Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Page 17
JL>"\r LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996
17
Skemmtilegt er að prófa sig áfram við gerö ísrétta, tedrykkja af ýmsu tagi og sorbets. Hér eru nokkrar uppskriftir aö
slíkum réttum.
Ljúffengir ísréttir og drykkir a matarborðið eða i veisluna:
Kókosís, íste með hunangi
avókadóís og tómatsorbet
Skemmtilegt er að brydda upp á
nýjungum á jóla- eöa nýársborðinu
og búa til ísrétti með framandi og
spennandi ávöxtum. Hér koma
nokkrar uppskriftir að athyglisverð-
um réttum, sem gjarnan má prófa
og útfæra eftir hentugleikum.
Tómatsorbet
-uppskrift fyrir fjóra
1 kg tómatar
safi úr y2 sítrónu
1 dl flórsykur
salt
hvítur pipar
3 blöð basilikum
blöðin á 1 kerfli
Agúrkusafi
1 agúrka
6 blöð ferskt basilikum
Basilikum og kerfill til
skreytingar
Sjóðandi vatni er hellt yfir tómat-
ana og þeir látnir standa í vatninu í
nokkrar min. Flysjað. Tómatkjötið
er skorið niður og pressað, til dæm-
is með sleif, til að ná safanum úr
því. Tómatkjötið er blandað saman
þannig að úr verði nokkurs konar
mús og pressað gegnum sigti.
Flórsykurinn er sigtaður saman
við músina. Sítrónusafa bætt út í,
salti, pipar, niðurskomu basilikum
og kerfli. Blandað vel, hellt í form
og sett í frystinn i 3 klst. Hrærið
jafnt og þétt í sorbetinu fyrstu
klukkustundina eftir að það er tek-
ið út til að ekki myndist flögur i því.
Agúrkusafinn er þannig búinn til:
Skolið agúrkuna og skerið langsum.
Skafið kjamann úr henni með skeið
og leggið það til hliðar. Skerið
agúrkuna í minni bita og blandið
saman við 3 msk. vatn og nokkra
klaka.
Skerið basilikumblöðin niður og
blandið í agúrkusafann. Setjið
blönduna i ísskápinn.
Þegar sorbetið er borið fram
skiptið þá ískaldri agúrkusaftinni í
nokkur glös og setjið 1 skeið
tómatsorbet ofan á. Skreytið með
basilíkum og kerfílblöðum og berið
fram strax.
íste með
hunangsís
2 y2 dl mjólk
100 g hunang
2 eggjarauður
75 g sýrður ijómi, 36%
11 vatn
1 kanilstöng + 4 kanilbitar til
skrauts
50 g sykur eða 4 msk.
2 cm ferskt engifer
7 heilar kardimommur
örlitið allrahanda
hýði af 1 lime
3 msk. teblöð (Earl Grey)
Látið mjólkina sjóða í þykkbotna
potti. Strax og hún sýður bætist
hunangið út i. Hrærið vel og látið
suðuna koma upp aftur. Hrærið
stöðugt í á meðan.
Setjið eggjarauðumar í skál og
þeytið í 1 mín. Setjið sýrðan rjóma
út í og hrærið saman við eggjarauð-
umar. Bætið sjóðandi mjólkinni
saman við og hrærið stöðugt í á
meðan. Síið gegnum fíngert sigti í
skál.
Látið kólna og hellið svo i form og
setjið í frystinn. Hrærið í ísnum af
og til fýrstu klst.
íste
Látið vatnið sjóða. Takið pottinn
af hitanum og bætið kanilstöng,
sykri, kardimommu, rifnu engiferi,
allrahanda og limehýði út í. Þekið
og látið standa í 20 mín. Látið suð-
una koma upp aftur, takiö pottinn
af hitanum og bætið teblöðunum út
í. Látið standa í 12 mín.
Hellið teinu gegnum sigti. Látið
kólna og setjið í ísskápinn eða fryst-
inn í 15 mín. svo það kólnið.
Setjið nokkra klakamola í teið
svo það verði ískalt. Hellið því í stór
glös og látið kúlu af hunangsís út í.
Skreytið með kanil og berið fram
strax.
Avókadóís
2 avókadó
safinn af y2 lime eða sitrónu
2 msk. hvítt romm
2y2 dl kókosmjólk
Skerið avókadó í helminga og
fjarlægið steinana. Skafið kjötið út
og hellið safanum yfir. Blandið kjöt-
inu saman við kókosmjólk, sykur og
romm. Hellið blöndunni í form og
setjið í frystinn.
Kókosís
2'h dl mjólk
1 dl rjómi
y2 dl kókosmjólk
40 g rifin kókoshneta
85 g sykur eða 1 dl
Hellið mjólk, rjóma og kókos-
mjólk í þykkbotna pott ásamt sykri
og náið upp suðu og hrærið stöðugt
í á meðan. Um leið og suðan er kom-
in upp er potturinn tekinn af hell-
unni og kókoshnetunni blandað
saman við.
Látið blönduna kólna áður en
henni er hellt í form og látið í fryst-
inn. Hrærið í ísnum af og til fyrstu
klukkustundina. -GHS
IEIKJU
iMfl IUTTAR
Digranesi
m rvi p-
i (í 7
^ ötlbAÖJSr yjjli! -
Bretlandi, hljomsveitm:
1
5
9Í
r kl. 21
auk þeirra koma fram:
p . U' Li'-L
Fra: “^olírtcl
Wjómsveitin CUVPfllÍ
r,ANlKAv5Ur
Miðaverð kr. 1.500.-
auk þess koma fram íslensku plötusnúðarnir flggi ogDaði
16 ára aldurstakmark og áfengisbann á svæðinu
Miðasala i öllum hljómplötuverslunum
og veitingastöðum Hróa hattar
Hljómalind