Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Side 29
JLj’V LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
29
fólk
Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiflla:
Ræktar kalkún
í jólamatinn
- * 1 ' • 11
„Þaö er ósköp hefðbundið hvemig viö eyöum
jólunum. Þessi jól ætlum við að fara til
Skotlands til sonar míns og fjölskyldu hans og
eyða jólunum þar. Tvisvar eða þrisvar höfum
við líka, ég og konan mín, stungið af um jólin
og farið í orlofshús og dvalið þar yfir jól og ára-
mót,“ segir Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi
fiðla, og kveðst ekki missa af íslensku siðunum
þó hann eyði jólunum að þessu sinni í
Skotlandi.
„Við tökum með okkur laufabrauðsdeig og
ætlum að skera út laufabrauð með barnaböm-
unum. Við förum líka með svínahamborgar-
hrygginn með okkur vegna þess að íslenski
hamborgarhryggurinn bragðast öðmvísi en
það sem Skotar framleiða. Sonur minn hefur
alltaf pantað hamborgarhrygg í jólamatinn. Við
tökum líka með okkur hangikjöt og kæsta
skötu til að eiga á Þorláksmessunni,“ segir
hann.
En Sigurður og fjölskylda hans hafa þó ekki
eytt öllum jólum erlendis. Síðustu áratugina
hafa þau, öll hersingin, Sigurður, systkini hans
ásamt bömum og jafnvel bamabömum, komið
saman hjá foreldrum Sigurðar á jóladag, borð-
að saman og haldið jólaball enda ailtaf ein-
hverjir í fiölskyldunni sem geta spilað.
Sigurðm- býr á Vatnsenda og er þar með
hund og hænur úti í garði. Á haustin hefúr
hann haft fyrir reglu að fá sér kalkúnunga til
að rækta og nota í áramótasteikina.
Hefur vöruskipti
„Ég reyni yfirleitt að fá 4-6 unga síðsumars.
Þeir ganga hérna úti og era í hænsnahúsinu
hjá íslensku hænunum mínum. Ég hef
skemmtileg vöraskipti við mann, sem fær hjá
mér kalkún og lætur mig fá viliigæsir og rjúpu
því að ég er svoddan klaufi við að afla þess,“
segir hann og bætir við að kalkúnar, sem ganga
úti, séu öðravísi. Hann láti þá verða eldri en
venjulega og stundum fengið fugla sem hafa
verið allt að 11 kíló þegar búið hefur verið að taka inn-
an úr þeim.
Sigm-ður segist gjaman hafa boðið systkinum sínum
Hamborgari,
franskar,
kokteilsösa
ogkók.
Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, eyðir jólunum og áramót-
unum hjá syni sínum og fjölskyldu hans í Skotlandi ab þessu
sinni. Kalkúnasteikin veröur því aö bíða fram í janúar. DV-mynd
í kalkúnaveislu kringum jól eða áramót. Aö þessu sinni
verði kalkúnaveislan þó líkiegast ekki fyrr en í afmæl-
inu hans í janúar. -GHS
■ ■
Flosi Ólafsson, leikari og hrossabóndi í Borgarfirði:
Pfta m/buffi,
franskar
kokfeilsósa
og kók.
9" pizza með
2 tegundum
afáleggi
ásamtkók.
12"pizza með
2 tegundum
afáleggi
ásamfkók.
ymfaáwim-m
ítíurWfflr.ffidji
RH STAURANT-PIZZE RIA
Onnum kafinn um jólin
Flosi Ólafsson leikari og eigin-
kona hans hafa búið að Stóra Aðal-
bergi í Reykholtsdal í Borgarfirði í
sjö ár og halda að sjálfsögðu upp á
jólin þar, á aðfangadagskvöld hjá
syni sínum og fiölskyldu hans í
Reykholti og svo heima hjá sér á
jóladag. Flosi hefur reyndar verið
önnum kafinn í bænum undanfam-
ar vikur við æfingar á jólaleikriti
Þjóðteikhússins, Villiöndinni eftir
Ibsen, en það verður frumsýnt á
annan í jóliun.
„Á aðfangadagskvöld höldum við
upp á jólin með syni okkar, tengda-
dóttin- og bamabömum í
Reykholti. Klukkan tíu á
aðfangadagskvöld för-
um við í Reykholts-
kirkju, sem er
glæsilegt nýtt guðs-
hús. Þetta era
fyrstu jólin
sem þar er
messað. Á
jóla-
Flosi Ólafsson, leikari og hrossabóndi
hjá syni sínum í Reykholti i Borgarfirði
dag borðum við heima hjá okkur
með okkar nánustu. Síðan verður
farið að siga í bæinn til þess að fara
í vinnu,“ segir Flosi.
- En hvað skyldi vera á matseðl-
inum um jólin?
„Ég held að ungu hjónin ætli að
gefa okkur gæs að borða. Ég er
óvanur því en mun auðvitað sætta
mig við það,“ segir hann.
Flosi hefúr búið alla ævi í Reykja-
vík en þetta era sjöundu jólin hans
í Borgarfirðinum. Þar er hann með
slangur af hrossum „og það vex
manni fljótlega yfir höfúð og verður
alltof margt vegna þess að mer-
amar halda áfram að auka
kyn sitt endalaust. Maður
tímir aldrei að farga img-
viðinu vegna þess að mað-
ur verður alltaf svo skotinn
í litlu greyjimum. Það er
allt sett á og þá fer þetta
strax að skipta tugum,“ seg-
ir hrossabóndinn.
- Eiginkona Flosa sér um
jólaskreytingamar, jóla-
tréssería er komin á tré
úti í garði og jólatré er
náttúrulega sett upp og
skreytt innanhúss. En
hvemig er með laufa-
brauðið?
,Nei, nei. Ertu
alveg frá þér?
Mér skilst að
mörgum
finnist það
voðalega gott
og hátíðlegt
* að horða
, heldur jólin hátföleg laufabrauð
og heima hjá sér. en ég hef
eiginlega aldrei komið því almenni-
lega niður,“ segir Flosi að lokum.
-GHS
Áskrifendur fá Ifl%
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
mJlli h//>v0.
rsgi
PHIUPS
í ÖLLUM LITUM
39.900
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI SSS 1600
KULDAjAKKf úr MegaTex.
Vatns- og vindheldur með
frábærri útöndun, þétt
einangrun úrVALTHERM,
sérstyrking á öxlum og
olnbogum, hetta i kraga,
sérvasar með góðum lokum.
Tveirlitir. _ _ _
Aðeinskr.l 3.800
SUNWAY
Þægilegar göngubuxur.
Verð frá kr. 11.700
o'aomon
Hágæða gönguskór með
Sympatex.
Verð frá kr. 6.980
^ SEGLAGERÐIN
ÆGIR
k Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 5II 2200