Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Side 10
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996 !:>
„Ég á enn þá myndina sem birtist
af mér og mömmu á forsíðu Vísis en
það þótti mjög merkilegt á sínum
tíma að fá mynd af sér í blöðunum,"
segir leigubilstjórinn Guðmundur
Sveinsson sem var áramótabam
Vísis fyrir þrjátíu og fimm árum.
DV ákvað að riíja upp frétt sem var
á forsíðu Vísis árið 1962.
Guðmundur var risastór þegar
hann fæddist á fæðingardeild Land-
spítalans og var hann frægur í byrj-
un árs fyrir það að vera fyrsta barn
ársins. Af honum og móður hans
birtist stór mynd á forsíðu Vísis.
Strákurinn vó hvorki meira né
minna en 4.200 grömm og var 53 cm
á hæð. Foreldrar hans eru þau hjón-
in Sveinn Guðmundsson og Þuríður
Sigurjónsdóttir á Bjargi í Mosfells-
sveit og var hann fimmta barn
þeirra.
Fáir í
afmæliskaffi
„Ég held að það hafi ekki haft
nein sérstök áhrif á líf mitt að ég
var fyrsta barn ársins. Þó var ein-
kennandi fyrir afmælisdaginn minn
hversu fáir fullorðnir komu í kaffi.
Börnin vom send í pössun til móð-
ur minnar þennan dag,“ segir Guð-
mundur.
Guðmundur ólst upp á Bjargi og
starfar nú sem leigubílstjóri og lík-
ar mjög vel. Honum finnst ágætt að
vera svolítið frjáls í vinnunni. Hann
hefur áður starfað hjá Jarðborunum
Guðmundur Sveinsson ásamt fjölskyldu sinni á heimili þeirra í Garðabæn
um.
Ragnheiður fæddist keyptu foreldr-
ar hennar Holtakjúkling.
Rökföst og
vill stjórna
„Ég er í Varmárskóla og það er
mjög gaman en skemmtilegast
finnst mér í frímínútunum. Mér
finnst gaman að eiga afmæli á
nýársdag og mér fannst gaman að
það birtist mynd af mér í blaðinu
þegar ég fæddist," segir Ragnheið-
ur.
Að sögn móður Ragnheiðar er
hún mjög rökföst og vill aðeins
stjóma. „Hún hefur reyndar mjög
rétt fyrir sér oft á tíðum. Við höfum
yfirleitt haldið upp á afmælið henn-
ar á nýársdag en núna ætlum við að
breyta og halda upp á það fjórða jan-
úar þar sem það er laugardagur,"
segir Margrét móðir Ragnheiðar.
Systirin ræður ferðinni
Árið 1995 voru tvíburarnir Þór
Garibaldi og Elísa Vilborg á fæðing-
ardeild Landspítalans í Reykjavík
fyrstu börn ársins. Þau eru böm
yilborgar Amardóttur og Halldórs
Más Þórissonar sem þá bjuggu i
Bolungarvík. Af öryggisástæðum
var móðirin flutt með sjúkraflugi til
Reykjavíkur 8. desember. Fyrsta
janúar þótti ekki fært að bíða leng-
ur og var þá ákveðið að taka bömin
með keisaraskurði. Ekki var útlitið
glæsilegt þegar tví-
buramir komu í heim-
inn rúmur tveimur
mánuðum áður en eðli-
legri meðgöngu lauk.
Þór kom á undan og var
hann aðeins 1.428 g að
þyngd en systir hans.
Elísa. var 1.211 grömm.
Vilborg sagði að allt
hefði gengið mjög vel
með tvíburana og þeir í
hefðu náð eðlilegri
stærð miðað við böm á
sama aldri. Þau em
komin í leikskóla og .
una sér vel. Hún sagði ^
að þó Elísa væri bæði
minni og yngri stjórn-S
aði hún ferðinni.
-em/HKr
Úrklippa úr Vísi frá árinu 1962.
Áramótabörn Vísis og DV heimsótt nokkrum árum síðar:
Varðveita ennþá myndirnar
sem birtust af þeim nýfæddum
ríkisins og hjá Ræsi hf.
Eiginkona Guðmundar heitir
Þóra Einarsdóttir og eru þau búsett
í Garðabæ ásamt fjórum börnum.
Þóra á tvö börn sem heita Harpa
Bjarnadóttir og Atli Rúnar Bjama-
son. Saman eiga þau Svein Hólmar
og Kristrúnu Guðmundsdóttur.
Tíu ára
á nýársdag
Ragnheiður Bjarnadóttir var
nýársbarn ársins 1987 og verður
hún því tíu ára eftir tvo daga. Hún
er dóttir hjónanna Bjarna Ásgeirs
Jónssonar og Margrétar Atladóttur
á Rein í Mosfellsbæ. Ragnheiði þyk-
ir afar gaman að eiga afmæli á
nýársdag og hún á líka myndina
sem tekin var af henni nýfæddri og
birt í DV. Ragnheiður vó 3.436 g og
var 50 cm þegar hún fæddist. Ragn-
heiður á einn albróður, Atla og þrjú
alsystkini; Jón Vigfús, Sigríði og
Benedikt, Bjarnabörn. Sama dag og
Úrklippa úr Dagblaðinu þegar Ragnheiður fæddist.
Það hefur tognað úr tvíburunum frá því myndin var tek-
in.