Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996
iðsljós
37
Jack
Nicholson
kærður
Vændiskona hefur
höfðað mál gegn Jack
Nicholson og segir
hann hafa misþyrmt
sér þegar hún fór fram
á þúsund dollara í
þóknun fyrir þjónust-
una. Konan, sem heit-
ir Catherine Sheehan,
sagði hinn skapstóra
leikara hafa ráöist
harkalega á sig, rifið
sig upp á hárinu og
lamið höfði hennar
nokkrum sinnum í
gólfið. Að þvi loknu á
hann að hafa fleygt
henni fram og til baka
og hótað að drepa
hana.
Versta gjöfin:
Andlitsmynd og bjöllubolur
í nýjasta tölublaði In Style blaðs-
ins eru sex þekktir leikarar spurðir
hver hafl verið versta gjöfin sem
þeir hafi fengið um ævina. Leikar-
inn Jay Thomas (Mr. Holland’s
Opus) sagði það hafa verið andlits-
mynd sem vinur hans hafði málað
af honum. „Það pössuðu engir and-
litsdrættir minir á myndinni við
stærð höfuðsins. Myndin hangir
núna úti í skúr við hliðina á hrifun-
um og því miður eru engin nagdýr
á því svæði.“
Garcelle Beauvais (The Jamie
Foxx Show) sagði að hræðilegasta
jólagjöfin hefði verið háskólabolur
alsettur litlum bjöllum. „Þegar þú
togaðir í spotta spilaði peysan lagið
Jingle Bells (Klukknahljómur)."
Richard Dean Anderson (Pandora’s
Clock) sagðist hafa verið 6 eða 7 ára
þegar einhver sendi honum og bróð-
ur hans tvær kvenkynsdúkkur.
„Annað hvort vissi viðkomandi
ekki að við værum strákar eða þetta
var brandari. Ég fylltist slíkum
hryllingi og örvæntingu að ég fór
um miðja nótt og klippti af þeim allt
hárið.“
Gena Lee Nolin (Baywatch) sagð-
ist hafa fengið virkilega ómerkilega
keramikskál frá einum ættingja sín-
um fyrir u.þ.b. þremur árum. „Ég
get ómögulega munað hvað ég gerði
við hana.“ Traci Lords (Melrose
Place) nefndi tyggjópakka í því sam-
bandi en sagðist ekki vOja segja frá
hverjum hún fékk hann. Joey Law-
rence (Brotherly Love) sagðist ein-
hvern tímann hafa fengið þroskandi
púsluspil frá foreldrum sínum svo
hann gæti lært afleidd orð af latínu.
„Það er enn í umbúðunum, þarf ég
að segja meira?“
Gena úr Baywatch fékk Ijóta keramikskál.
Traci úr Melrose Place fékk tyggjópakka.
Danny DeVito
Gamanleikarinn Danny
DeVito fékk heldur betur útreið
þegar hann var á gangi í stórri
verslunarmiðstöð fyrir skömmu.
Reið móðir réðst að honum og
lamdi hann margsinnis í höfuðið
með handtöskunni sinni. Ástæð-
an var að hennar sögn sú að dótt-
ir hennar hafði fengið síendur-
teknar martraðir eftir að hafa
horft á barnamyndina hans, Mat-
hilda.
Leikkonan Jane Leeves, sem leikur Dap-
hne í þáttimum um Frasier, hreinlega
elskar að kaupa sér föt. Hún er þó ekki
merkjasnobb, eins og sumir kollegar henn-
ar, og segist frekar kaupa sér ódýra eftir-
líkingu en að eyða miklum peningum í
þekkt merki.
„Maður fær ekki betri kennslu í fata-
kaupum en að hafa verið blönk leikkona
sem elskar fot. í hvert skipti sem ég fór í
leikprufu reyndi ég að sjá fyrir mér hvem-
ig ég myndi vilja að viðkomandi karakter
liti út. Ég átti enga peninga svo þannig
lærði ég að leita og nota ímyndunaraflið,"
sagði Jane. Jafnvel þótt hún eigi nóga pen-
inga í dag dauðsér hún eftir peningum í
dýran fatnað. „Ég þakka guði fyrir að þeir
skuli lána manni fót til að vera í við
Emmy-afhendinguna og Golden Globe-
verðlaunanna. Að kaupa merkjavöru er
ekki nærri því eins gaman og að sjá föt frá
Gucci i verslun og finna sér svo ódýra eft-
irlíkingu.“
Jane er eldsnögg að versla, grípur
hverja flíkina af slánni á fætur annarri og
raðar saman eftir hentugleikum. „Þetta
snýst aflt um eðlishvöt, þ.e. að hafa tilfinn-
ingu fyrir því hvað fer manni og hvað fer
vel saman. Ég er búin að læra hvað hent-
ar mér og ég tel mig hafa ágætan smekk
vegna þess að þegar ég klæðist einhverju
sem mér finnst þægilegt flnnst kærastan-
um mínum ég vera kynæsandi." Hún ráð-
leggur fólki að setja sér ákveðnar reglur og
kaupa t.d. einfóld föt þegar maður kaupir
ódýr föt. „Buxur frá Gap klæða mig t.d.
mjög vel en á hinn bóginn flnnst mér
blúndukjólar alltaf líta svolítið ódýrt út, Jane (Daphne) kaupir helst ekki merkjavöru og notar frekar ímyndunaraflið.
sama hvort þeir eru frá þekktum hönnuði
eða ekki. Svo er ég orðin dauðleið á síðum fatnaði með fötin. „Það er punkturinn yfir i-ið. Jafnvel þó skórnir
blómamynstri, mér líður eins og ég væri fræpoki." Jane sjáist ekki þegar maður klæðist t.d. síðri kápu eða kjól
notar aldrei skartgripi, finnst þeir yfirgnæfa sig, og lýk- veit maður það sjálfur ef þeir passa ekki við. Það er
ur aldrei innkaupum án þess að kaupa sér skó i stíl við nóg.“
Leikarinn Daniel Day-Lewis:
Kvæntist dóttur
Arthurs Millers
„Þau voru hamingjan upp-
máluð og innilega ástfang-
in,“ sagði presturinn sem
gaf þau Daniel Day- Lewis
og Rebeccu Miller saman
um miðjan nóvember. Daní-
el, sem þekktur er fyrir að
kjósa helst sinn eigin félags-
skap, kvæntist hinni 34 ára
gömlu leikkonu og leikstýru
við látlausa athöfn í Staf-
ford. Sjálfur er hann 39 ára
gamall.
Einungis 18 manns voru
viðstaddir brúðkaupið þar
sem brúðurin klæddist slð-
um, bláum blúndukjól og
gekk inn kirkjugólfið við
undirleik eins besta vinar Daniels sem lék á irskar sekkjapípur.
Faðir brúðarinnar, hinn þekkti rithöfundur, Arthur Mifler, las upp
frumsamið ljóð sem hann orti í tilefni dagsins og loks stungu hin
nýgiftu af í brúðkaupsferð út í eyöimörkina í Arizona.
Elskar að
kaupa föt
Jólamyndagáta og jólakrossgáta DV
í jólablaði DV á Þorláksmessu misfórst að geta nánari
skýringa og upplýsinga með jólamyndagátu og
jólakrossgátu blaðsins.
Jólamyndagátan var á bls. 34. Eins og áður vísar gátan
til atburðar á árinu sem er að líða. Glæsileg verðlaun
eru í boði frá Sjónvarpsmiðstöðinni að Síðumúla 2.
United hljómtaeki að verðmæti 23.700 kr. eru í I.
verðlaun, í 2. verðlaun er Akai-ferðatæki með geisla-
spilara að verðmæti 14.900 kr. Skilafrestur er til II.
janúar nk.
Jólakrossgátan var á bls. 36 og lausn hennar fólst í
tölusettri öfugmælavísu. Glæsileg verðlaun eru í boði
frá Radíóbæ í Ármúla 38. í fýrstu verðlaun er Aiwa-
hljómtæki að andvirði 29.900 kr. og Aiwa-vasadiskó að
verðmæti 12.980 kr. er í önnur verðlaun. Eins og í
myndagátunni er skilafrestur til II. janúar nk. Lausnir
skal senda DV, Þverholti II, 105 Reykjavík. Nöfn verð-
launahafa verða birt í helgarblaði DV 18. janúar 1997.