Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1996, Side 30
38
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1996
trimm
Bandarískir vísindamenn segja:
Gleymið öllum megrunarkúrum
- líkamsrækt og hreyfing virðist eina varanlega leiðin til að losna við kílóin og halda þeim í burtu
Röskleg ganga í 45 mínútur þrisvar til fimm sinnum á viku aö staöaldri er vænlegust til árangurs fyrir þá sem vilja
losna viö nokkur kíló. Myndin er af „kraftgöngu" í Öskjuhlíð undir leiösögn Árnýjar Helgadóttur, hjúkrunarfræöings
og líkamsræktarkennara. Slík ganga skilar mestum árangri þegar til lengi tíma er litiö. Megrunarkúrar eingöngu eru
hinsvegar nær gagnslausir samkvæmt niöurstööum bandarískra vísindamanna, samkvæmt fregnum í desember
tölublaði tímaritsins Runners World.
Þeir sem vilja léttast eiga þriggja kosta völ:
í fyrsta lagi að fara í megrunarkúr, í öðru lagi
að stunda einhvers konar líkamsrækt, göngu
eða skokk og loks að blanda saman megrunar-
kúr og hreyfingu. Nýlega birtu vísindamenn
við Baylor College of Medicine í Houston í
Bandaríkjunum niðurstöður sínar á saman-
> burði þessara þriggja aðgerða. Niðurstaðan
reyndist sú að ef litið var til tveggja ára eða
lengur þá skiluðu líkamsæfingar og hreyfing
bestum árangri.
Rúmlega eitt hundrað of þungar konur og
karlar var skipt í þrjá jafnstóra hópa. Hver
Á línuritinu sést aö þyngdartapiö er mikiö viö
heföbundna megrun fyrra áriö en síöara áriö,
þegar þátttakendur voru ekki lengur undir eftirliti
þjálfara, bættust kílóin nær öll á aftur. Þeir sem
stunduöu aöeins röskar göngur misstu færri kíló
' ‘ fyrra áriö en bættu hins vegar engum á sig aftur
síöara áriö.
höpanna fór annaðhvort i
megrun, stundaði líkams-
rækt og fór í megrun eða
stundaði líkamrækt. í eitt
ár voru hóparnir undir eft-
irliti og leiðsögn þjálfara.
Þeir sem fóru í megrun
voru látnir borða vel sam-
ansetta matarblöndu með
lágu kólesteróli þar sem fit-
an var um 30%, kolvetni
50% og eggjahvíta 20%.
Þeir sem stunduðu líkams-
rækt voru látnir ganga
rösklega í að minnsta
kosti 45 mínútur þrjá til
fimm daga vikunnar.
Þeir sem bæði voru í
megrun og líkamsrækt
borðuðu og hreyfðu sig
samkvæmt ofanrituðu.
Að einu ári liðnu kom
í ljós að þeir sem voru í
megrun og stunduðu lik-
amsrækt höfðu lést mest
eða um 10 kíló að meðal-
tali. Þeir sem aðeins
voru í megrun höfðu
mist 7,5 kg en þeir sem
eingöngu voru í líkams-
rækt höfðu tapað 3 kg.
En könnuninni var ekki lokið. Leiðbeinend-
ur og þjálfarar höfðu fylgst með þátttakend-
um allan tíman fram til þessa. Þeir létu nú
af því en fólkið var hvatt til þess að halda
áfram að fara eftir reglunum sem farið hafði
verið eftir. Síðan var rannsókninni haldið
áfram.
Að loknu enn einu ári voru þátttakendur
viktaðir aftur. Þá kom í ljós að þeir sem voru
aðeins í megrun höfðu bætt öllum kílóunum
á sig aftur. Að meðaltali var fólk í þessum
hópi aðeins einu kílói léttara en við upphaf
rannsóknarinnar fyrir tveimur árum. Þeir
sem stundað höfðu gönguna og megrun voru
nú 2,5 kg léttari en tveim árum fyrr. Þeir sem
einvörðungu höfðu stundað 45 mínútna röska
göngu þrisvar til fimm sinnum i viku höfðu
hins vegar haldið þyngdinni sem þeir höfðu
losað sig við á fyrra árinu og höfðu ekki bætt
neinu við sig á því síðara.
Niðurstaða vísindamannanna við lækna-
skólann í Houston er því sú að eftir fyrsta
ánægjunaan og hrifningin af því að losna við
þyngdina með megrunarkúrum þá sé oftast
erfitt að halda við nýjum mataræðisháttum.
Þeir ráðleggja almennt því fólki sem vill létt-
ast að auka hreyfingu og líkamsrækt og að-
laga í mesta lagi mataræðið þeirri viðleitni.
Stórfelldar mataræðisbreytingar virðast ekki
skila marktækum árangri.
Ný tækni til að finna fótarmein og lausn þeirra
- samspil tölvu- og videotækni leysir vanda bæði giktar- og sykursýkisjúklinga og íþróttamanna af öllu tagi
Miklar framfarir
hafa orðið á síðustu
árum í möguleikum
á að skoða hvernig
fólk beitir fótun-
um við hlaup og
aðra hreyfingu.
Til skamms tíma
voru einkum (
notaðar þær að- |
ferðir að sér-
fræðingar, sem
finna vildu fót-
armein og bæta
úr þeim, tóku
ljósrit af fætin-
um að neðan og
sáu hvernig
hann var í kyrr-
stöðu. Síðan
voru gerð inn-
legg í samræmi
við það og reynt
að móta þau sem
næst því sem
talið var að
koma mundi við-
komandi að gagni.
Rauðu
fletlrnir
sýna
hvar þungi
álagsins er
mestur á
fótinn og
síðan tákna
litirnir
mismunandi
álagsþunga.
Svona er hægt
aö prenta út
álagsmynd af
ötunum bæöi I
kyrrstööu og á
hreyfingu. Eins er
hægt skoöa álagiö á
skjá.
Ný tæki og nýjar aðferðir til að fmna
og greina fótarmein eru nú notaðar.
Þetta eru þýsk-bandarísk tæki. Við
ræddum nýlega við Kolbein Gísla-
son, stoðtækjafræðing hjá fyrir-
tækinu Gísla Ferdinandsyni
ehf., sem tekið hefur þessi tæíd í
notkun.
„Þessi nýja greining á fótar-
meinum er miklu betri og örugg-
ari en áður, þó svo að með fyrri
aðferðum hafi mátt ná góðum
árangri skilar nýja kerfið mun
skjótari og fullkomnari niður-
stöðu. Beitt er nýjasta tölvu- og
videobúnaði og þannig hægt að
fylgjast með álagi bæði í kyrr-
stöðu og í hreyfingu. Með því að
kanna fyrst hvar álagið kemur á
fótinn á viðkomandi er hægt að
móta innlegg og skó eftir mynd-
inni eða þá gipsmóti. Síðan er
hægt að mæla aftur álagið og
hvar það kemur niður þegar fót-
urinn er kominn í skóna með
nýju innleggi. Ef eitthvað er
ekki alveg eins og það á að vera
er auðvelt að sjá hvað er að og lag-
færa það. Álagið á fótinn sést alveg jafn vel í nýju
mælitækjunum og um beran fót væri að ræða,“
sagði Kolbeinn Gíslason.
„í nýju tækjunum getum við skoðað hvert
skref, álagið á fótinn, þyngd þess og hvar þung-
inn er mestur og minnstur o.s.frv. Þeir sem fyrst
og fremst hafa gagn af þessum nýju aðferðum eru
giktar- og sykursýkissjúklingar auk allra þeirra
sem þurfa að nota sérsmíðaða skó. Hægt er að
laga svokallaða göngulínu viðkomandi og ýmsa
aðra missmíð sem fólk þarf að glíma við.
Stærsti hópurinn sem gagnast mun þessi nýja
tækni er hins vegar íþróttamenn af öllu tagi,“
sagði Kolbeinn. „Ekki aðeins hlauparar heldur
einnig knattspymumenn, handboltamenn og
körfuboltamenn. Ekki má heldur gleyma golfur-
um sem flestir stunda íþrótt sína langt fram á efri
ár. Allar nýjungar til að laga fótarmein og mis-
stig koma golfurunum mjög að gagni.“
Þrátt fyrir að nýju tækin hafi kostað á sjöttu
milljón króna verður ekki sagt að dýrt sé að fá þá
þjónustu sem hægt er að veita með þeim. Frum-
greining kostar 2500 krónur en greining ásamt
innleggi kostar samtals frá 4000-12.000 krónum
eftir því hve miklar mælingar, gifsmót og fl. þarf
að gera. „Ég tel þetta einföldustu og jafnframt
ódýrustu lausnina við að leysa vandamál við
stoðkerfin. Þetta er jafnframt leið til að uppræta
21. gamlárshlaup ÍR:
I minningu upphafsmannsins
Gamlárshlaup ÍR verður haldið í
21. skipti um þessi áramót. Að þessu
sinni er full ástæöa til að minnast
upphafmanns hlaupsins, Guðmund-
ar Þórarinssonar, sem lést fyrir
skömmu. ÍR-hlaupið á gamlársdag
hófst fyrir forgöngu hans, eins og
margt annað í íþróttastarfinu á
meðan hann tók þar þátt sem þjálf-
ari og leiðtogi. Guðmundur var
meðal annars maðurinn á bak við
það afrek frjálsíþróttafólks í ÍR að
ná bikarmeistaratitli íslands
sautján sinnum í röð. Margir af-
reksmenn og -konur okkar í dag í
frjálsum íþróttum miða einmitt
upphaf ferils síns við það þegar þau,
ung að árum, hófu að æfa undir
leiðsögn Guðmundar Þórarinsson-
ar.
ÍR-hlaupið á gamlársdag hefur
hlotið þann sess að vera bæði upp-
haf og endir hlaupatímabilsins. í ÍR-
hlaupinu „byrjar fjörið“ eins og
konan sagði og átti þá bæði við há-
tiðahöld gamlársdagsins og upphaf
æfinga hlaupara fyrir komandi ár.
Víst er að mörgum skokkaranum
léttir þegar hann hefur lagt brekk-
una upp Túngötuna að baki en um
hana liggur síðasti hluti ÍR-hlaups-
ins á gamlársdag og hefur brekkan
sú reynst mörgum þung í skauti
enda jólsteikur og veislumatur
stundum farin að síga í eftir rúm-
lega 9 kílómetra hlaup um vestur-
bæinn. ÍR-hlaupið hefst klukkan 13.
Skráning hefst klukkan 11 í gamla
ÍR-húsinu við Túngötu. Keppt er í
sjö flokkum karla og kvenna. Þátt-
tökugjald er 500 krónur og 300 krón-
ur fyrir börn.
Guömundur Þórarinsson, iþrótta-
þjálfari og leiötogi í áratugi. Hann
var upphafsmaöur ÍR-hlaupsins á
gamlársdag.
þennan vanda en ekki meðhöndla
hann án lausnar," sagði Kolbeinn
Gíslason stoðtækjafræðingur að lok-
um.
...fram undan
Gamlárshlaup UFA hefst kl.
12 á gamlársdag við Dynheima
| á Akureyri. Skráning hefst á
: sama stað kl. 11 og stendur til
kl. 11.45. Vegalengdir eru 4 km
og 10 km. Keppt er sex
Ialdursflokkum kvenna og
karla. Þátttökugjald er 500
krónur. Þetta verður í sjöunda
sinn sem gamlárshlaup UFA er
haldið. í fyrra voru
þátttakendur rúmlega fjörutíu
þrátt fyrir nýstandi kulda, 15
stiga frost.
Gamlársshlaup KKK hefst
við Jaðarbakkalaug á Akranesi
á gamlársdag kl. 13.00.
Sameiginleg upphitun hefst 20
mínútum fyrr. Vegalengdir eru
2 km, 5 km og 7 km.
Þátttökugjald er 300 kr. en
hlaupið er í tilefni dagsins og
verða útdráttarverðlaun þar
: sem þeir eiga möguleika sem í
mark komast. Þetta er þriðja
skiptið sem Akurnesingar
I hlaupa á gamlársdag og í fyrra
tóku tæplega tvöhundruð
manns þátt.
Gamlárshlaup ÍR hefst kl.
13 við gamla ÍRhúsið við
Túngötu í Reykjavík. Sjá nánar
í frétt hér á síðunni.
Umsjón
Ólafur Geirsson