Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 5
J>W LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 Jþéttir ASÍ og VSÍ semja um vinnutíma: Vinnutímatilskipun Evropusam bandsins gengin í gildi - 10 tíma hvíldin lengist í 11 tíma Alþýöusamband tslands og Vinnuveitendasambandiö hafa undirritað samning um að hrinda í framkvæmd vinnutímatilskipun Evrópusambandsins. Að sögn Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoð- arframkvæmdastjóra VSÍ, er helsta breytingin sem verður með vinnu- tímatímatilskipuninni sú að fram- vegis verður samfelldur hvíldar- tími milli vinnulota 11 klst. í stað 10 áður. Markmið samnings ASÍ og VSÍ er að setja lágmarkskröfur til að stuðla að umbótum, einkum hvað varðar vinnuumhverfi, til að tryggja aukið öryggi og heilsu- vernd launafólks. Hann gildir um daglegan og vikulegan lágmarks- hvíldartíma starfsmanna, árlegt or- lof, hlé, hámarksvinnutíma á viku og um tiltekna þætti í tengslum við nætur- og vaktavinnu og vinnu- mynstur. Samningurinn nær til allra sem starfa á samningssviði ASÍ og VSÍ, að undanteknum þeim sem starfa við flutninga á sjó og í lofti og fisk- veiðar. Samningurinn nær heldur ekki til fólks- og vöruflutningabíl- stjóra sem starfa við flutninga á vegiun og falla undir reglur um aksturs- og hvíldartíma bílstjóra. Meðalvinnutími skal samkvæmt samningnum ekki fara umfram 48 klst. á viku og skal vera sem jafn- astur. Viðmiðunartímabil við út- reikning á meðalvinnutíma er sam- kvæmt samningnum hálft ár. Þetta þýðir því að samningurinn leyfir það að unnið sé í lotum og hægt að flytja vinnutíma og hvíldartíma og hvíldardaga til innan hvers viðmið- unartímabils. -SÁ Suöurnes: Orlítil fjölgun íbúa DV, Suðurnesjum: íbúum á Suðurnesjum hefur fjölg- að um 23 samkvæmt bráðabirgðatöl- um Hagstofu Islands 1. desember frá árinu á undan -1995. Fjölgunin nem- ur 0,1% og íbúar á Suðurnesjum eru nú 15.657. Reykjanesbær er stærsta sveitarfélagið með 10.351 íbúa. í Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæj- ar varð fækkun um 16 íbúa frá ár- inu á undan. Þar búa nú 2602 íbúar. í Keflavíkurhverfi hefur hins vegar orðið fjölgun eða um 23 íbúa. Þeir eru nú 7628 og hefur fjölgað um 0,3% frá árinu áður. I Hafnahverfi Reykjanesbæjar var fjöldun um fjóra eða 3,4% og kom þaö nokkuð á óvart. Þar er nú 121 íbúi. Greinilegt þykir að sameining sveitarfélag- anna þriggja 1994 hefur eitthvað að segja um búsetu innan Reykjanes- bæjar. Samkvæmt tölum Hagstof- unnar virðist fólk frekar velja bú- setu í Keflavík en Njarðvík. Mesta fjölgun á Suðurnesjum átti sér stað í Sandgerði. Þar fjölgaði íbúum um 2,6%, eða 34 íbúa. Sand- gerðingar geta státað sig af þessari fjölgun sem er ein sú mesta á lands- vísu. Grindvíkingum fjölgaði einnig eða um þrjá íbúa og þar búa nú 2170 manns. í Garði í Gerðahreppi átti sér stað fækkun um 11 íbúa. Sama er að segja um Voga á Vatnsleysu strönd. Þar fækkaði um 10 íbúa. í öllum sveitarfélögunum á Suð urnesjum búa fleiri karlmenn er konur. í Reykjanesbæ eru 5297 karl ar en konur 5054. Það er einn mest munur milli kynja ef miðað er vic stærstu bæjarfélög landsins. Þar ei yfirleitt minni munur og í mörgun sveitarfélögum landsins eru fleiri konur en karlar. -ÆMK Fjölgar í ríki Alla rika DV, Eskifiröi: Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu íslands 1. desember 1996 voru Eskfirðingar 1041 eða 35 fleiri en á sama tíma fyrir ári. Það er 3,5% fjölgun frá fyrra ári. Karlar eru í nokkrum meirihluta eða 553 en konur eru 488. Segja má því að eskfirskar konur búi í karlaríki. Þaö er ánægjulegt fyrir Eskifjörð að fólki skuli fiölga hér en hins veg- ar hefur nokkur fólksfækkun átt sér stað á Austurlandi. Flest sveitarfé- lögin standa frammi fyrir fækkun fólks á hverju ári. Ástæða fiölgunar fólks á Eskifirði má eflaust rekja til öflugrar atvinnu- starfsemi sem svo mjög hefur verið einkennandi og er þaö hið öfluga fyr- irtæki Aðalsteins Jónssonar - Hrað- frystihús Eskifiarðar - sem hefur verið burðarásinn í þeim efhum og hefur svo verið í 36 ár. -Regína s'idfíuanmmui • huómtbki • FEitoamia MVNDBHNDSTBKI • HÍtTHUIRtttt • ttÍLTBKI úilfUKttlLtttttttt • MttCNttttlltt • MVNOttttNOSSPÓLUtt KttFFIUÉLtttt • ttttttUDttlÍTtttt • HttttOfUDUKÖNNUtt ttttOBttVtttttttt • KBLIÍKttttHtt • FttVSmKtttttttt PttOLOCIC SUttttOUNO-KEttFI • OttttVLÚIUOFNtttt HHNDSÍMHtt • ÍIÓNVttttPSMVNOKUÉLtttt • FttXTBKI fttMLOKUCttlLL • ÚTVttttttfVFKIttttttKLUKKUtt VttfttOlfKÓ • OIKTttFÓNtttt • HtlMILIffÍMtttt HttBttlVÉLtttt • ttLttNOtttttttt • VðFFLUIttttN ttLÉCCfHNÍFtttt • HttNOÞCVTtttttttt • HITttTCttttl VCKIttttttKLUKKUtt • Háttttlttftttttttt • STttttUlttttN KttULLUIttttN OC FLCItttt OC FLCItttt ! ZB* TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA 1 V/SA RAÐGREIÐSLUR TIL 36 MANAÐA | 1 WKAVPAWGGW LfWHÁBrReMBIMJ HRAÐÞJÓNUSTA VK) LANDSBYCCÐARFÓLK Sendum simdiguri un illt lind í póstkrðfu, sé hrlngt fjrrlr kl. 12:00, iinrs icsti virkn dig. SkiphoHi 19 Sími: 552 9800 Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 Grœnt númer: 800 6886

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.