk tónlist og írskir
dansar. Það er matsölustaðurinn og
kráin Ocean Merchant. Beint á móti
henni er önnur stórskemmtileg krá
frá tólftu öld sem við heimsækjum
einnig sama kvöld.“
Enskan ekki vandamál
„Á kátum dögum hjá kátu fólki
er alltaf skipulagt eitthvert sérstakt
prógramm á hverju kvöldi í Dublin-
arferðunum okkar og það lætur sér
enginn leiðast. Auk þess erum við
fólki alltaf innan handar, aðstoðum
við verslunarferðir, erum með við-
talstíma og túlkum fýrir fólk ef það
er í vandræðum með enskuna.
Menn eru misgóðir í þeirri tungu
eins og gengur en það þarf enginn
að lenda í vandræðum þó ensku-
kunnátta sé ekki fyrir hendi.
Dublinarbúar eru einnig orðnir
vanir íslendingum og þeir fá jafnan
góðar viðtökur. Dublin er orðin af-
skaplega falleg á þessum tíma árs.
Jólaskraut og jólaljós eru mjög áber-
andi.
Veðrið á þessum tíma er einnig
frekar hagstætt, snjór er fátíður og
fer jafnskjótt og hann kemur. Hita-
stig er yfirleitt yfir frostmarki í des-
í ferðum ferðaklúbbsins Kátir dagar - kátt fólk til Dublinar er alltaf skipulögð
ein ferð á írska krá þar sem hægt er aö upplifa ekta írska tónlist og írska
dansa.
ember og því heitara en íslendingar
eiga að venjast.
Verslanir eru opnar alla daga vik-
unnar á þessum árstíma til sex en
alla fimmtudaga er opið til níu að
kvöldi. Það þarf ekkert að fjölyrða
um verðlagið þama, menn þekkja
það af afspum eða eigin raun og
þama er mikið úrval verslana.
Við afhendum alltaf svokölluö
ferðapund sem gefa afslátt í verslun-
um og veitingahúsum. Einnig má
minnast á að írar em komnir með
mjög öflugt endurgreiðslukerfl virð-
isaukaskatts. Menn afhenda nótum-
ar á hótelinu daginn fyrir brottför
og fá endurgreiðslu á flugvellinum á
leiðinni heim,“ segir Ásthildur. -ÍS x
vDAGAÍ^/
'Vebð
XR500í
(IÁ0QU9W
Risa
skafmidi
semendisf
tiljólQ
Joladagatal
Happaþrennunnar.
Vinningur á öðru hverju dagatali.
Þad em spennandi
mororiar fromundon!