Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1996, Qupperneq 50
54 afmæli LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996 UV Tll hamingju með afmælið 21. desember ____________ 80 ára Helena Halldórsdóttir, Dalbraut 23, Reykjavík. Brandur Brynjólfsson, S, Baldursgötu 12, Reykjavík. _____________________ 75 ára — Ragnheiður Pétursdóttir, Sléttu II, Eyjaijarðarsveit. pi --------------------- 70 ára jj --------------------- Sigurbjörn Guðmundsson, j Ránargötu 6, Reykjavík. Gestheiður G. Stefánsdóttir, Skálholti 11, Ólafsvík. 60 ára Karl Gunnar Marteinsson, Strembugötu 25, Vestmanna- eyjum. Ragnar Ingi Haraldsson, Sæbóli 16, Grundarfirði. Eiginkona hans er Rósa Björg Sveinsdóttir. Þau eru að heiman. 50 ára Jón Ólafsson, Borgarbraut 13, Hólmavík. Hann tekur á móti gestum að heimili sínu frá kl. 19. Símon Ingi Gunnarsson, Kringlumýri 35, Akureyri. Marinó Guðmundsson, Hraunbæ 190, Reykjavík. Almar Viktor Þórólfsson, Njarðvíkurbraut 8, Njarðvík. Ásgerður Hinrikka Annasdóttir, Hjallavegi 14, ísafirði. úií _______________________ 40ára___________________ I IGuðlaugur Gunnar Bjömsson, Miðengi 2, Selfossi. j Hann tekur á móti gestum í ; félagsheimili hestamanna, ; Hliðskjálf, í kvöld kl. 21. Guðmundur Viggó Guðmundsson, Boðagranda 5, Reykjavík. Friðrik Friðriksson, IGrænukinn 11, Hafharfirði. Axel Guðmundsson, j« Áshamri 30a, | Vestmannaeyjum. ívar Gunnarsson, Búastaðabraut 5, Vestmannaeyjum. Dröfn Gunnarsdóttir, Kirkjubraut 7, Akranesi. aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar rsr*i 550 5000 Kristinn Gunnar Jóhannsson Kristinn Gunnar Jóhannsson, skólastjóri og listmálari, Lönguhlíð 7D, Akureyri, er sextugur í dag. Starfsferill Kristinn Gunnar fæddist á Dalvík en ólst upp á Akureyri. Hann stund- aði listnám hjá Hauki Stefánssyni listmálara og Jónasi Jakobssyni, myndhöggvara á Akureyri, 1949-53, lauk stúdentspróíi frá MA 1956, stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann 1956-57 og við Edin- burgh College of Art 1957-59 og 1977-78, lauk kennaraprófi 1962 og hefur sótt fjölda námskeiða innan lands og utan. Kristinn Gunnar var kennari við Barna og unglingaskólann á Pat- reksíirði 1959-61, við Miðskólann i Ólafsflrði 1962-63, var skólastjóri Gagnfræðaskólans í Ólafsfirði 1963-80, ritstjóri íslendings á Akur- eyri 1980-81, kennari við Glerár- skóla á Akureyri 1981-82 og hefur verið skólastjóri Bröttuhlíðarskóla á Akureyri frá 1982. Kristinn hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum heima og er- lendis. Hann hefur þegið starfslaun listamanna og listamannalaun. Kristinn Gunnar var bæjarfull- trúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ólafsfirði 1970-74 og 1978-80 og sat í bæjarráði sömu ár. Auk þess sat hann í fjölda nefnda á vegum bæjarins. Krist- inn Gunnar var formað- ur Leikfélags Ólafsfjarðar 1973-75 og löngum leik- stjóri og hönnuður leik- mynda, sat í Fræðsluráði Norðurlandsumdæmis eystra 1974-80 og formað- ur menningarmálaneíhd- ar Fjórðungssambands Norðlendinga um árabil, var umdæmisstjóri Rotary á íslandi 1978-79, sat í ráðherraskipaðri nefnd um útvarpsrekstur á Akur- eyri 1980-81, var fyrsti formaður Menor, Menningarsamtaka Norð- lendinga, 1982-84 og pistlahöfundur hjá Degi um árabil. Fjölskylda Kristinn Gunnar kvæntist 8.9. 1962 Guðbjörgu Sigurðardóttur, f. 10.11. 1938, starfsmanni dagvistunar við Giljaskóla. Hún var dóttir Sig- urðar Jónssonar, f. 28.7.1904, d. 10.4. 1984, vélstjóra á Patreksfirði, og k.h., Guðrúnar S.M. Lárusdóttur, f. 21.9. 1908, d. 23.2. 1944, húsmóður. Börn Kristins Gunnar og Guðbjargar eru Sig- urður Kristinsson, f. 24.10. 1963, flugrekstrar- hagfræðingur frá Embry- Riddle Aeronautical Uni- versity í Flórída í Banda- ríkjunum, starfsmaður hjá Airfinance í Lúxem- borg, kvæntur Sigríði Oddnýju Bjarkardóttur og eiga þau tvö börn; Brynhildur Kristinsdótt- ir, f. 1.12. 1965, með próf frá Myndlista- og hand- íðaskóla íslands, búsett í Kaup- mannahöfn en maður hennar er Jó- hann Gunnarsson verkfræðinemi og eiga þau tvö böm; Gunnar Krist- insson, f. 14.3. 1967, við listnám í Berlín, en sambýliskona hans er Dorothee Damm. Systkini Kristins Gunnars: Sig- urður Óskar Jóhannsson, f. 4.7. 1935, d. 23.2.1959; Arngrímur Brynj- ar Jóhannsson, f. 7.4.1940, flugstjóri og forstjóri Air Atlanta, búsettur í Mosfellsbæ; Ingi Þór Jóhannsson, f. 26.9. 1944, verslunarstjóri hjá Heklu hf. í Reykjavík; Davíð Jóhannsson, f. 30.5. 1952, starfsmaður Air Atl- anta, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Kristins Gunnars em Arngrímur Jóhann Sigurðsson, f. 2.10. 1910, byggingameistari á Dal- vík og á Akureyri, og Brynhildur Kristinsdóttir, f. 17.6. 1915, húsmóð- ir. Ætt Arngrímur Jóhann er bróðir Rannveigar Önnu, ömmu frétta- mannanna Atla Rúnars og Jóns Baldvins Halldórssona. Arngrimur er sonmr Sigurðar, b. á Gönguskörð- um i Svarfaðardal, Jónssonar, b. þar, Sigurðssonar, ættfoður Hreiðar- staðakotsættarinnar, Jónssonar. Móðir Sigurðar var Þuríður Hall- grímsdóttir, b. á Skeiði, Jónssonar. Móðir Amgríms var Ósk Pálsdótt- ir, húsmanns, m.a. i Skagafirði, Hall- dórssonar, b. í Efstakoti, Einarsson- ar. Móðir Óskar var Steinunn Dav- iðsdóttir, b. í Dæli, Benjamínssonar. Brynhildur var hálfsystir Sigfríð- ar, konu Egils, skálds á Húsavík og móður Herdísar, kennara og rithöf- undar, Jónasar, forstjóra Essó á Húsavík, og Þorgerðar á Grimsstöð- um. Brynhildur var dóttir Kristins, búfræðings og verkstjóra á Húsavík, Sigurpálssonar, sjómanns í Útbæ í Flatey, Kristjánssonar. Móðir Bryn- hildar var Guðrún Bjamadóttir. Kristinn Gunnar Jóhannsson. Haukur Friðriksson Haukur Friðriksson bókari, Ás- brekku, Hvammstanga, er fertugur i dag. Starfsferill Haukur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp fyrstu árin en flutti níu ára með foreldrum sínum í Mos- fellssveit. Hann lauk verslunarprófi frá Vf 1975, er núna að ljúka námi til löggildingar í fasteigna- og skipa- sölu og hefur sótt flölda námskeiða er lúta að starfi hans á undangengn- um árum. Haukur stundaði sjómennsku með hléum 1972-77, vann við bíla- viðgerðir, í byggingarvinnu, á Skattstofu Reykjavikur, á endur- skoðunarstofu Ara Thorlacius og Bjöms Steffensen og hefur rekið eigin bókhaldsstofu á Hvamms- tanga frá 1982. Jafnframt rak hann byggingafyrirtæki á Hvammstanga 1982-89. Haukur hefur setið í stjórn Félags bókhalds- og flármálaráðgjafa, í sflóm Flugbjörgunarsveitar Vestur- Húnavatnssýslu, var formaður ung- mennafélagsins Kormáks á Hvammstanga frá 1994 og sat í bygg- ingamefnd Hvammstangahrepps frá 1986. Fjölskylda Haukur kvæntist 13.11. 1982 Sigríði Önnu Ragn- arsdóttur, f. 3.9. 1955, sjúkraliða. Foreldrar hennar eru Ragnar Krist- ófersson, bóndi í Garði í Ólafsfirði, og k.h., Hall- fríður Margrét Magnús- dóttir húsfreyja. Böm Hauks og Sigríð- ar Önnu em Fríða Dögg, f. 24.4. 1980; Katrín Sjöfn, f. 5.7. 1983; Eyrún Ösp, f. 18.6. 1984; Ólafur, f. 24.8. 1990. Systkini Hauks eru Lúðvík Frið- riksson, f. 26.9. 1952, verkfræðingur i Mosfellsbæ, kvæntur Áshildi Þor- steinsdóttur og eiga þau þrjú börn; Sigríður Jóna Friðriksdóttir, f. 27.10. 1953, rekstrarfræðingur í Reykjavík, gift Hlyni Árnasyni og eiga þau tvö böm; Hrönn Friðriks- dóttir, f. 16.12.1957, skrifstofumaður i Reykjavík, og á hún þrjú böm; Pét- ur Friðriksson, f. 11.2. 1960, kerfis- fræðingur, búsettur á Kjalamesi, kvæntur Sigurlínu Gísladóttur og eiga þau flögur börn. Foreldrar Hauks era Friðrik S. Ólafsson, f. 10.4. 1930, rennismiður, og k.h., Kristín Lúðvíks- dóttir, f. 6.10. 1928, hús- móðir. Ætt Friðrik er bróðir Ragn- hildar, móður Árna Ragnars Árnasonar alþm., og bróðir Kjartans, föðin- Ólafs Helga, sýslu- manns á ísafirði. Friðrik er sonur Ólafs Helga, út- vegsb. á Látrum í Aðal- vik, síðar vélvirkja í Reykjavík, Hjálmarssonar, útvegsb. i Stakkadal og Látrum í Aðalvík, Jónssonar, b. á Látrum í Aðalvík, Hjálmarssonar, b. á Glúmsstöðum og Kjaransvík, Jónssonar. Móðir Friðriks var Sigríður Jóna Þor- bergsdóttir, b. í Efri-Miðvík í Aðal- vik, Jónssonar, b. í Rekavík bak Látur í Sléttuhreppi, Bjömssonar, b. þar, Guðmundssonar, bónda í Þverdal í Sléttuhreppi, Guðmunds- sonar. Móðir Guðmundar í Þverdal var Guðrún Bjömsdóttir. Kristín er dóttir Lúðvíks Sveins, vélstjóra og yfirverkstjóra í Reykjavík, Sig- mundssonar, húsvarðar í Miðbæjar- skólanum í Reykjavík, Sveinssonar, útvegsb. og smiðs í Gerðum i Garði, Magnússonar, bónda að Berjanesi í Landeyjum og Efstu-Gmnd, Ólafs- sonar. Móðir Sigmundar var Eyvör Snorradóttir, prests á Desjarmýri, Sæmundssonar, prests í Eystri- Ásum og Útskálum, Einarssonar, spítalahaldara í Kaldaðamesi, Ei- ríkssonar. Móðir Sveins Magnús- sonar í Gerðmn var Oddný Jakobs- dóttir, b. í Klömbru og Rauðafelli, Sigurðssonar, b. á Hrútafelli, Bjamasonar. Móðir Kristínar var Alexía Sesselja Pálsdóttir, skip- stjóra í Reykjavík, Hafliðasonar, hreppstjóra í Gufunesi, Hannesson- ar, b. á Vorsabæ á Skeiðum, Odds- sonar. Móðir Hannesar Oddssonar í Vorsabæ var Margrét Ólafsdóttir, b. á Fossi á Rangárvöllum, Bjarnason- ar, ættföður Víkingslækjarættar, Halldórssonar. Móðir Alexíu var Guðlaug Ágústa Lúðvíksdóttir, steinsmiðs í Reykjavík, Alexíusson- ar, lögregluþjónns í Reykjavík, Ámasonar, b. á Innri-Ásláksstöðum og Halakoti á Vatnsleysuströnd, Magnússonar, b. á Völlum á Kjalar- nesi, ívarssonar. Haukur Friðriksson. Gísli J. Eyland Gísli J. Eyland, stöðvarstjóri Pósts og síma á Akureyri, er sjötug- ur í dag. Starfsferill Gísli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Laugamesveginn til 1937 er hann flutti til Akureyrar. Gisli hóf störf hjá Pósti og síma 1942 og hefur starfað þar óslitið síð- an, síðustu árin sem stöðvarstjóri á Akureyri. Hann lætur af störfum um næstu áramót fyrir aldurs sakir eftir fimmtíu og fimm ára starfsfer- il hjá Pósti og síma. Gísli hefur sinnt ýmsum félags- störfum. Hann æfði knattspymu með Þór á sinum yngri áram og hef- ur síðan stutt það félag, spilaði með Lúðrasveit Akureyrar í mörg ár, starfaði í Lionshreyfingunni um árabil, hefur verið félagi í Oddfell- owreglunni í tæp flöratíu ár, hefur starfað að málefnum hjartasjúk- linga frá 1990, var formað- ur Félags hjartasjúklinga á Eyjaflarðarsvæðinu frá stofnun 1990 og þar til í síðasta mánuði, var kjör- inn formaður Landssam- taka hjartasjúklinga 1996 og situr í stjóm Reykja- lundar og SÍBS. Fjölskylda Gísli kvæntist 24.6.1950 Dórótheu J. Eyland, f. 28.7.1929, fulltrúa. Hún er dóttir Einars Kristjáns- sonar, f. 21.7.1898, d. 27.10. 1960, for- stjóra á Siglufirði, Akureyri og í Reykjavík, og k.h., Ólafar ísaksdótt- ur, f. 21.9. 1900, d. 1.5. 1987, húsmóð- ur. Börn Gísla og Dórótheu era Ólöf Jenny Eyland, f. 5.5.1951, húsmóðir í New Branswick í Kanada, gift Sig- urði B. Jóhannssyni, forstjóra hjá Dyno í St. John, og eru böm þeirra Jóhann Gísli og Karen Júlía; Einar Eyland, f. 5.2. 1961, markaðsstjóri hjá Strýtu hf. á Akureyri, kvæntur Margréti Ólafs- dóttur, flármálasflóra hjá Strýtu, og er sonur þeirra Einar Ólafur Eyland en böm Einars frá fyrra hjónabandi era Gísli Eyland og Erla Eyland og dóttir Mar- grétar frá fyrra hjóna- bandi er Júlía Beatrice Róbertsdóttir. Systkini Gísla eru Ólafur J. Ey- land, f. 1920, bifreiðarsflóri á Akur- eyri; Henry, f. 1922, d. 1983, lengst af magnaravörður hjá Ríkisútvarpinu; Rudolph, f. 1923, d. 1981, sjómaður í Reykjavík; Alma Fanney, f. 1928, d. 1933; Gunnar, f. 1933, d. 1980, kaup- maður í Reykjavík. Hálfsystir Gísla, samfeðra, er Guðrún, f. 1951, húsmóðir í Vest- mannaeyjum. Foreldrar Gísla vora Gísli Jóns- son, f. 27.6. 1886, d. 27.8. 1972, skip- stjóri í Reykjavik og á Akureyri, og k.h., Jenny Juul Nielsen, f. 25.8. 1896, d. 22.11. 1947, húsmóðir. Ætt Gísli skipstjóri var fæddur í Svefneyjum á Breiðafirði, sonur Jóns Bjamasonar sjómanns, og Þór- dísar Teitsdóttur. Jenný var dóttir Rudolphs Niel- sen, bryta hjá Sameinaða gufu- skipafélaginu í Kaupmannhöfn, og Ölmu Juul húsmóður. Gisli og Dóróthea taka á móti gestum á afmælisdaginn í nýja Odd- fellowhúsinu, Sjafnarstíg 2, milli kl. 17.00 og 19.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.