Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Blaðsíða 27
JL>V LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 Uppátæki breska kóngafólksins ríða ekki við einteyming: Skrípalæti unga fólksins í bresku konungsfjölskyldunni, þeirra Karls, Díönu, Fergie og allra hinna, eru hreinir smámunir miðað við það sem ættingjar þeirra og forfeður ástunduðu á sínum tíma. Albert prins, eiginmaður Viktor- íu drottningar, maður sem var álit- inn holdgervingur siðseminnar, var til dæmis með jámhring i gegnum reðurinn. Og þannig mætti lengi telja. Þessar upplýsingar koma fram á nýjum CD-ROM margmiðlunar- diski sem breska fyrirtækið Odyss- ey heiur geflð út. Um ástarævintýri, bruð- kaup og harmleiki „Hvort hringurinn var til að auka kynlifsnautn Alberts og drottning- arinnar eða hvort hann, með aðstoð spotta sem var bundinn við læri prinsins, var hafður þarna til að hafa hemil á óvæntri stinningu limsins, vita þeir best sem bera þetta óvenjulega skraut nú á dög- Viihjálmur, eldri sonur Karls og Díönu. Karl Bretaprins var eitt sinn mikill stuðkarl. Filippus drottningarmaður fékk konuna sem elskaði hann. Viktoría drottning og Albert, eiginmaður hennar, nutu ásta á nýstárlegan hátt. Elísabet Englandsdrottning leitaöi liðsinnis ömmu sinnar til að fá leyfi til að giftast Filippusi prins, núverandi eiginmanni sínum. um,“ segir í tilkynningu frá Odyss- ey. Margmiðlunardiskurinn ber það skemmtilega heiti Fjórtán brúðkaup og skilnaður, augljós tilvísun í heiti hinnar vinsælu kvikmyndar Fjögur brúðkaup og jarðarfor. Á diski þess- um er rakin saga bresku konungs- fjölskyldunnar mikinn hluta síðast- liðinnar aldar, ástarævintýrin, brúðkaupin, harmleikirnir og hjónaskilnaðimir. Sagan nær frá Viktoríu drottningu fram á vora daga og hún er sögð með aöstoð myndbandsbrota, gamalla hljóðupp- takna, blaðaúrklippna, mikils fjölda ljósmynda og tíu þúsund orða texta. „Konungsfjölskyldan og marg- miðlun eru góð blanda," segir Adri- an Munsey, framkvæmdastjóri Odyssey. Diskurinn hefst á því að sýnd eru myndbrot frá lífi Windsor-Qölskyl- dunnar, eins og breska konungsfjöl- skyldan heitir, og undir er leikið tónverkið Land of Hope and Glory eftir breska tónskáidið Edward Elg- ar, auk þjóðsöngsins breská. Disk- urinn, sem skipt er upp í fimm hluta, þykir gefa fyllri mynd af kon- ungsfjölskyldunni en nokkuð annað sem um hana hefur verið gefið út, hvort sem það eru bækur eða heim- ildarmyndir. Fyrir áhugí um saqnm jamenn um sagnfræði og safaríkar kjaftasdgur Odyssey, sem hefúr gert nokkrar heimildarmyndir um fjölskylduna vinsælu, ,setti saman fimm manna hóp blaðamanna og fóru þeir yfir mikið magn efnis, bæði prentefni og annað, þar á meðal töluvert magn slúðurs. Margmiðlunardiskinum er ætlað að höfða til bæði þeirra sem hafa Díana prinsessa á sér marga aödáendur og viö fáum að vita sitthvað um þá á nýja margmiðlunardiskinum um kóngafjölskylduna. áhuga á sagnfræði og hinna sem skemmta sér best yfir safaríkum kjaftasögum um kóngaliðið. Hér er eitthvað fyrir cilla, m.a. ótrúlegustu sögur, sem eru á fárra vitorði, um ástarlíf löngu horfinna fjölskyldu- meðlima. Viktoría drottning þurfti ekki að- eins að glíma við hringaðan lim eig- inmannsins, heldur var sonur henn- ar, Játvarður VIII., liðtækur kvennamaður. Pilturinn átti fjöld- ann allan af ástkonum áður en hann tók við konungstigninni og hann vildi gjarnan fá þær bornar inn til sín á silfurbakka, kviknaktar að öðru leyti en því að nokkrum stein- seljulaufum var komið fyrir á þeim á mikilvægum stöðum. Georg V., bamabarn Viktoríu, deildi ástkonu með eldri bróður sín- um, Alberti Viktori prins. Sá gekk undir nafhinu Eddy og var kunnur fyrir ástarsamband sitt við kennara sinn við háskólann í Cambridge. Kennarinn var karlkyns. Tímaritið Punch gerði grín að sambandi þessu á sínum tíma. Sú ameríska var leikin með heitar olíur Fyrri eiginmaður hertogaynjunn- ar af Windsor sem varð svo eigin- kona Játvarðs, bandaríski flugmað- urinn Win Spencer, er sagður hafa farið með þáverandi eiginkonu sína í vændishús í Hong Kong til að frúin gæti nú lært tækni ástarlífsins af vændiskonunum sem þar stunduðu iðju sína. „Sumar heimildir herma að það hafi verið vegna fæmi hertogaynj- unnar með heitar austrænar olípy^ sem Játvarður VIII. sagði af sér kom ungdómi," segja forráðamenn Odyss- ey. Alls er fjallað um 28 meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar á margmiðlunardiskinum, þar á meðal um litlu prinsana, syni Karls og Dí- önu. í kaflanum um Karl ríkisarfa er til dæmis sagt frá skólagöngu hans, áram hans sem „stuðkarls“ og ást- konum hans og öðmm vinkonum. í kaflanum um Díönu er sagt frá tísku, börnunum hennar og einnig fylgja með lítt kunnar staðreyndir um fyrr- um kærasta hennar og karlkyns að- dáendur. Á diskinum er sagt frá sálarkvöl- um Margrétar prinsessu, yngri syst- ur Elísabetar drottningar, sem bstfr? enda á ástarsamband sitt við fráskil- inn höfuðsmann úr hernum vegna þrýstings frá almenningi og skyld- mennum. Ástarmál Elísabetar, núverandi drottningar, fá einnig að fljóta með á margmiðlunardiskum. Við fræðumst m.a um það að pabbi hennar var því mjög mótfallin að hún gengi að eiga Filippus prins hinn gríska. Það var ekki fyrr en amma gamla, María drottning, skarst í leikinn að karlinn lét undan. Fjórtán brúðkaup og skilnaður hefur þegar komið á markað í Brfeý* landi en samningaviðræður um markaðssetningu í Bandaríkjunum, Japan og Þýskalandi standa yfir. „Við reyndum að gera allt í senn, margmiðlunardisk, bók og mynd- band sem hægt væri að horfa á á ýmsa vegu. Áhugi manna á þessu efni verður aldrei ofmetinn,“ segir Adrian Munsey. ReutX

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.