Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1996, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
Fréttir
DV
Verslun í heimabyggö:
Við höldum
okkar hlut
- segir Kristján Möller á Siglufiröi
DV, Akureyri:
„Mér sýnist verslunin vera
svipuð og í fyrra og við höldum
okkar hlut þótt auðvitað fari
alltaf einhver verslun úr bæn-
um,“ segir Kristján Möller sem á
og rekur verslunina Siglósport á
Siglufirði.
Kristján segir að verslunar-
menn og bæjaryfirvöld á Siglu-
firði hafi hafið jólaundirbúning-
inn snemma að þessu sinni og
skreytt bæinn fyrr en venjulega
og hafi það mælst vel fyrir. „Það
er ágætt aö taka desember í að
lýsa upp skammdegið," segir
Kristján.
Hann segir að nokkuð hafi
verið um það í haust að Siglfirð-
ingar hafi farið til útlanda í hin-
ar svokölluðu verslunarferðir.
Hins vegar telur hann aö þeir
Siglfirðingar sem sækja ein-
hverja verslun til Reykjavíkur
og annarra staða innanlands fyr-
ir jólin kaupi yfirleitt ekki mik-
ið annað en matvöru. „Menn
gripa eitthvað með sér ef þeir
eiga leið nærri Bónusi,“ segir
Kristján.
-gk
SIMALEIKUR
Jólagjafahandbókarinnar
9 0 4 I 7 S 0
Hafðu
jólagjafa-
handbók
sem kom út
4. desember
við höndina
og taktu
þátt í
frábærri
verðlauna-
getraun.
Þú
getur
unnið
þessi
glæsilegu
tæki
hér til
hliðar.
BRÆOURNIR
tjlflORMSSONHF
Lágmúla 8 - sími 533 2800
AKAI
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF
Síðumúla 2 - sími 568 9090
Einar
Farestvett&Co.hf.
Bomimiii2i »5622901 Otiaaa)
ATV
ARMÚLA 38 Síli 5531133
SIMATORG
[DV
9 0 4 * 1 7 5 0 Verð aðeins 39,90 mín.
Nýtt tónverk frumflutt á Egilsstöðum:
Ometanlegt að fá
að takast á við svo
stórt verkefni
DV, Egilsstöðum:
„Þetta er glæsilegt verk og mjög
krefjandi fyrir söngfólkið og raunar
ótrúlegt hve Julian náði kórnum á
mikið flug. Mig langar lika til að
segja að það er ómetanlegt fýrir tón-
gert við sálminn Sjá himins opnast
hlið eftir Bjöm Halldórsson. Hljóð-
færaleikarar voru Julian Hewlett,
orgel, Jón Guðmundsson, þver-
flauta, Gillian Hayworth, óbó,
Charles Ross, lágfiðla, og Simcana
Salminig, selló.
kennari en Julian Hewlett lék undir
á orgel fyrir hina kórana og stjóm-
andi þeirra var Rosmary Hewlett.
Kóramir sungu hver fyrir sig og
síðan allir saman tvö lög. Síðasta
lagið var Jólasveinar ganga um gólf
í skemmtilegri útsetningu Rosmary.
Hjónin Julian Hewlett, höfundur verksins, og Rosemary Hewlett stjórnandi ásamt hluta kórsins. DV-mynd Sigrún
listarfólk, kóra og hljóöfæraleikara
að fá tækifæri til að takast á við svo
stórt verkefni," sagði Jón Guö-
mundsson, skólastjóri Tónlistar-
skólans á Egilsstöðum, við DV.
Á aðventutónleikum í Egilsstaða-
kirkju flutti kór og bamakór kirkj-
unnar ásamt fimm hljóðfæraleikur-
um nýtt tónverk fyrir kór og hljóm-
sveit eftir Julian Hewlett. Verkið
tekur 20 mínútur í flutningi og er
Á tónleikunum komu fram sex
kórar, alls um 150 manns. Auk
þeirra tveggja sem áður er getið
sungu samkór Norður-Héraðs,
kirkjukór Valla- og Skriðdals,
bamakór Egilsstaðaskóla og
kvennakór söngdeildar tónlistar-
skólans en það era nemendur sem
byrjuðu í söngnámi í haust.
Undirleikari og stjómandi
kvennakórsins er Keith Reid söng-
Kirkjan var troðfull en hún tekur
280 manns og fékk söngfólkið ekki
sæti. Undirtektir voru mjög góðar
enda eiga þau hjón, Julian og Ro-
smary, auðvelt með að ná upp
stemningu. Þau hafa unnið gey-
sigott starf fyrir tónlistarlíf á Hér-
aði og eiga mikla þökk skilið fýrir
sitt framlag til menningarlífs á Eg-
ilsstöðum og nágrenni.
-SB
Fundur bæjarstjórna á Seyðisfirði:
Þingmenn þyrftu að hafa
þverpólitíska framtíðarsýn
DV, Seyðisfirði:
Bæjarstjómir Seyðisfjarðarkaup-
staðar og Egilsstaðabæjar héldu
sameiginlegan fund á Seyöisfirði 5.
desember til að ræða helstu hags-
munamál bæjarfélaganna.
Samvinna hefur ávallt verið
nokkur og farið vaxandi með bætt-
um samgöngum á síðustu árum.
Fjarlægðin milli staðanna er ekki
nema rúmir 20 km. Mest af þeirri
leið liggur yfir Fjarðarheiði sem oft
hefur verið nokkurt torleiði.
Skíðasvæði bæjanna em sitt
hvomm megin á heiðinni. Um
reksturinn hefur lengi verið tals-
verð samvinna - og nú hafa verið
mynduð um hann byggðasamlög
sem Fellabær tekur þátt í. Mörg mál
vom til umræðu á fundinum.
Minna skal stjómvöld landsins á
að þau lofuðu á sínum tíma að eftir
lok jarðgangagerðar á Vestfjöröum
yrði hafist handa við sams konar
verkefhi á Austfjörðum. Austfirð-
ingar hljóta aö krefjast efnda.
Auka þarf samvinnu bæjanna í
ferðaþjónustu og koma á leiösögu-
mannanámskeiðum. Reyna eftir
föngum að halda störfum innan
byggðarlaganna.
Athuguð yrði samvinna staðanna
um sorpvinnslu og sorpeyðingu.
Bent var á að Egilsstöðum - Seyð-
isfirði - Neskaupstað væri lífsnauð-
syn að taka saman höndum um
vöm heilbrigðisþjónustu sinnar
sem mönnum sýnist að sæti stöðug-
um árásum heilbrigðisráðuneytis-
ins vegna minnkandi fjárframlaga
og áforma um skerðingu á þjón-
ustu.
Menn vfija minna samgönguráð-
herra á ummæli hans á fundi á
Seyðisfirði um 7 daga snjómokstur
á leiðinni Seyðisfjörður - Egilsstað-
ir, Egilsstaðir - Neskaupstaður.
Hvert var innihald þeirra, hverjar
verða efndir?
Kanna skal í lok fyrsta skólaárs
hver hafi orðið útkoman af yfirtöku
grunnskólans.
Ákveðið var að koma aftur saman
á vordögum og taka upp þráöinn
um frekari sameiningu og sam-
vinnu á þeim sviöum sem hagstætt
gæti verið. JJ
Háborðiö á fundinum. Frá vinstri: Þuríður Bachmann, forseti bæjarstjornar
á Egilsstöðum, Jónas Hallgrímsson, forseti bæjarstjórnar á Seyöisfiröi, og
Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyöisfiröi. DV-mynd Jóhann